Morgunblaðið - 13.12.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2021
England
Burnley – West Ham ............................... 0:0
- Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn með Burnley.
Manchester City – Wolves ...................... 1:0
Arsenal – Southampton ........................... 3:0
Chelsea – Leeds........................................ 3:2
Liverpool – Aston Villa ............................ 1:0
Norwich – Manchester United................ 0:1
Leicester – Newcastle ............................. 4:0
Crystal Palace – Everton ........................ 3:1
Staðan:
Manch. City 16 12 2 2 33:9 38
Liverpool 16 11 4 1 45:12 37
Chelsea 16 11 3 2 38:11 36
West Ham 16 8 4 4 28:19 28
Manch. Utd 16 8 3 5 26:24 27
Arsenal 16 8 2 6 21:22 26
Tottenham 14 8 1 5 16:17 25
Leicester 16 6 4 6 27:27 22
Wolves 16 6 3 7 12:14 21
Brentford 16 5 5 6 21:22 20
Brighton 15 4 8 3 14:16 20
Crystal Palace 16 4 7 5 22:22 19
Aston Villa 16 6 1 9 21:25 19
Everton 16 5 3 8 20:28 18
Leeds 16 3 7 6 17:25 16
Southampton 16 3 7 6 14:24 16
Watford 16 4 1 11 21:31 13
Burnley 15 1 8 6 14:21 11
Newcastle 16 1 7 8 17:34 10
Norwich City 16 2 4 10 8:32 10
Everton – West Ham ............................... 1:1
- Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
Þýskaland
Potsdam – Bayern München .................. 1:1
- Glódís Perla Viggósdóttir kom inn á hjá
Bayern á 89. mínútu en Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir var ekki í hópnum.
Werder Bremen – Eintracht Frankfurt 1:0
- Alexandra Jóhannsdóttir var varamaður
hjá Eintracht og kom ekki við sögu.
Ítalía
Venezia – Juventus.................................. 1:1
- Arnór Sigurðsson og Bjarki Steinn
Bjarkason voru varamenn hjá Venezia.
Juventus – AC Milan ............................... 4:2
- Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
AC Milan.
Inter Mílanó – Sassuolo .......................... 2:2
- Anna Björk Kristjánsdóttir var vara-
maður hjá Inter og kom ekki við sögu.
B-deild:
Pisa – Lecce.............................................. 1:0
- Þórir Jóhann Helgason kom inn á hjá
Lecce á 79. mínútu.
SPAL – Brescia........................................ 0:2
- Mikael Egill Ellertsson kom inn á hjá
SPAL á 81. mínútu.
Holland
Ajax – AZ Alkmaar ................................. 1:2
- Albert Guðmundsson kom inn á hjá AZ á
86. mínútu.
Belgía
Kortrijk – OH Leuven............................. 2:1
- Rúnar Alex Rúnarsson varði mark OH
Leuven í leiknum.
B-deild:
Mouscron – Lommel................................ 2:1
- Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel.
Rúmenía
CFR Cluj – Mioveni.................................. 1:0
- Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 60
mínúturnar með CFR.
Tyrkland
Adana Demirspor – Giresunspor .......... 1:0
- Birkir Bjarnason var varamaður hjá Ad-
ana Demirspor og kom ekki við sögu.
Grikkland
PAOK – Lamia ......................................... 2:1
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Kýpur
Nea Salamis – Apollon Limassol ........... 0:2
- Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék allan leik-
inn með Apollon.
Skotland
Celtic – Motherwell ................................. 7:0
- María Ólafsdóttir Gros lék fyrstu 74
mínúturnar með Celtic.
Danmörk
Bikarkeppnin, 8-liða, seinni leikur:
OB – Randers ........................................... 1:2
- Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB sem vann 3:2 samanlagt.
Svíþjóð
Umspil, fyrri leikur:
Helsingborg – Halmstad......................... 0:1
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Noregur
Kristiansund – Vålerenga ...................... 2:1
- Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 64
mínúturnar með Kristiansund.
Rosenborg – Strömsgodset .................... 2:2
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg og Ari Leifsson kom inn á
hjá Strömsgodset á 83. mínútu.
Lilleström – Sandefjord.......................... 2:0
- Viðar Ari Jónsson lék í 88 mínútur með
Sandefjord.
50$99(/:+0$
KÖRFUBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
Víðir Sigurðsson
Þór frá Þorlákshöfn og Stjarnan eru
búin að tryggja sér sæti í undan-
úrslitum bikarkeppni karla, VÍS-
bikarsins, með sigrum í átta liðum úr-
slitum keppninnar í gærkvöldi.
Þór heimsótti ÍR og hafði afar
nauman 79:77-sigur í æsispennandi
leik í Seljaskóla. Luciano Massarelli
og Daniel Mortensen voru stigahæst-
ir Þórsara með 19 stig hvor. Þá lék
Glynn Watson vel er hann náði tvö-
faldri tvennu. Skoraði hann 12 stig,
tók 14 fráköst og gaf átta stoðsend-
ingar að auki. Igor Maric var stiga-
hæstur ÍR-inga með 17 stig og
skammt undan var Sigvaldi Eggerts-
son með 15 stig. Jordan Semple náði
tvöfaldri tvennu er hann skoraði 10
stig og tók 13 fráköst.
Stjarnan fékk þá Grindavík í heim-
sókn í Garðabæinn í hörkuleik. Eftir
að Grindavík hafði byrjað betur
sneru Stjörnumenn taflinu við og
unnu að lokum 85:76. Eugene Turner
III fór fyrir Stjörnumönnum og náði
tvöfaldri tvennu þegar hann skoraði
23 stig og tók 11 fráköst. Stigahæstur
Grindvíkinga í leiknum var landsliðs-
maðurinn Ólafur Ólafsson, sem skor-
aði 25 stig og tók einnig níu fráköst.
Síðari tveir leikir átta liða úr-
slitanna fara fram í kvöld.
Haukar og Njarðvík líkleg
Haukar og Njarðvík eru sigur-
stranglegustu liðin í bikarkeppni
kvenna en þau eru komin í undan-
úrslit VÍS-bikarsins ásamt Breiða-
bliki, sem er næstneðst í úrvalsdeild-
inni, og Snæfelli, sem er í neðri hluta
1. deildarinnar.
Haukakonur þurftu að hafa tals-
vert fyrir því að vinna topplið 1.
deildar, ÍR, í Seljaskóla, 76:58. ÍR
hélt í við Haukana stóran hluta leiks-
ins. Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 15
stig fyrir Hauka og Elísabeth Ýr
Ægisdóttir 13. Haiden Palmer var
með þrefalda tvennu, 10 stig, 13 stoð-
sendingar og 18 fráköst. Irena Sól
Jónsdóttir skoraði 19 stig fyrir ÍR og
Danielle Reinwald var með 15 stig og
18 fráköst.
Njarðvík vann Fjölni 89:88 í stór-
leik átta liða úrslitanna, eftir fram-
lengingu. Aliyah Collier átti sannkall-
aðan stórleik með Njarðvík og
skoraði 42 stig og tók 17 fráköst. Al-
iyah Mazyck skoraði 34 stig fyrir
Fjölni og Dagný Lísa Davíðsdóttir
18.
Breiðablik vann mjög öruggan sig-
ur á fyrstudeildarliði Hamars/Þórs,
101:75, í Smáranum. Anna Soffía
Lárusdóttir skoraði 19 stig fyrir
Breiðablik og Telma Lind Ásgeirs-
dóttir 18 en Astaja Tyghter skoraði
30 stig fyrir Sunnlendinga.
Loks hafði Snæfell betur gegn
Stjörnunni í slag fyrstudeildarlið-
anna í Garðabæ, 67:61. Sianni Martin
skoraði 19 stig fyrir Snæfell og Re-
bekka Rán Karlsdóttir 18 en Diljá
Ögn Lárusdóttir skoraði 19 stig fyrir
Stjörnuna.
Línur að skýr-
ast í bikarnum
- Tvö lið skera sig úr kvennamegin
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Barátta Luciano Massarelli og Triston Simpson eigast við í hörkuleik Þórs
frá Þorlákshöfn og ÍR í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í gærkvöldi.
Íslandsmeistarar KA/Þórs fengu
sinn annan sjö marka skell í röð í
Olísdeild kvenna í handbolta á laug-
ardag. Norðankonur heimsóttu þá
Hauka og sáu aldrei til sólar. Hauk-
ar náðu tólf marka forskoti um
tíma en lokatölur urðu 34:27.
Haukaliðið sýndi hinsvegar að
það gæti farið langt í vetur og er
búið að koma sér vel fyrir í fjórða
sætinu. Sara Odden skoraði átta
mörk fyrir Hauka og Elín Klara
Þorkelsdóttir sjö og Annika Fríð-
heim Petersen varði 17 skot.
Martha Hermannsdóttir skoraði sjö
mörk fyrir KA/Þór.
Fram náði eins stigs forskoti á
Val á toppi deildarinnar með stór-
sigri gegn HK í Kórnum, 33:20.
Karen Knútsdóttir skoraði 7 mörk
fyrir Fram, Perla Ruth Alberts-
dóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir
6 hvor, en Jóhanna Margrét Sigurð-
ardóttir skoraði 8 mörk fyrir HK.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Kórinn Karen Knútsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fram í leiknum á laug-
ardag og fer hér framhjá HK-ingnum Elnu Ólöfu Guðjónsdóttur.
Annar skellur meistar-
anna og Fram á toppinn
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Vítaspyrnur réðu úrslitum í leikj-
um þriggja efstu liða ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu á laug-
ardaginn, og að auki hjá Man-
chester United, en þessi fjögur lið
unnu öll nauma eins marks sigra.
_ Raheem Sterling skoraði sigur-
mark Manchester City gegn Wolv-
es, 1:0, úr vítaspyrnu á 66. mínútu.
_ Mohamed Salah skoraði sigur-
mark Liverpool gegn Aston Villa,
1:0, af vítapunktinum eftir að brot-
ið var á honum á 67. mínútu.
_ Jorginho skoraði úr tveimur
vítaspyrnum og sigurmarkið í upp-
bótartíma þegar Chelsea vann
nauman sigur á Leeds, 3:2.
_ Cristiano Ronaldo krækti í
vítaspyrnu og skoraði úr henni sig-
urmark Manchester United í Nor-
wich, 1:0, á 75. mínútu.
Staðan í toppbaráttunni breyttist
því ekkert, nema hvað Manchester
City, Liverpool og Chelsea fjar-
lægðust enn hin liðin eftir að West
Ham náði aðeins 0:0-jafntefli gegn
Jóhanni Berg Guðmundssyni og fé-
lögum í Burnley í gær.
Steven Gerrard, fyrirliða Liver-
pool til langs tíma, var vel fagnað á
Anfield þegar hann mætti þangað
sem knattspyrnustjóri Aston Villa.
_ Youri Tielemans skoraði tvö
mörk fyrir Leicester í stórsigri á
Newcastle í gær, 4:0. Staða New-
castle á botninum versnar enn, liðið
hefur unnið einn leik af sextán, og
forríkir nýir eigendur hafa um nóg
að hugsa hvað varðar mögulegan
liðsauka í janúar.
Toppliðin unnu öll
með vítaspyrnum
AFP
Tvö Jorginho fagnar eftir að hafa
tryggt Chelsea sigur á Leeds
_ Keflvíkingurinn Elías Már Óm-
arsson var í aðalhlutverki hjá Nimes í
fyrrakvöld þegar liðið vann Nancy 2:1
í frönsku B-deildinni í knattspyrnu.
Elías skoraði fyrra mark Nimes og
lagði upp það seinna en honum var
skipt af velli á 84. mínútu. Lið hans,
sem féll úr efstu deild í vor, er um
miðja B-deildina. Elías skoraði þarna
sitt þriðja mark fyrir liðið í deildinni á
tímabilinu.
_ Hollendingurinn Max Verstappen á
Red Bull varð í gær heimsmeistari í
Formúlu 1 í fyrsta
skipti eftir ótrú-
lega baráttu við
sjöfalda heims-
meistarann Lewis
Hamilton á
Mercedes í Abú
Dabí-kappakstr-
inum, lokamóti
tímabilsins. Ver-
stappen hóf kappaksturinn fremstur
eftir sigur í tímatökunni á laugardag
en Hamilton var ekki lengi að taka
fram úr Hollendingnum strax í upp-
hafi. Hélt hann forystunni fram að
síðasta hring, þegar Verstappen tók
fram úr og tryggði sér sigurinn.
Lið Mercedes lagði fram tvenn mót-
mæli en þeim var hvorum tveggja
vísað frá og Verstappen var þar með
staðfestur heimsmeistari fjórum tím-
um eftir að kappakstrinum lauk í
gær.
_ Kvennalið Þróttar úr Reykjavík í
knattspyrnu fékk í gær liðsauka fyrir
næsta tímabil. Bandaríski framherj-
inn Danielle Marcano samdi þá við
Þrótt en hún lék með HK í 1. deild-
inni á síðasta tímabili og skoraði þar
sex mörk í tólf leikjum.
_ Enski knattspyrnumaðurinn Luke
Rae, sem hefur leikið með Vestra og
Tindastóli undanfarin tvö ár, hefur
gert tveggja ára samning við fyrstu-
deildarfélag Gróttu.
_ Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari
toppliðsins Gummersbach í þýsku B-
deildinni í hand-
knattleik, hefur
fengið horna-
manninn Óðin Þór
Ríkharðsson lán-
aðan frá KA til
áramóta. Hand-
bolti.is greindi frá
þessu. Óðinn, sem
er næst-
markahæsti leikmaður Olís-
deildarinnar í vetur, missir af einum
leik með KA en getur spilað þrjá leiki
með Gummersbach.
_ Sigrún Árnadóttir skoraði þrennu
fyrir Fjölni í gær þegar liðið vann
Skautafélag Akureyrar 5:3 á Íslands-
móti kvenna í íshokkíi. Fjölniskonur
fylgdu eftir 4:1-sigri í leik liðanna á
Eitt
ogannað