Morgunblaðið - 29.12.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 29.12.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Árið sem senn er liðið helgaðist að miklu leyti af þingkosningum og viðbúið að fyrri hluti hins næsta hverfist um sveitarstjórnarkosn- ingar. Þar verða verkaskipting og fjármögnun efst á baugi. Þetta kemur fram í viðtali í Dag- málum við Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, og Áslaugu Huldu Jónsdóttur, bæj- arfulltrúa sama flokks í Garðabæ. Í viðtalinu er farið yfir liðið ár á stjórnmálasviðinu og bollalagt um þróunina á komandi ári. Þau telja að faraldurinn verði áfram í deiglu þó hann dvíni vonandi. Miklu skipti að takast á við margvíslegar langtíma- afleiðingar hans, ekki síst hinar and- legu. Dagmál eru streymi Morgun- blaðsins, sem er opið öllum áskrif- endum. Morgunblaðið/Hallur Áramót Eyþór Arnalds og Áslaug Hulda Jónsdóttir líta fram og aftur. Andlegar afleiðingar veirunnar aðkallandi - Stjórnmál um áramót í Dagmálum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég hlakka til að takast á við öll þau tækifæri sem munu koma með líðandi tímum og ætla að halda áfram að leggja mig fram,“ skrifar Katrín Björk Guðjónsdóttir, 28 ára Flateyringur, á blogg sitt. Katrín Björk fékk tvær heilablæðingar og einn blóðtappa fyrir nokkrum árum og bloggar um bataferlið á katrin- bjorkgudjons.com. Katrín Björk segir frá lífinu á tímum kórónuveirunnar en hún og foreldrar hennar hafi á þessum tveimur árum verið að mestu ein í húsi þeirra á Flateyri. Henni hafi ekki líkað það illa. Segir þó að fyrir tveimur árum hafi hún þráð heitt að flytjast í burtu. Henni hafi fund- ist hún vera að missa af svo mörgu enda flestar vinkonurnar í Reykja- vík. Covid hafi aftur á móti sýnt henni aftur kostina sem fylgja því að búa á litlum stað þar sem í lagi er að eiga sinn hóp og fá hann í heimsókn. Fyrir rúmu ári fékk Katrín Björk sérhannað hjól og segist síðan þá hafa hjólað frá sér allt eirðarleysi. „Stærsti sigurinn sem ég hef unnið á þessum tíma er samt sá að ég gaf iðjuþjálfun annan séns og það varð að verkefni sem finnskur nemandi í iðjuþjálfun er að vinna að. Hægri höndin, sem alltaf hefur verið kreppt og einskis nýt, opnaðist loksins og ég get núna hrafna- sparkað nafnið mitt á blað. Ég fór líka að mála með alkóhólbleki og ég sver að skynjun mín í vinstri hönd- inni er betri. Það er gott að finna kraftinn koma aftur í líkamann og að skynja hvernig hann eykst dag frá degi,“ skrifar hún. Katrín Björk var í þættinum „Dagur í lífi“ á Rúv í byrjun mán- aðarins og vakti þátturinn athygli. Hún notar tækifæri til að þakka fyrir allar þær kveðjur og skilaboð sem henni bárust í kjölfarið. „Covid sýndi mér kostina við að búa á litlum stað“ - Katrín Björk Guðjónsdóttir bloggar um bataferli eftir þrefalt heilablóðfall Frelsi Katrín Björk Guðjónsdóttir hjólar sig frá eirðarleysinu. Beð Katrín Björk er byrjuð að mála myndir með alkóhólbleki. Enn hafa ekki náðst samningar milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga um svonefnda skilavegi en lögum samkvæmt verður það á ábyrgð sveitarfélaga en ekki Vegagerðar- innar að annast veghald skilaveg- anna eftir áramótin. Ákveðið var árið 2007 með laga- setningu að ákveðnir stofnvegir í þéttbýli teldust ekki til þjóðvega í umsjá Vegagerðarinnar heldur yrðu sveitarfélögin veghaldarar þeirra. Síðar var svo ákveðið að Vegagerðin annaðist veghald þessara vega til ársloka 2019 á meðan samið yrði við sveitarfélögin um yfirfærsluna en samkomulag náðist ekki. Hefur fresturinn tvisvar verið framlengd- ur um eitt ár en rennur út nú um áramótin. Að sögn Páls Björgvins Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu (SSH), er búið að skil- greina hvaða vegir þetta eru og einnig eru samningar langt komnir um ástand veganna og að tryggt verði fjármagn til að koma þeim í viðunandi stand. Sveitarfélögin vilja hins vegar að fjármagn, sem Vega- gerðin hefur hingað til fengið til að viðhalds og þjónustu renni framveg- is til sveitarfélaganna en á því strandar. Meirihluti fjárlaganefndar Al- þingis fjallaði um málið í framhalds- nefndaráliti um fjárlagafrumvarpið í gær og áréttaði þar mikilvægi þess að samningum ljúki um skil þessara vega en benti jafnframt á að frá og með 1. janúar 2022 sé það sam- kvæmt vegalögum á ábyrgð sveitar- félaga en ekki Vegagerðarinnar að annast veghald skilavega. Í bréfi, sem SSH sendu Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fyrir jól, segir að sú afstaða samtakanna sé skýr að flutningur veganna eigi ekki að hafa í för með sér aukinn rekstr- arkostnað fyrir sveitarfélögin. Ráða megi það af nefndarálitum fjárlaga- nefndar, að samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytinu sé ætlað að leysa úr þessum málum þannig að öruggt sé að fjármagn vegna þjón- ustu umræddra vega verði tryggt frá og með komandi áramótum. Ósamið um skilavegi - Sveitarfélög eiga að taka við rekstri veganna um áramót samkvæmt lögum - Fresturinn tvisvar verið framlengdur Morgunblaðið/Árni Sæberg Skilavegur Sæbraut í Reykjavík er einn af skilgreindum skilavegum. „Mér var í mun að segja söguna á mínum forsendum. Greina frá at- burðum og málum sem ég þekki vel og var þátttakandi í. Frá þessu segi ég alveg án biturðar og málefnalega, en geri mér líka grein fyrir að svona saga verður aldrei sögð og skráð þannig að allir séu sáttir,“ segir Ög- mundur Jónasson, fv. ráðherra og þingmaður, sem hefur sent frá sér sjálfsævisögu. Nefnist hún Rauði þráðurinn og kemur út núna um ára- mótin. Í bókinni fer Ögmundur vítt yfir sviðið og segir frá kynnum sínum af samferðafólki í útvarpi og sjónvarpi, af þingmönnum, samherjum og mót- herjum, og stofnun Vinstri-grænna. Fjallað er ítarlega um deilurnar um Icesave, ESB-umsóknina og fjárfestingar Huangs Nubos hér- lendis. Í kynningu um bókina segir að öll þessi mál hafi komist nærri því að fella ríkisstjórn VG og Samfylk- ingar sem var við völd 2009-2013. Rekur Ögmundur m.a. hvernig hallað hafi undan fæti hjá Vinstri grænum, „ekki síst varðandi kú- vendingu í utanríkismálum,“ segir í kynningu forlagsins Sæmundar. „Það verða aldrei allir sáttir“ - Ögmundur Jónasson sendir frá sér sjálfsævisögu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ævisaga Ögmundur Jónasson með bókina glóðvolga úr prentun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.