Morgunblaðið - 29.12.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.12.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þrír valkostir eru taldir geta bætt af- hendingaröryggi raforku á Vest- fjörðum álíka mikið. Það eru tvöföld- un Vesturlínu, aukin orkuöflun með tengipunkti í Ísafjarðardjúpi og virkjun í Vatnsfirði. Ljóst er þó að ef ekki verður virkjað á Vestfjörðum á næstu árum þarf Landsnet að leggja nýja Vesturlínu fyrir árið 2030, hvernig svo sem sá kostur kemur út í samanburði við virkjanakostina. Landsnet hefur birt skýrslu sem verkfræðistofan Efla hefur gert um leiðir til að bæta afhendingaröryggi rafmagns á Vestfjörðum. Í matinu er ekki tekið tillit til efnahagslegra, um- hverfislegra eða samfélagslegra þátta. Skýrslan er unnin í framhaldi af skýrslu um sama efni sem gefin var út fyrir rúmum tveimur árum. Vestfirðir eru tengdir við megin- flutningskerfi landsins með einni línu, Vesturlínu sem liggur úr Hrútafirði að Mjólkárvirkjun. Hún þjónar ekki aðeins Vestfjörðum heldur einnig Dölum. Það hefur slæm áhrif þegar hún bilar vegna þess að ekki er næg orkuvinnsla á svæðinu. Straumleysið er nefnt „ótiltæki“ í skýrslunni. Ástandið hefur verið bætt með auknu varaafli. Niðurstaða skýrslunnar er að þær leiðir sem skoðaðar voru bæti veru- lega afhendingaröryggi, það er að segja leiði til fækkunar straumleys- istilvika og dragi úr skerðingu orku- afhendingar. Tvöfaldanir undirbúnar Verið er að undirbúa lagfæringar á flutningskerfinu innan Vestfjarða. Hringtenging á suðurfjörðum er á þriggja ára framkvæmdaáætlun hjá Landsneti og tvöföldun kerfisins á norðurfjörðum er á kerfisáætlun til tíu ára. Magni Þór Pálsson, verkefn- isstjóri rannsókna hjá Landsneti, segir að til við- bótar þurfi að tryggja næga orku til notkunar á svæðinu, annað hvort með aukinni orkuvinnslu þar eða öruggari tengingu við meginflutningskerfi landsins. Auk tvöföldunar Vesturlínu með lagningu nýrrar línu til Mjólkár eða alla leið í Breiðadal voru skoðuð áhrif aukinnar orkuöflunar með tengi- punkti í Ísafjarðardjúpi og nýrrar virkjunar í Vatnsfirði. Í fyrrnefnda virkjanakostinum er horft til Hval- árvirkjunar eða tveggja virkjana sem verið hafa til skoðunar í Djúpinu, all- ar á vegum einkafyrirtækja. Orkubú Vestfjarða er síðan með Vatnsfjarð- arvirkjun í athugun. Allir kostirnir myndu bæta afhendingaröryggið svipað mikið. Magni rifjar upp á að Landsnet hafi vakið athygli á að aukin orku- vinnsla á Vestfjörðum sé góð fyrir landshlutann. Hún styrki kerfið, auki spennugæði og auðveldi rekstur þess. Ef 20 megavatta afl bætist við væri hægt að reka kerfið þótt tenging við meginflutningskerfi landsins rofnaði. Í samræmi við stefnuna Það sé hins vegar ekki á valdi Landsnets að ákveða hvar virkjað er eða hvenær og því hafi tvöföldun Vesturlínu verið sett inn í kerf- isáætlun Landsnets til næstu tíu ára. Það sé liður í því að fullnægja stefnu stjórnvalda um að fyrir árið 2030 eigi allir afhendingarstaðir í meginflutn- ingskerfinu að hafa tvöfalda teng- ingu. Segir Magni að þessir kostir hafi allir sína kosti og galla. Virkjanir hafi áhrif á umhverfið með lónum og flutningsmannvirkjun en bygging nýrrar 150-160 kílómetra langrar Vesturlínu hafi það einnig. Ítrekar Magni að þessi greining miði ein- göngu að því að meta möguleika til að bæta afhendingaröryggi. Til að leggja mat á það hvaða kostur sé bestur þjóðhagslega þurfi að líta breiðara yfir sviðið. Landsnet þurfi til dæmis alltaf að skoða hvaða kostir séu hagkvæmastir því framkvæmdir fyrirtækisins séu fjármagnaðir með gjaldskrá notenda. Óvissa er með hvort og þá hvar virkjað verður á Vestfjörðum á næstu árum og segir Magni að þau áform þurfi að vera handföst til þess að Landsnet geti sett þau inn í kerfisáætlun, eftir at- vikum í stað tvöföldunar Vesturlínu sem sé mikil og dýr framkvæmd og taki nokkur ár að undirbúa. - Aukin orkuöflun með virkjunum með tengipunkti í Djúpinu eða virkjun í Vatnsfirði myndi bæta mjög raforkukerfið á Vestfjörðum - Hinn kosturinn er að leggja nýja 160 km langa Vesturlínu Magni Þór Pálsson Þrír kostir bæta öryggið álíka mikið Leiðir til að bæta afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum Tiltæki – breyting frá grunnkerfi (%) Virkjun Tengipunktur / Ný raflína 20MW S- og N-hringur, auk tvöföldunar á Vesturlínu frá Hrútatungu að Mjólká S- og N-hringur auk virkjunar í Vatnsfirði S- og N-hringur auk virkjunar í Djúpi og tvöf. línu frá Kollafirði að Mjólká +73% +73% +75% +75% +80% +91% Bolungarvík Ísafjörður Breiðdalur Mjólká Bíldudalur Keldeyri Kollafjörður Geiradalur Hvalárvirkjun +90% +90% +93% +98% +88% +46% Bolungarvík Ísafjörður Breið- dalur Mjólká Bíldudalur Keldeyri Kollafjörður Geiradalur Hvalárvirkjun +90% +90%+93% +98% +87% +88% Bolungarvík Ísafjörður Breið- dalur Mjólká Bíldudalur Keldeyri Kollafjörður Geiradalur Hvalárvirkjun 20MW Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Framkvæmdir við smíði um 1.100 fermetra viðbyggingar við flug- stöðina á Akureyrarflugvelli hefj- ast í mars næstkomandi og gerir verkáætlun ráð fyrir að þeim verði lokið í byrjun ágúst árið 2023. Skrifað var undir samning um smíði byggingarinnar á Akureyrarflugvelli í gær, en það gerðu þau Sigrún Björk Jakobs- dóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla, og Örn Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Hyrnu. Samningsupphæðin nemur 810,5 milljónum króna. Nýtt innritunarsvæði Verkinu er skipt niður í þrjá áfanga og snýst sá fyrsti um smíði nýrrar viðbyggingar við flugstöð- ina. Í öðrum áfanga verður núver- andi komusvæði flugstöðvarinnar endurbyggt, en þar er gert ráð fyrir að verði nýtt innritunar- svæði. Nýtt skyggni og töskubíla- skýli verður einnig byggt með til- heyrandi malbikun. Í þriðja og síðasta áfanganum verður núver- andi innritunarsvæði endurbyggt sem og skrifstofuhluti þeirrar byggingar. „Það er afar ánægjulegt að taka þetta næsta og mikilvæga skref í uppbyggingu Akureyrarflug- vallar,“ segir Sigrún Björk Jak- obsdóttir hjá Isavia við Morg- unblaðið. „Hér er um stórt verkefni að ræða, nánar tiltekið þessi 1.100 fermetra viðbygging við flugstöð- ina og um leið bætt aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhöfn og veitinga- stað. Þjónustan við farþega og flugfélög batnar til muna og við hlökkum til að taka þessa breyttu og bættu flugstöð í gagnið síðsum- ars 2023,“ segir Sigrún enn- fremur. „Við hjá Hyrnu erum afar spennt að hefjast handa við þetta mikilvæga verkefni,“ segir Örn Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Byggingafélagsins Hyrnu. „Verk- áætlun liggur fyrir og okkar fólk er reiðubúið að setja allt í gang.“ Örn lætur af störfum um ára- mót eftir rúmlega fimm áratuga starf, félagið Húsheild í Mývatns- sveit hefur keypt fyrirtækið. Und- irritun samningsins er eitt síðasta verkefni hans fyrir Hyrnu. Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Isavia, og Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Hyrnu, undirrita verksamninginn í gær. Samið um viðbyggingu við flugstöðina á Akureyri - Ný 1.100 fer- metra viðbygging - Endurbætur á eldri byggingum Söfnum í jólasjóðinn hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Jólasöfnun Guð blessi ykkur öll Fjölskylduhjálp Íslands hefur aðstoðað 2400 heimili með matvæli og fl. í desember 2021 og er enn að með ómetanlegum stuðningi landsmanna og fyrirtækja í landinu. Stuðningur Kaupfélags Skagfirðinga gerði gæfumuninn annað árið í röð. Við þökkum ykkur af heilum hug fyrir hönd samferðafólks okkar sem minna mega sín í okkar þjóðfélagi. Með kærleikskveðjum, Stjórn og sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar Íslands 2400 heimili fengu mataraðstoð í desember 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.