Morgunblaðið - 29.12.2021, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021
England
Crystal Palace – Norwich........................ 3:0
Southampton – Tottenham...................... 1:1
Watford – West Ham ............................... 1:4
Leicester – Liverpool............................... 1:0
Staðan:
Manch. City 19 15 2 2 50:12 47
Liverpool 19 12 5 2 50:16 41
Chelsea 19 12 5 2 42:13 41
Arsenal 19 11 2 6 32:23 35
West Ham 19 9 4 6 34:25 31
Tottenham 17 9 3 5 22:20 30
Manch. Utd 17 8 4 5 27:25 28
Wolves 18 7 4 7 13:14 25
Leicester 18 7 4 7 31:33 25
Crystal Palace 19 5 8 6 27:27 23
Brighton 17 5 8 4 16:17 23
Aston Villa 18 7 1 10 24:28 22
Southampton 19 4 9 6 20:29 21
Brentford 17 5 5 7 21:24 20
Everton 17 5 4 8 21:29 19
Leeds 18 3 7 8 18:36 16
Watford 17 4 1 12 22:35 13
Burnley 15 1 8 6 14:21 11
Newcastle 19 1 8 10 19:42 11
Norwich 19 2 4 13 8:42 10
4.$--3795.$
Vináttulandsleikir karla
Holland – Japan................................... 30:33
- Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
- Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
Belgía – Sádi-Arabía ............................ 24:25
Pólland – Túnis ..................................... 26:30
Egyptaland – Katar ............................. 26:23
Lettland – Litháen ............................... 31:31
%$.62)0-#
Subway-deild karla
Stjarnan – Breiðablik....................... 117:113
Staðan:
Keflavík 10 9 1 897:814 18
Þór Þ. 11 8 3 1063:964 16
Grindavík 11 7 4 915:899 14
Tindastóll 10 6 4 852:868 12
Njarðvík 9 6 3 860:759 12
Valur 10 6 4 800:792 12
KR 10 5 5 907:920 10
Stjarnan 10 5 5 896:879 10
Breiðablik 11 4 7 1162:1148 8
ÍR 10 3 7 869:931 6
Vestri 10 2 8 796:871 4
Þór Ak. 10 0 10 738:910 0
Spánn
Zaragoza – Baskonia .......................... 96:79
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 5 stig og
tók 8 fráköst og varði tvö skot á 14 mín-
útum með Zaragoza.
NBA-deildin
Charlotte – Houston........................... 123:99
Atlanta – Chicago ............................. 118:130
Minnesota – Boston.......................... 108:103
San Antonio – Utah .......................... 104:110
Phoenix – Memphis .......................... 113:114
Portland – Dallas.............................. 117:132
LA Clippers – Brooklyn................... 108:124
Efst í Vesturdeild:
Golden State 27/6, Phoenix 26/7, Utah 24/9,
Memphis 21/14, LA Clippers 17/17, Denver
16/16, Dallas 16/17, Minnesota 16/17, LA
Lakers 16/18, San Antonio 14/19.
Efst í Austurdeild:
Brooklyn 23/9, Chicago 21/10, Milwaukee
22/13, Miami 21/13, Cleveland 20/13, Phila-
delphia 17/16, Washington 17/16, Charlotte
18/17, Boston 16/18, Toronto 14/16.
4"5'*2)0-#
Tveir af landsliðsmönnum Íslands í
handknattleik karla sem valdir hafa
verið í endanlegan 20 manna hóp
fyrir Evrópukeppnina í næsta mán-
uði eru smitaðir af kórónuveirunni.
Róbert Geir Gíslason, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, staðfesti þetta
við Vísi í gær en nafngreindi ekki þá
sem eiga í hlut, nema hvað hann
staðfesti að Aron Pálmarsson væri
ekki annar þeirra.
Lokaundirbúningur íslenska liðs-
ins fyrir EM hefst eftir fjóra daga, á
sunnudaginn kemur, þannig að
viðbúið er að þeir smituðu missi af
æfingum liðsins fyrstu dagana.
Liðið flýgur til Ungverjalands 11.
janúar eftir að hafa mætt Litháen í
tveimur vináttulandsleikjum hér á
landi, 7. og 9. janúar.
Leikir Íslands fara fram í Búda-
pest þar sem liðið mætir Portúgal
14. janúar, Hollandi 16. janúar og
Ungverjalandi 18. janúar, en tvö lið-
anna halda áfram keppni.
Tveir í EM-
hópi Íslands
eru smitaðir
ÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Tveimur þeirra sem höfnuðu á meðal
tíu efstu í kjörinu á Íþróttamanni ár-
ins árið 2021 hefur hlotnast sá heiður
að hljóta sæmdarheitið. Handknatt-
leiksmaðurinn Aron Pálmarsson
varð fyrir valinu árið 2012 og kraft-
lyftingamaðurinn Júlían J. K. Jó-
hannsson árið 2019.
Kjöri á íþróttamanni ársins verður
lýst í kvöld og er þetta sextugasta og
sjötta árið í röð sem Samtök íþrótta-
fréttamanna standa fyrir kjörinu.
Samtökin komu kjörinu fyrir árið
1956 eða á sama ári og þau voru
stofnuð af þeim Atla Steinarssyni,
Frímanni Helgasyni, Halli Sím-
onarsyni og Sigurði Sigurðssyni.
Þeir kusu Vilhjálm Einarsson fyrst-
an Íþróttamann ársins, eftir að hann
hlaut silfurverðlaunin í þrístökki á
Ólympíuleikunum í Melbourne 1956.
Vilhjálmur var kjörinn fimm sinnum
fyrstu sex árin og hefur oftast allra
hlotið þessa viðurkenningu.
Eftirtaldir íþróttamenn höfnuðu á
meðal tíu efstu í kjörinu: Aron Pálm-
arsson handknattleiksmaður, Bjarki
Már Elísson handknattleiksmaður,
Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyft-
ingamaður, Kári Árnason knatt-
spyrnumaður, Kolbrún Þöll Þorra-
dóttir, Kristín Þórhallsdóttir
kraftlyftingakona, Martin Her-
mannsson körfuknattleiksmaður,
Ómar Ingi Magnússon handknatt-
leiksmaður, Rut Arnfjörð Jónsdóttir
handknattleikskona og Sveindís
Jane Jónsdóttir knattspyrnukona.
Með sama sniði og áður
Félagar í samtökum íþróttafrétta-
manna kusu fyrr í mánuðinum þar
sem þau settu íþróttablað á blað í
sæti frá 1 og upp í 10. Einnig þjálfara
í sæti 1 og upp í 3 og lið í sæti 1 og
upp í 3. Á Þorláksmessu var greint
frá því hverjir hefðu hafnað í tíu
efstu sætunum í kjörinu á íþrótta-
manni ársins og þremur efstu sæt-
unum varðandi þjálfara ársins og lið
ársins.
Þess misskilnings gætir stundum
hjá almenningi að á Þorláksmessu
séu birtar tilnefningar og að svo
búnu sé kosið á milli þeirra sem náðu
inn á listana sem birtir eru á Þor-
láksmessu. Svo er ekki því einfald-
lega er verið að greina frá því hverijr
höfnuðu í efstu sætunum án þess að
gefa upp í hvar þau urðu í röðinni.
Júlían og Martin
á svipuðu róli
Á listanum yfir íþróttafólkið eru
nú sex einstaklingar sem eru í fyrsta
skipti á meðal tíu efstu í kjörinu.
Kári, Kolbrún, Kristín, Ómar, Rut og
Sveindís. Er það nokkuð merkilegt
en Kári og Rut eru til að mynda á
fertugsaldri.
Bjarki er á listanum annað árið í
röð en hafði ekki verið á meðal tíu
efstu fram að því. Júlían og Martin
eru í fimmta skiptið á listanum frá
árinu 2016. Þeir haldast í hendur
kapparnir ef svo má segja. Þeir voru
á listanum í fyrsta skipti árið 2016 en
hlutu ekki náð fyrir augum íþrótta-
fréttamanna árið 2017 en hafa verið
á listanum síðan. Martin hafnaði í
öðru sæti í kjörinu síðustu tvö ár og
Júlían varð í öðru sæti árið 2018 eða
ári áður en hann varð fyrir valinu.
Aron Pálmarsson er á listanum í
níunda skipti en hann var í fyrsta
skipti á meðal tíu efstu árið 2010.
Hann varð fyrir valinu árið 2012 en
einungis þrívegis frá árinu 2010 hef-
ur Aron ekki verið á meðal tíu efstu.
Hann hafnaði í þriðja sæti í kjörinu í
fyrra.
Heiðruð í tíunda sinn
Þjálfararnir þrír sem höfnuðu í
efstu sætunum hafa aldrei orðið fyrir
valinu. Rétt er að taka fram að ekki
er sama hefðin fyrir því að kjósa
þjálfara ársins og lið ársins eins og
íþróttamann ársins. Þjálfarar og lið
eru nú heiðruð í tíunda sinn.
Arnar Gunnlaugsson knatt-
spyrnuþjálfari, Vésteinn Haf-
steinsson frjálsíþróttaþjálfari og
Þórir Hergeirsson handknattleiks-
þjálfari eru á meðal þriggja efstu í
kjörinu á þjálfara ársins.
Liðin þrjú sem höfnuðu í þremur
efstu sætunum eru í stafrófsröð:
Kvennalandsliðið í hópfimleikum,
kvennalið KA/Þórs í handknattleik
og karlalið Víkings úr Reykjavík í
knattspyrnu.
Sex eru á lista
í fyrsta sinn
- Kjöri íþróttafréttamanna lýst í kvöld
- Aron meðal tíu efstu í níunda sinn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
2005 Eiður Smári Guðjohnsen tók síðastur við upprunalega verðlauna-
gripnum sem þá var afhentur í 50. skipti. Atli Steinarsson, einn af stofn-
endum Samtaka íþróttafréttamanna, og Vilhjálmur Einarsson, sem varð
íþróttamaður ársins fyrstur og fimm sinnum alls, afhentu Eiði styttuna.
Knattspyrnufélagið Barcelona, sem
hefur verið afar illa statt fjárhags-
lega síðustu misserin, keypti leik-
mann fyrir átta milljarða íslenskra
króna í gær. Félagið gekk þá frá
kaupum á spænska landsliðsmann-
inum Ferran Torres frá Manchest-
er City fyrir 46,3 milljónir punda.
Torres var því aðeins sextán mán-
uði í röðum Manchester City sem
keypti hann af Valencia fyrir 20,8
milljónir punda í ágúst 2020. Tor-
res, sem er 21 árs, hefur skorað 12
mörk í fyrstu 22 landsleikjum sín-
um fyrir Spán.
Góður hagnaður
af Ferran Torres
AFP
Farinn Ferran Torres lék aðeins
með Manchester City í 16 mánuði.
Stjarnan vann upp átján stiga for-
skot Breiðabliks á lokakaflanum í
gærkvöld þegar Garðbæingar unnu
granna sína úr Kópavogi, 117:113, í
úrvalsdeild karla í körfubolta í Ás-
garði. Blikar voru yfir, 98:80, þegar
átta mínútur voru eftir en Stjarnan
skoraði síðustu níu stig leiksins.
Robert Turner átti magnaðan
leik með Stjörnunni en hann skor-
aði 43 stig og tók 11 fráköst. Shawn
Hopkins skoraði 25 stig. Everage
Lee Richardson skoraði 33 stig fyr-
ir Breiðablik og Hilmar Pétursson
27.
Stjarnan vann
upp gott forskot
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
43 Robert Turner skýtur að körfu
Blika í leiknum í gærkvöld.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Karlalandslið Íslands í knattspyrnu
mætir tveimur nýjum þjóðum dag-
ana 12. og 15. janúar þegar það
dvelur við æfingar og keppni í
Antalya í Tyrklandi. Leiknir verða
vináttulandsleikir gegn Úganda og
Suður-Kóreu. Ísland hefur aldrei
mætt Úganda í neinum aldursflokki
en kvennalandsliðið hefur tvisvar
leikið gegn Suður-Kóreu og 15 ára
landslið pilta einu sinni.
Íslenska liðið verður fyrst og
fremst skipað leikmönnum frá lið-
um á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð,
og mögulega öðrum löndum þar
sem vetrarfrí er í janúar, svo sem
Bandaríkjunum og Danmörku.
Leikið er utan alþjóðlegra leikdaga.
Úganda er í 82. sæti heimslista
FIFA, tuttugu sætum neðar en Ís-
land, og í 16. sæti innan Afríku. Lið
Úganda varð í öðru sæti í sínum
riðli í 2. umferð undankeppni HM í
Afríku á þessu ári, á eftir Malí, og
komst ekki í umspilið um sæti á
HM. Liðið er greinilega varn-
arsinnað en markatala þess var 3:2
í sex leikjum gegn Malí, Kenía og
Rúanda.
Úgandamenn í Eyjum
Íslendingar þekkja fyrst og
fremst til knattspyrnunnar í Úg-
anda vegna nokkurra leikmanna
þaðan sem hafa spilað með ÍBV.
Tonny Mawejje lék með ÍBV
2009-2013, Val 2014 og Þrótti 2015-
2016 en hann er þriðji leikjahæsti
landsliðsmaður Úganda með 86
leiki. Hann spilar enn í Úganda.
Andy Mwesigwa (kallaður Siggi)
sem lék með ÍBV 2006-2009, er sá
sjöundi hæsti með 75 landsleiki.
Hann lagði skóna á hilluna fyrir
nokkrum árum.
Þá lék Abel Dhaira, markvörður
ÍBV, 12 landsleiki fyrir Úganda en
hann lést úr krabbameini árið 2016,
aðeins 28 ára gamall.
Meirihluti landsliðsmanna Úg-
anda leikur í heimalandinu en
nokkrir í Evrópu og öðrum Afr-
íkuríkjum.
Suður-Kórea á leið á HM
Suður-Kórea er í 33. sæti
heimslistans og í þriðja sæti í As-
íu, á eftir Íran og Japan. Liðið er
ósigrað í sex leikjum í úrslitariðli
undankeppni HM og er nær
öruggt með sæti í lokakeppninni í
Katar. Það verður þá níunda
lokakeppnin í röð hjá Suður-
Kóreu sem komst í undanúrslit
HM árið 2002 og í 16-liða úrslit
árið 2010. Liðið mætir Íslandi og
Moldóvu í Antalya og býr sig þar
undir tvo leiki í undankeppni HM,
gegn Líbanon og Sýrlandi, sem
fram fara 27. janúar og 1. febr-
úar.
Í hópnum gegn Íslandi sem
þegar hefur verið tilkynntur
verða leikmenn suðurkóreskra
liða og einn sem spilar í Japan en
nokkrir lykilmanna liðsins eru
þar á meðal. Hinsvegar vantar
helstu stjörnunar eins og Son
Heung-min, leikmann Tottenham,
Hwang Hee-chan frá Wolves og
aðra sem spila m.a. í Þýskalandi,
á Spáni og í Frakklandi.
Nýir mótherjar bíða Íslands í Antalya
- Karlalandsliðið mætir Úganda og Suður-Kóreu í vináttulandsleikjum í Tyrklandi í janúar
Ljósmynd/Robert Spasovski
Þjálfari Arnar Þór Viðarsson byrj-
ar undirbúninginn í Antalya.