Morgunblaðið - 29.12.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 29.12.2021, Síða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021 Tove „Leikstjórinn, Zaida Bergroth, nýtir sér kvik- myndaformið til fullnustu til þess að segja sögu þessarar merku konu og notar ýmsar leiðir til þess miðla skilaboðum óbeint til áhorf- enda.“ JGH Minari „Minari er vel heppnuð og mannleg kvikmynd sem dregur upp sannferðuga mynd af sam- skiptum innan fjölskyldna og flóknum tengslum hennar við umhverfið. Þetta er mynd sem kvikmyndaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.“ JGH Sound of Metal „Hljóðhönnun myndarinnar færir áhorfand- ann á afburða máta inn í hugarheim Rubens, og er það í sjálfu sér næg ástæða til að kynna sér verkið …“ GR Verdens verste menneske „… fyrirtaks rómantísk gamanmynd sem er ekki síður mynd af ungmennum nútímans og þeim þrautum sem sú kynslóð þarf að takast á við.“ JGH No Time To Die „Að öllu samanlögðu er þetta stórgóður endir á fimm mynda Bond-syrpu Craigs og verður hans sannarlega saknað.“ HSS Promising Young Woman „Stundum er Efnileg, ung kona spennandi, stundum spaugileg og stundum svo óþægileg að manni líður nánast illa. En umfram allt er hún alltaf áhuga- og umhugsunarverð.“ HSS Summer of Soul „Sálarsumar vegsamar og varðveitir sögulegt augnablik – og er veisla fyrir áhugamenn um bandaríska sögu og tónlist tuttugustu aldar. Óskandi er að tónleikarnir komi einnig út í lengri og samfelldri mynd.“ GR Power of the Dog „Phil er fullkomið dæmi um það sem hefur oft verið kallað eitruð eða neikvæð karlmennska. Hann reynir í sífellu að sanna að hann sé harð- asti og um leið grófasti leiðtoginn í úlfaflokki kúrekanna. “ JGH Soul „Tónlistaratriðin eru mjög vel kvikuð og út- færð, djasstónlistin vönduð og ekki annað að sjá en líkt hafi verið eftir hljóðfæraleik eins ná- kvæmlega og kostur er.“ HSS Dýrið „… skemmtilegur darraðardans og tekst að búa til söguheim þar sem hinu fáránlega er blandað við þjóðsagnaminni og bíóhefð, og út- koman er í senn spennandi og fyndin.“ GR Eftirfarandi kvikmyndir komust líka á lista yfir þær bestu sem rýnt var í á árinu: My Octopus Teacher, Birta, Candyman, Hálfur Álfur, The White Tiger, Titane og Last and First Men. Gagnrýnendur eru Helgi Snær Sigurðsson (HSS), Gunnar Ragnarsson (GR) og Jóna Gréta Hilmarsdóttir (JGH). Minari Vel heppnuð og mannleg kvikmynd. Kvikmyndir ársins Kvikmyndaárið 2021 var líflegra en árið á undan og hátt í 70 kvik- myndir voru gagnrýndar í Morgunblaðinu. Hér eru tíu af þeim bestu nefndar, allar frumsýndar á Íslandi á árinu sem er að líða. 007 Daniel Craig kvaddi hlutverk Bonds í No Time To Die. Efnileg Carey Mulligan í Promising Young Woman. Tove Úr kvikmyndinni um Tove Jansson, skapara Múmínálfanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.