Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 28
Fjöldi dagblaða og tímarita hefur birt lista sína yfir
bestu kvikmyndir ársins. Hjá Time er The Power of the
Dog í leikstjórn Jane Campion talin best, því næst
koma Verdens verste menneske í leikstjórn Joachims
Triers og Summer og Soul í leikstjórn Questlove. Hjá
Politiken var The Power of the Dog valin best og því
næst komu Titane í leikstjórn Juliu Ducournau, Nomad-
land í leikstjórn Chloé Zhao og Minari í leikstjórn Lees
Isaacs Chungs. Hjá Variety lenti Spencer í leikstjórn
Pablos Larraíns í efsta sæti og svo komu House of
Gucci í leikstjórn Ridleys Scotts og The Beatles: Get
Back í leikstjórn Peters Jacksons. Í blaði dagsins má
sjá samantekt á þeim kvikmyndum sem gagnrýnendur
Morgunblaðsins töldu bestar þetta árið. »25
Bestu myndir ársins valdar víða
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Steinunn Ólöf Benediktsdóttir
og Arnar Hallgrímur Ágústsson settu
sér það markmið að ganga 150 sinn-
um á Úlfarsfell í ár og náðu því í nóv-
ember. „Áskorunin felst fyrst og
fremst í því að svíkjast ekki um held-
ur fylgja settu marki,“ segir Arnar og
bætir við að það geti verið hægara um
að tala en í að komast.
Stöðugt er rætt um líkamsrækt og
mikilvægi þess að setja sér markmið.
Arnar segir að markmiðasetningu
fylgi ákveðin kvöð og ekki gangi til
lengdar að slá slöku við, því þá hlaðist
syndirnar upp og erfiðara verði við að
eiga. Að sama skapi geti fastir liðir
gert lífið auðveldara og því geti það að
ganga daglega á Úlfarsfellið verið
minnsta mál fyrir suma. Mikilvægt sé
að ætla sér ekki um of. „Við gengum
til dæmis aldrei á Úlfarsfell í júlí. Það
þýddi að við þurftum að leggja harðar
að okkur í kjölfarið. Einn daginn fór-
um við fjórum sinnum upp og niður til
að vinna á móti aðstæðum sem gerðu
það að verkum að við slepptum því að
ganga á fellið.“
Víkka hringinn
Arnar er ættaður frá Steinstúni í
Árneshreppi á Ströndum, bjó þar
fram á unglingsár og hefur farið
þangað í göngur árlega frá því hann
flutti suður 16 ára auk þess sem hann
var í sveitinni á sumrin þar til hann
fór í háskóla. „Fjallaferðir voru þá að-
allega farnar til þess að smala og
finna kindur en þegar ég var 12 ára
byrjaði ég að ganga til rjúpna með
eldri bræðrum mínum og við ásamt
frænda okkar höfum gert það á
hverju hausti síðan.“
Arnar segir að þau Steinunn hafi
snemma tekið sameiginlega ákvörðun
um að hreyfa sig reglulega. Þau hafi
byrjað að ganga í Grafarvoginum, þar
sem þau búa, síðan hafi þau keypt sér
hjól og hjólað reglulega, göngur á Úlf-
arsfell og upp að Steini á Esjunni hafi
bæst við og í fyrra hafi þau farið út
fyrir nærumhverfið og meðal annars
gengið einu sinni á Keili og nokkrum
sinnum á Helgafell við Hafnarfjörð og
Akrafjall. „Göngurnar urðu til þess að
við settum okkur fyrrnefnt markmið
og það var ánægjulegt að ná því.“ Til
hafi staðið að fá vini og vinnufélaga
með í tímamótaferðina en Þórólfur
hafi verið harður á samkomutakmörk-
unum og því hafi þau farið í trúðsgervi
fyrir myndatöku á toppnum.
Vinnustaður hjónanna er í Grafar-
holti og því fer lítill tími í að fara heim
áður en haldið er í göngu, en hreyf-
ingin og útiveran gefa þeim mikið.
Arnar leggur áherslu á að þau hafi
alltaf farið saman í gönguferðirnar.
„Okkur þykir gott að njóta náttúrunn-
ar og hreinsa hugann í leiðinni.“
Í ljósi reynslunnar er markmiðið á
næsta ári að víkka hringinn, fara á
fleiri fell og fjöll með alhliða hreyfingu
að leiðarljósi. „Tilfellið er að þegar
maður setur sér markmið eins og að
ganga x sinnum á Úlfarsfellið snýst
allt um að gera það og því gerir mað-
ur ekki neitt annað.“ Í því sambandi
nefnir hann sem dæmi að hafi þau
vaknað í góðu veðri á laugardags-
morgni og hugsað hvað þau ættu að
gera hafi bara eitt komið til greina; að
ganga á Úlfarsfell!
„Við þurftum að halda dampi og
færum við annað fengjum við ekki
plús í Úlfarsfellskladdann.“ Þess
vegna ætli þau að leggja áherslu á
alla hreyfingu á næsta ári en ekki
hvar og hvenær. „Við höfum verið að
tala um að hreyfa okkur skipulega
200 sinnum á árinu.“
Markmiði ársins náð
- Teygjanlegri áskorun hjá hjónunum á næsta ári
Markmiðinu náð Hjónin Steinunn Ólöf Benediktsdóttir og Arnar Hall-
grímur Ágústsson á toppi Úlfarsfells í 150. ferðinni, uppáklædd!
Ævintýri Steinunn og Arnar á göngu fyrir ofan Meðalfellsvatn.
L augarnar í Rey k javí k
Jóla-
sund
SUNDKORT
ER GÓÐ
JÓL AGJÖF
w w w. i t r. i s
*
Jó
la
sv
ei
nu
m
er
sk
yl
t
að
n
ot
a
vi
ðe
ig
an
d
is
un
d
fö
t
ei
n
s
og
að
ri
r.
Skoðaðu afgreiðslutíma
sundstaða um jól og áramót
á w w w.itr.is
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 363. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Liverpool tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um
enska meistaratitilinn í knattspyrnu í gærkvöld þegar
Ademola Lookman tryggði Leicester 1:0 sigur í viður-
eign liðanna. Manchester City er þá sex stigum á undan
Liverpool og Chelsea og fær tækifæri til að ná tólf stiga
forskoti á næstu dögum. »23
Liverpool tapaði dýrmætum stigum
ÍÞRÓTTIR MENNING