Morgunblaðið - 29.12.2021, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021FRÉTTIR
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR
Mesta hækkun
ICEAIR
+5,14%
1,84
Minnsta hækkun
ICESEA
+0,68%
14,90
S&P 500 NASDAQ
+1,28%
15.853,732
+1,53%
4.798,25
+1,02%
7.372,10
FTSE 100 NIKKEI 225
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
+0,94%
29.069,16
90
70
50
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu)
29.6.'21
1.500
2.000
1.762,8
29.6.'21
79,17
28.12.'21
74,76
28.12.'21
1.816,2
ÍSMARKAÐUR
Ný ísbúð mun opna í lok janúar nk. í
húsnæðinu sem áður hýsti ísbúðina
Skúbb að Bæjarhrauni 2 í Hafn-
arfirði. Þetta staðfestir eigandi
hinnar nýju búðar sem enn hefur
ekki fengið nafn, Kristinn Sigur-
jónsson.
Á dögunum var Skúbb lokað á
staðnum og ætla eigendur fyrir-
tækisins, Biobú, að einbeita sér að
Skúbb á Laugarásvegi 1 ásamt því
að sækja fram í matvörubúðum.
Kristinn segir að undirbúningur
fyrir nýju búðina sé í fullum gangi
en að henni stendur einnig Jóna
Kristín, dóttir Kristins.
„Við verðum með fullt af nýj-
ungum. Markaðurinn hefur ekki séð
nema brotabrot af því sem hægt er
að bjóða upp á í íssölu,“ bætir Krist-
inn við og segir að ekki sé ólíklegt að
notuð verði lífræn mjólk frá Biobú í
ísinn, rétt eins og Skúbb gerir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skúbb verður áfram á Laugarásvegi
1 í Reykjavík.
Skúbb vík-
ur fyrir
nýrri ísbúð Sykurmagn í hverjum seldum lítra
af óáfengum drykkjum hjá Coca
Cola á Íslandi hefur minnkað úr 73,6
grömmum árið 2015 í 52,9 grömm
þetta haust, eða um rúm 28%.
Um er að ræða allar óáfengar
vörur sem fyrirtækið selur fyrir
utan kaffi, þ.e. gosdrykki, vatns-
drykki, íþróttadrykki, orkudrykki
og safa. Hefur magnið jafnt og þétt
dregist saman síðustu ár (sjá graf).
Einar Snorri Magnússon, forstjóri
Coca Cola á Íslandi, segir skýr-
inguna þá að neytendur velji orðið
sykurminni drykki – kolsýrða vatns-
drykki og sykurlausa gosdrykki – í
meira mæli en áður. Ekkert bendi til
að sú þróun muni snúast við.
Meðvitaðri um heilsuna
Meðal áhrifaþátta sé aukin með-
vitund um heilnæmi matvara, aukið
úrval sykurlausra drykkja og að þeir
séu orðnir bragðbetri.
Loks segir hann aðspurður að
þróunin sýni fram á að engin þörf sé
fyrir sykurskatta, sem aflagðir voru
fyrir nokkrum árum, enda sé þróun-
in í átt að sykurleysi mjög ör.
„Því má bæta við að markaðs- og
söluáherslur hafa verið á sykurlausa
drykki undanfarið auk þess sem
vöruþróun hefur aðallega verið á
sykurlausum eða sykurminni
drykkjum,“ segir Einar Snorri.
Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoð-
arforstjóri Ölgerðarinnar, segir
sykurmagn á hvern seldan
drykkjarlítra hjá fyrirtækinu hafa
dregist saman um nærri 50% frá
2016 (sjá graf).
Óáfengir drykkir sem Ölgerðin
framleiðir eru gosdrykkir, vatns-
drykkir, malt- og léttöl, koffín-
drykkir, safar og þykkni.
„Gosdrykkjamarkaðurinn á Ís-
landi hefur gjörbreyst og raunar
drykkjarvörumarkaðurinn allur.
Hlutdeild vatnsdrykkja og sykur-
lausra gosdrykkja hefur aukist og
kolsýrt vatn er orðið stór hluti af
markaðnum,“ segir Gunnar.
Vakning meðal neytenda
„Þetta er fyrst og fremst vakning
meðal neytenda en auðvitað hjálpar
til stóraukið framboð af sykur-
lausum valkostum. Vöruþróun okkar
hefur beinst að sykurlausum
drykkjum. Nefna má vörumerkið
Kristal sem dæmi en við höldum því
stöðugt á lofti með markaðssetningu
og öflugri vöruþróun. Við erum
þannig að ýta undir þessa þróun,“
segir Gunnar. Sykurskertri blöndu
af malti og appelsíni var, að hans
sögn, vel tekið síðustu jól og því hafi
Ölgerðin sett á markað sykurlaust
jólaöl og appelsín fyrir þessi jól. Nú í
október hafi salan á sykurlausu app-
elsíni farið fram úr sölu á appelsíni
með sykri en það hefði þótt óhugs-
andi fyrir nokkrum árum.
Sykurmagn í drykkjum
minnkar með hverju ári
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sykurmagn í óáfengum
drykkjum hjá Coca Cola á
Íslandi og Ölgerðinni hefur
minnkað um tugi prósenta
á aðeins nokkrum árum.
Einar Snorri
Magnússon
Gunnar B.
Sigurgeirsson
Þróun sykurmagns í drykkjarvörum
Magn sykurs í drykkjarvörum Ölgerðarinnar 2016-2021, g/líter***
Magn sykurs í drykkjarvörum Coca Cola* 2016-2021, g/líter**
60
50
40
30
20
10
80
70
60
50
40
2016 2017 2018 2019 2020 2021
2016 2017 2018 2019 2020 2021
*Coca Cola European
Partners Ísland ehf.
71
49
68
47
66
42
61
37
57
30
53
25
***Gosdrykkir, vatnsdrykkir, malt-
og léttöl, koffíndrykkir, safar og þykkni
**Allar óáfengar vörur sem fyrirtækið selur fyrir utan kaffi.
Þ.e. gosdrykkir, vatnsdrykkir, íþróttadrykkir, orkudrykkir og safar
REIÐHJÓL
Íslenska hjólafyrirtækið Lauf forks
hf. hefur lokið 270 milljóna króna
hlutafjáraukningu en KPMG var
ráðgjafi í ferlinu. Styrkja á hlut-
hafahópinn og kemur aukningin að
mestu frá nýjum hluthöfum.
Eftir viðskiptin er verðmæti fé-
lagsins áætlað þrír milljarðar.
Benedikt Skúlason og Guðberg
Björnsson stofnuðu Lauf forks hf.
árið 2011 en Guðberg sagði skilið við
fyrirtækið í fyrra.
Benedikt er nú stærsti hluthafinn
en Nýsköpunarsjóður annar stærsti
hluthafinn.
Fyrirtækið var stofnað í kringum
uppfinningu á hjólagaffli sem fór á
markað árin 2013 og 2014.
Þróað í kringum gaffalinn
„Svo þróuðum við hann yfir í mal-
arhjólagaffal árið 2016 og um ára-
mótin 2017/2018 kynntum við hjól
sem við höfðum þróað í kringum
þann gaffal. Þ.e.a.s. við þróuðum
malarhjólið okkar í kringum hann,“
segir Benedikt. Veltan hafi tvöfald-
ast árlega undanfarin þrjú ár og
stefni í u.þ.b. 950 milljónir í ár.
„Það varð mikill vöxtur í sölunni
um mitt ár 2020 þegar við fórum að
selja beint á netinu. Við vorum í
samstarfi við 120 verslanir í Banda-
ríkjunum en sögðum því samstarfi
upp á vormánuðum 2020 og lögðum
áherslu á sölusíðuna. Fram að því
kepptum við fyrst og fremst í gæð-
um – að vera með gaffal sem enginn
annar var með og bestu malarhjólin
– en sumarið 2020 fórum við að geta
boðið betra verð en flestir að auki.
Upp frá því tvöfaldaðist salan á því
ári og enn á ný í ár,“ segir Benedikt.
Um 80% af sölunni fer til Banda-
ríkjanna og segir Benedikt vel hægt
að tvöfalda söluna á þeim markaði
næstu ár. baldura@mbl.is
Lauf forks sækir
hlutafé og sækir fram
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Benedikt Skúlason, forstjóri Laufs.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt