Fréttablaðið - 19.01.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.01.2022, Blaðsíða 4
Farþegafjöldi Ice­ land air árið 2021 var 225.421. bth@frettabladid.is ÚTIVIST Magnús Árnason, fram- kvæmdastjóri skíðasvæða höfuð- borgarsvæðisins, segist hafa skiln- ing á því sjónarmiði að leyfa vínsölu á skíðasvæðum innalands. „Í Hlíðarfjalli var veitingsalan boðin út og veitingamaðurinn hefur eðli máls samkvæmt hag af áfengis- sölu,“ segir Magnús. „Mögulega verður þetta framtíðin á Íslandi en við erum ekki að hugleiða þetta að svo stöddu, enda erum við rekin af sveitarfélögum og íþrótta- og æsku- lýðssviðum.“ Með öðrum orðum gæti vínsala hafist í Bláfjöllum í framtíðinni ef reksturinn verður boðinn út. „Ég framfylgi stefnu bæjarráðs, ég vil ekki tjá mig um þetta mál,“ segir Ásthildur Sturludóttir, ópólitískur bæjarstjóri á Akureyri. Bæjarráð Akureyrar, að undan- skilinni Sóleyju Björk Stefánsdóttur, fulltrúa VG, hefur tekið jákvætt í erindi Sölva Antonssonar veitinga- manns um að áfengissala verði heimiluð í Hlíðarfjalli til klukkan 20.30 á veturna. Sóley Björk segir að mikil andstaða hafi komið við þess- ar hugmyndir á samfélagsmiðlum. „Kommentakerfin loga hreinlega og aldrei þessu vant er maður ekki skotskífa,“ segir hún. Tilraun var gerð um sölu áfengis í fjallinu síðastliðinn vetur. Hafa forráðamenn skíðasvæðisins sagt að engin vandamál hafi komið upp. Sóley Björk segir þó tvennum sögum fara af því. „Ég man að þegar þetta var leyft um tíma þá var talað um rosalegt fyllerí þarna tvær fyrstu helgarnar. Það voru sögur af fólki sem bar bjór út úr áfengissölunni, sem er ólög- legt, að því er virðist vegna kæru- leysi veitingasalanna,“ segir hún. Hún segir að vel mætti ræða að bjóða upp á vínsölu síðasta klukku- tímann fyrir lokun dag hvern. Þá segir Sóley að nokkur áhersla hafi verið á að markaðssetja Akureyri sem fjölskyldubæ. Einnig gangi markaðssetningin út á ferðamanna- paradís. Í þessu máli stangist á við- skiptahagsmunir og forvarnir. „Það er þannig að þú getur sent börn yfir ákveðnum aldri ein upp í fjallið og treystir því þá að þau séu örugg. Með þessu skrefi er grafið undan því,“ segir Sóley Björk. „Það hefur orðið ákveðin normal- ísering á áfengi,” segir hún. ■ Segir að vínsala á skíðasvæðinu hafi leitt til rosalegra fyllería Akureyrarflugvöllur. MYND/VÖLUNDUR kristinnhaukur@frettabladid.is SAMGÖNGUMÁL Farþegafjöldi inn- anlands hjá Icelandair var 225.421 árið 2021. Árið áður var fjöldinn aðeins 126.266 og var aukningin því 99.155, eða meira en 78 prósent. Árið 2020 varð reyndar mikið hrap í innanlandsflugi því að árið áður var fjöldinn 260.043. Stjórnvöld hafa niðurgreitt f lug- ferðir þeirra sem búa í vissri fjar- lægð frá höfuðborgarsvæðinu um 40 prósent frá því í október árið 2020. Er verkefnið kallað Loftbrú og er byggðaverkefni að skoskri fyrir- mynd. Fyrr í mánuðinum greindi Frétta- blaðið frá því að Loftbrúarafslættir hefðu verið notaðir í 65 þúsund skipti og upphæðin í heildina 414 milljónir króna. Notkun þessara afslátta jókst mikið á árinu 2021. ■ Nærri tvöföldun í innanlandsflugi Dagskrárstjóri sakar Sjúkra- tryggingar um brot, þar sem sjúkraskrár tiltekinna skjól- stæðinga SÁÁ hafi verið rýndar af leikmanni. Forstjóri Sjúkratrygginga vísar broti á reglum á bug. bth@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Hörður J. Oddfríð- arson, dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ, telur að Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafi framið brot, þegar Ari Matthíasson hafi sem starfs- maður SÍ skoðað sjúkraskrár skjól- stæðinga SÁÁ og kallað eftir upp- lýsingum um tiltekna einstaklinga. SÍ hafa kært SÁÁ til embættis héraðssaksóknara fyrir „gríðarlegt magn“ tilhæfulausra reikninga, meðal annars vegna viðtalsþjón- ustu við umbjóðendur. „Þótt við höfum ekki enn séð efni kærunnar er hreinlega galið að kæra SÁÁ fyrir 175 milljóna króna fjár- svik, á tímum þar sem var verið að bregðast við aðstæðum í rauntíma,“ segir Hörður. Hörður segir að vegna Covid hafi SÁÁ breytt vinnureglum með sama hætti og starfsmenn heilsugæslunn- ar, tekið viðtöl með því að hringja í stað þess að hitta skjólstæðinga. Starfsfólk SÁÁ hafi verið á vinnu- stað, en starfsfólk heilsugæslunnar hafi jafnvel hringt heiman frá sér. Þá sé tekist á um fleira, svo sem skil- greiningu á aldurshópi ungmenna. Hörður segir að deildarstjóri eftir- litsdeildar SÍ, Ari Matthíasson, hafi fyrr og síðar amast við stétt áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Hann virðist í afneitun á að áfengis- og vímuefna- ráðgjafar SÁÁ voru að sinna þjón- ustu við fíknisjúklinga og aðstand- endur í fordæmalausu ástandi, heimsfaraldri Covid-19. Alvarlegust sé þó meðferð Ara á sjúkraskrám í þessu máli. „Hann fékk afrit af sjúkraskrám okkar skjólstæðinga í nafni rann- sóknareftirlits. Ég á erfitt með að sjá að Sjúkratryggingar hafi haft nokkra lagalega heimild til að fara inn í sjúkraskrár okkar sjúklinga sem voru að þiggja þjónustu á þess- um tíma, né heldur að miðla þeim upplýsingum sem þar koma fram út úr stofnuninni,“ segir Hörður. Hörður segir að SÍ hafi viljað lesa sjúkraskrár allra sem fengu ákveðna þjónustu á tilteknu tímabili. Það stríði gegn anda laga um viðkvæmar persónuupplýsingar. „Við vitum að heilbrigðisstarfs- fólk má fara inn i sjúkraskrár en það var ekki heilbrigðisstarfsmaður sem las þessar skrár. Ari Matthíasson er ekki heilbrigðisstarfsmaður,“ segir Hörður. Hann segir að Ari hafi sjálfur birst í SÁÁ og í krafti embættis síns hafi hann lesið sjúkraskrár á staðnum en einnig fengið afhentar sjúkraskrár og farið með út úr húsi, sérstaklega hafi hann kallað eftir gögnum um tiltekna einstaklinga. „Samkvæmt lögum hefur eftir- litsnefnd heimild til að skoða þessi gögn en þá þarf það að vera heil- brigðisstarfsmaður sem skoðar gögnin. Það er, ef ekki ólöglegt, að minnsta kosti á mörkum hins sið- lega, að hringja í skjólstæðinga sam- takanna og lesa upp úr sjúkraskrám þeirra eins og hann lét starfsfólk SÍ gera. Ari er fyrrverandi framkvæmda- stjóri SÁÁ. María Heimisdóttir, for- stjóri Sjúkratrygginga, segir það ekki hafa gert hann vanhæfan til að vinna að þessu eftirliti. „Ég hef engar forsendur til að ætla að deildarstjóri eftirlitsdeildar beri þungan hug eða einhvern kala til SÁÁ. Allir starfs- menn Sjúkratrygginga átta sig á mikilvægi þeirrar þjónustu sem þar er veitt,“ segir María. Þá segir María að Sjúkratrygging- ar telji sig hafa fylgt öllum reglum um meðferð viðkvæmra persónu- upplýsinga. ■ Saka Sjúkratryggingar um brot í meðferð sjúkraskráa sjúklinga SÁÁ Ari Matthías- son, fyrrverandi framkvæmda- stjóri SÁÁ og seinna starfs- maður Sjúkra- trygginga, skoðaði sjúkra- skrárnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Hörður Odd- fríðarson, dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ Það hefur orðið ákveð­ in normalísering á áfengi. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi Vinstri grænna 4 Fréttir 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.