Fréttablaðið - 19.01.2022, Blaðsíða 22
Í milliriðlinum bíða
Strákanna okkar
leikir gegn Dönum,
Frökkum, Króötum og
Svartfellingum.
Markaskorun Íslands
hefur dreifst á tíu aðila
yfir leikina þrjá.
18 Íþróttir 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGUR
Íslenska karlalandsliðið í
handbolta tryggði sér í gær-
kvöldi sæti í milliriðli Evrópu-
mótsins með því að leggja
annan gestgjafa mótsins,
Ungverjaland, að velli, með
eins marks mun í lokaumferð-
inni í riðlakeppni mótsins í
Búdapest. Handan við hornið
eru sterkustu þjóðir heims.
HANDBOLTI Ísland fer með blúss-
andi sjálfstraust og tvö stig í fartesk-
inu inn í milliriðil á Evrópumótinu
í handbolta karla, en það varð ljóst
eftir 31-30 sigur íslenska liðsins gegn
Ungverjum í gær.
Þar með er ljóst að Ísland fer með
tvö stig inn í milliriðilinn þar sem
Danmörk, Frakkland, Króatía og
Svartfjallaland verða andstæðing-
ar íslenska liðsins. Frændur vorir
Danir bíða okkar annað kvöld, þá
Frakkar á laugardaginn, svo Króatar
á mánudaginn kemur og loks Svart-
fellingar eftir slétta viku.
„Þetta voru stórkostleg úrslit og
líklega þau bestu í langan tíma. Að
vinna Ungverja þegar allt er undir,
á þeirra heimavelli, með tæplega
20.000 áhorfendur á bandi heima-
manna í höllinni, er gjörsamlega
frábært,“ segir Einar Jónsson, þjálf-
ari Fram, sem var á meðal íslenskra
stuðningsmanna í höllinni.
„Það sem gladdi mig mest var
að sjá hversu vel sóknarleikurinn
var útfærður, líkt og í leikjunum
gegn Portúgal og Hollandi. Þá er
gott og gaman að sjá hversu margir
leikmenn leggja í púkkið í sóknar-
leiknum.
Að mínu mati á Aron Pálmars-
son aðeins inni og það kemur ekki
að sök, sem er geggjað. Maður gerir
auðvitað svakalegar kröfur á Aron
þar sem hann er einn af þremur
bestu handboltamönnum heims
að mínu áliti. Það má ekki misskilja
mig, Aron hefur spilað vel á mótinu
en tilfinningin er að hann geti farið
upp um einn gír í milliriðlinum.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og
Ómar Ingi Magnússon hafa spilað
einkar vel á þessu móti og gerðu það
einnig á ögurstundu. Hornamenn-
irnir Bjarki Már Elísson og Sigvaldi
Björn Guðjónsson áttu svo góðan
leik og nýttu færin sín vel,“ segir
Einar enn fremur.
„Björgvin Páll Gústavsson varði
Algjörlega
stórkostleg
úrslit
Með sigrinum í gær varð ljóst að Ísland færi með tvö stig áfram í milliriðlinn eftir stórkostlega frammistöðu í riðlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ungversku
varnarmennirnir
sýndu Strák-
unum okkar
enga miskunn.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
svo á mikilvægum augnablikum og
mér fannst Arnar Freyr Arnarsson
eiga góða innkomu inn í vörnina
síðustu tíu mínútur leiksins um
það bil. Breiddin í liðinu er sífellt að
aukast og álagið og ábyrgðin er að
dreifast vel og betur en hefur verið
undanfarin stórmót,“ segir hann.
„Þú nærð mér hins vegar ekki í
Eurovision-stemninguna og til þess
að segja að við getum farið alla leið.
Liðin sem við munum mæta í milli-
riðlunum eru enn þá skrefi framar
en við. Við erum hins vegar að
nálgast lið á borð við Dani, Frakka
og Króata. Eins og staðan er núna
standa þau þó framar, þannig að
þetta verður erfitt,“ segir þjálfarinn.
„Það sem ég hef mestar áhyggjur
af er að sóknarleikurinn þar sem við
opnum fyrir Gísla Þorgeir og Ómar
Inga til þess að gera árásir á vörn-
ina sé mögulega of einhæfur. Þeir
munu mögulega eigi erfiðara með
að vinna mann einn á einn þegar
mótherjarnir eru orðnir sterkari.
Það er hins vegar vonandi að þjálf-
arateymið eigi ása uppi í erminni og
nái að koma mér á óvart með ein-
hverjum öðrum útfærslum þegar
kemur að sóknarleiknum. Það er
hins vegar fyrst og fremst jákvætt að
við séum komnir einu skrefi lengra
á mótinu og fáum tækifæri til þess
að máta okkur við bestu leikmenn
heims,“ segir Einar um framhaldið. ■
Hjörvar
Ólafsson
hjorvaro
@frettabladid.is
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Þriðja leikinn í röð var
það hornamaður sem fór fyrir liði
Íslands í markaskorun í naumum
31-30 sigri Strákanna okkar á Ung-
verjum. Sigvaldi Björn Guðjónsson
og Bjarki Már Elísson hafa skorað
32 af 88 mörkum Íslands til þessa,
eða 36,36 prósent marka Íslands. Af
þeim hafa fimm komið eftir hraða-
upphlaup.
Það sem meira er að hornamenn-
irnir Bjarki og Sigvaldi hafa nýtt
tæplega áttatíu prósent af skotum
sínum í þremur leikjum til þessa.
Sigvaldi, sem er markahæsti leik-
maður Íslands á mótinu til þessa, er
með 18 mörk úr 23 skotum og Bjarki
er með 14 mörk úr 18 skotum. Þá
hefur aðeins Bjarki Már fengið að
spreyta sig á vítalínunni en hann
nýtti tvö víti af þremur gegn Ung-
verjum í gærkvöldi.
Þegar rýnt er í tölfræðina hjá
HBStatz kemur í ljós að markaskor-
unin er að dreifast vel á sóknarlínu
Íslands. Fyrrnefndir hornamenn,
Aron Pálmarsson, Gísli Þorgeir
Kristjánsson og Ómar Ingi Magnús-
son, eru allir komnir yfir tíu mörk í
leikjunum þremur.
Næstir koma þeir Elvar Örn Jóns-
son, Ýmir Örn Gíslason og Viggó
Kristjánsson með fjögur mörk
hver, Elliði Snær Viðarsson með þrjú
mörk og Ólafur Andrés Guðmunds-
son með tvö mörk.
Í markinu hefur Björgvin Páll
Gústavsson fengið stærstan hluta
allra leikja til þessa og varði 25 skot
af 89 í riðlakeppninni, þar af 1 víti af
6. Björgvin átti nokkrar mikilvægar
vörslur undir lok leiksins í gær sem
innsigluðu sigur Íslands. Í gærkvöldi
þurfti Viktor Gísli Hallgrímsson að
fylgjast með af bekknum eftir að
hafa varið 4 skot af 20 í fyrstu tveim-
ur leikjum Íslands í riðlinum. ■
Rúmlega þriðjungur marka Íslands frá hornamönnunum
Sigvaldi Björn var markahæstur í liði Íslands í riðlakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY