Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 24

Fréttablaðið - 19.01.2022, Síða 24
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær bróðir okkar og frændi, Tryggvi Garðar Valgeirsson verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.00. Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt: www.hljodx.is/index.php/streymi Kristján Steinar Tryggvason Stefán Þór Valgeirsson, Bragi Valgeirsson Anna Eir Guðfinnudóttir, Sandra Björk Bragadóttir, Brynhildur Íris Bragadóttir Ástkær faðir okkar, Guttormur Þormar verkfræðingur, verður jarðsunginn í Langholtskirkju föstudaginn 21. janúar kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á: https://www.youtube.com/ watch?v=MEsgSZB4gU8 Margrét Þormar Sigrún Þormar Stefán Þormar Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Sigríður Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur, Engjavegi 22, Skógum - Mosfellsbæ, lést 2. janúar á Landspítala við Hringbraut. Útförin fer fram í Langholtskirkju, 21. janúar kl. 15.00. Hlekkur á streymi er https://youtu.be/kna56eNg-HY Baldvin Már Frederiksen Bryndís Baldvinsdóttir Rúnar Berg Guðleifsson Jóhann Gunnar Baldvinsson Baldvin Már Baldvinsson Fríða K. Steinarsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jónína Þorsteinsdóttir yfirröntgentæknir/geislafræðingur, síðast til heimilis að Víðilundi 24, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á ADHD-samtökin og Downs-félagið. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á Facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar útsendingar. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Arna H. Jónsdóttir Guðmundur V. Óskarsson Hrafn Kristjánsson Maríanna Hansen Vignir Ö. Guðmundsson Sólveig Sif Guðmundsdóttir Björn E. Guðmundsson Inga Dóra Glan Guðmundsd. Krista Glan langömmubörn og langalangömmubarn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ingólfur Björnsson fyrrum bóndi, Drangshlíðardal, Austur-Eyjafjöllum, lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvols- velli, mánudaginn 10. janúar sl. Útför hans fer fram frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 22. janúar. Vegna aðstæðna getur aðeins nánasta fjölskylda verið viðstödd athöfnina. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat Lilja Sigurgeirsdóttir Sigurgeir Líndal Ingólfsson Drífa Björk Guðmundsdóttir Guðni Úlfar Ingólfsson Magðalena K. Jónsdóttir Guðrún Þórey Ingólfsdóttir Þorgeir Guðfinnsson Hjalti Páll Ingólfsson Kristjana Axelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðni B. Guðnason fyrrverandi kaupfélagsstjóri, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 15. janúar sl. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 21. janúar kl. 10.00. Vegna aðstæðna í samfélaginu er 50 manna samkomutakmörkun og því einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á: www.streyma.is Gunnar Guðnason Erna Olsen Þórólfur Guðnason Sara Hafsteinsdóttir Guðni B. Guðnason Ásta Björnsdóttir afabörn og langafabörn. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og systir, Karen Lövdahl lést 14. janúar sl. á hjúkrunarheimilinu Eir. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey. Jóhanna Halla Þórðardóttir Rúnar Björgvinsson Snorri Þórðarson Sigrún Óladóttir Einar Lövdahl Bergþóra Lövdahl barnabörn og langömmubörn. Ævi og störf Valgerðar Jóns- dóttur biskupsfrúr er viðfangs- efni nýuppsettrar sýningar í Landsbókasafni Íslands. arnartomas@frettabladid.is Í tilefni þess að 250 ár eru liðin frá fæð- ingu Valgerðar Jónsdóttur biskupsfrúar, hefur verið sett upp sýning í Landsbóka- safni Íslands - Háskólabókasafni, um ævi hennar og störf. Valgerður hefur mjög sterk tengsl við handritasafn Landsbóka- safnsins en handrit sem hún seldi safninu eru talin marka stofnun handritasafnsins 1846. „Það eru þá tæplega 400 handrit sem hún selur úr sinni eigu, en síðan þá hefur safnið stækkað og telur nú yfir 15 þúsund handrit,“ segir Halldóra Kristinsdóttir, sérfræðingur á handritasafninu, sem er höfundur sýningarinnar ásamt Erlu Huldu Halldórsdóttur, prófessor í sagn- fræði við Háskóla Íslands. „Okkur er ljúft og skylt að halda minningu þessarar merkilegu konu á lofti.“ Valgerður fæddist árið 1771 og var gift tveimur biskupum, Hannesi Finns- syni (1739–1796) og Steingrími Jónssyni (1769–1845). „Hannes var fimmtugur og hún átján ára þegar þau giftu sig,“ segir Halldóra. „Hún verður síðan ekkja tuttugu og fimm ára eftir sjö ára hjónaband og stendur ein fyrir búi í Skálholti í ein tíu ár.“ Valgerður átti töluverðar eignir og margar jarðir og stóð í miklum viðskipt- um á þeim tíma. „Hún stóð í bátaútgerð, átti rekaítök og hvað eina,“ útskýrir Hall- dóra. „Hún giftist svo Steingrími Jónssyni sem var á hennar aldri, en hann hafði verið skrifari hjá manninum hennar og kennari barna þeirra.“ Þegar Steingrímur lést á undan Val- gerði ákvað hún að selja handritasafnið sem hafði orðið til á biskupsheimilunum tveimur. „Valgerður hefur verið aðeins falin í sögunni,“ segir Halldóra. „Það er svo oft talað um hana sem eiginkonu þessara manna, sem voru vissulega stór- merkilegir, en það var hún líka.“ Fjölhæf fyrirmynd Á sýningunni er rýnt í ýmsa þætti í lífi Valgerðar, en auk þess að vera stóreigna- kona var hún líka mikil fyrirmynd ann- arra kvenna hvað varðaði tísku og hús- stjórn. „Það er talið að hún hafi fyrst klæðst því sem er kallaður húfubúningur, og á sýningunni drögum við fram áhrif henn- ar á tísku,“ segir Halldóra og vísar meðal annars í fatnað sem má finna í dánarbúi hennar. Til þess að fá aukna innsýn inn í fatnaðinn fengu Halldóra og Erla Hulda til liðs við sig Guðrúnu Hildi Rosenkjær sagnfræðing og kjólameistara hjá Ann- ríki. „Við reynum að draga fram hvað hún átti og hvað það segir um hennar stöðu í samfélaginu.“ Á sýningunni má líka finna ýmis skjöl og sendibréf sem skrifuð voru af Valgerði og til hennar, þar á meðal bréfabók sem hún hélt á því tíu ára tímabili sem hún var ein eftir að hún varð ekkja í fyrsta skipti. „Þar eru bæði persónuleg og viðskipta- leg bréf sem eru í raun alveg einstök heimild því þótt það séu til bréfabækur frá þessum tíma þá eru þær aðallega frá körlum,“ segir Halldóra. „Við erum ekki að reyna að segja ævisögu Valgerðar á þessari sýningu en viljum varpa ljósi á hvernig kona hún hefur verið.“ n Kvenskörungur í skugga biskupanna Halldóra Krist- insdóttir og Erla Hulda Halldórs- dóttir, höfundar sýningarinnar, ásamt Guðrúnu Hildi Rosenkjær sem lagði verk- efninu lið. MYND/AÐSEND Merkisatburðir 1903 Þýskur togari, Friedrich Albert, strandar á Skeiðarár- sandi. 1908 Verkalýðsfélag Reyðarfjarðar stofnað. 1935 Coopers Inc. selur fyrstu stuttu herranærbuxurnar í heiminum. 1949 Kúba viðurkennir Ísrael. 1953 68% allra sjónvarpsviðtækja í Bandaríkjunum eru stillt á sjónvarpsþáttinn I Love Lucy til að sjá Lucy Ball fæða barn. 1955 Borðspilið Scrabble lítur dagsins ljós. 1957 Kristján Eldjárn ver doktorsritgerð sína, Kuml og haugfé í heiðnum sið, á Ís- landi. 1966 Indira Gandhi kosin for- sætisráðherra á Indlandi. 1977 Snjókoma í Miami í Flórída í Bandaríkjunum, í fyrsta og eina sinn í sögu borgarinnar sem það hefur gerst. 2007 Íslenska kvikmyndin For- eldrar er frumsýnd. Það segir sitt að Valgerður fékk ekki sinn eigin legstein, heldur er nafn hennar fest neðst aftan á legstein Steingríms. Áhrif Valgerðar á tísku landsins eru tekin fyrir á sýningunni. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.