Fréttablaðið - 19.01.2022, Page 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
svavamarin@frettabladid.is
„Staðurinn er með pínulitla og brot-
hætta sál sem er að vaxa og dafna,“
segir Dóri DNA, veitingamaður á
Mikka ref, sem hann opnaði í von
um að veiran skæða færi að kveðja.
„Við opnuðum fyrir um ári síðan
og þekkjum í raun bara reksturinn
undir þessum kringumstæðum.
Við erum sem betur fer með góðan
og dyggan kúnnahóp og bisnisshug-
myndin var að þjónusta Þjóðleik-
húsið, sem hefur verið opið mjög
stopult.“
Dóri segir Mikka ref þó ganga
sinn vanagang að einhverju leyti „og
fólk er að hugsa til manns og hvern-
ig gangi. Við ætlum ekki að kvarta of
hátt en við þurfum að huga að uppá-
haldsstöðunum okkar svo það verði
ekki bara hamborgarastaðir eftir,“
segir Dóri og upplýsir og hann hafi
f lutt inn hundrað stykki af hvítum
stuttermabolum sem eru merktir
staðnum.
„Það er gott að kúra í þeim og
vera töff í þeim,“ segir Dóri á léttum
nótum og bætir við ögn alvarlegri:
„Við vitum hversu bilað það er að
við erum að selja boli hérna en
þannig er ástandið á veitingamark-
aðnum í dag, að vínbarir eru að selja
boli.“ n
Bilað að þurfa að selja boli
Neyðin kennir veitingamanni að
selja stuttermaboli. MYND/AÐSEND
BÍÓBÆRINN
FÖSTUDAGA KL. 20.00
Gunnar Anton og Árni Gestur
fara yfir þær kvikmyndir sem
eru væntanlegar í bíóhús lands-
manna og dusta einnig rykið af
gömlum gullmolum og fræða
áhorfendur um leyndardóma
kvikmyndaheimsins.
odduraevar@frettabladid.is
Sex vinir af Kársnesi hafa
nú loksins látið drauminn
rætast. Þeir hafa lagt niður
bakaríið Brauðkaup á Borgar-
holtsbraut og stofnað barinn
og grillið Mossley í höll æsku-
minninganna.
Ásgeir Þór Jónsson, rekstrarstjóri
nýjasta veitingastaðarins á Kárs-
nesi – Mossley, segir það alltaf hafa
verið planið að opna veitingastað
á Borgarholtsbraut á móti Kópa-
vogslaug í stað bakarísins vinsæla
Brauðkaups. Ásgeir Þór og félagar
hans eru allir uppaldir á Kársnesi
og Ásgeir segir hugsjónina hafa
ráðið för.
„Okkur hefur frá upphafi langað
til þess að gera þetta hús að sann-
kölluðu samkomuhúsi Kársnes-
inga. Ég ólst hérna upp í hverfinu
og f lutti svo aftur hingað til baka
fyrir þremur árum. Þá var bara
bensínstöð hérna og ekkert annað,“
segir Ásgeir.
Sjálfur hefur hann komið víða
við, búið erlendis og rekið fjölda
veitingahúsa og skemmtistaða hér
á landi eins og Prikið, Laundromat
og Jamie‘s. „Þannig að við strákarn-
ir vorum alveg sammála um það að
það vantaði einhverja stemningu
hérna í hverfið og nú viljum við
láta á það reyna með þessum nýja
stað, að bjóða upp á líf og fjör hér í
götunni.“
Stálu úr sjoppunni
Ásgeir og félagar eiga allir sameigin-
legt að eiga sínar æskuminningar úr
húsinu, sem áður hýsti sjoppu um
árabil.
„Við vorum alltaf þarna í þessari
sjoppu sem krakkar að ræna hlutum
og skemmta okkur. Það er virkilega
skrítið að eiga þennan stað allt í
einu núna og þetta hús, enda mikið
búinn að vera að hanga í þessari
sjoppu þegar maður var krakki.
Fyrsti kossinn og allur pakkinn var
tekinn þarna,“ segir Ásgeir hlæjandi.
Þeir félagar stóðust ekki mátið
þegar húsið fór á sölu og keyptu
það árið 2019. Ásgeir útskýrir að þá
hafi það atvikast þannig að í skaut
þeirra féll bakarí, þegar Kornið lét
af starfsemi í húsinu. Ásgeir segir þá
félaga þá hafa brugðist skjótt við og
stofnað Brauðkaup, sem nú er orðið
að Mossley.
„En markmiðið hefur alltaf verið
að gera þetta að bar og grilli og að
samkomustað Kársnesinga,“ segir
Ásgeir sem segir þá félaga hafa
fundið nafnið á staðinn í skjalasafni
ríkisins.
„Þar fundum við kort sem Banda-
ríkjaher hafði notað til að kortleggja
eftir sínum kennileitum. Þeir skírðu
Kársnesið Mossley Knoll og það
fannst okkur bara smellpassa, enda
góð saga og skemmtilegt nafn. Svo
er einhver bær í Bretlandi sem er
líka Mossley, þannig að við erum
að spá í að sækja um að verða vina-
bær. “
Lofa veislum
Ásgeir segir þá félaga lofa veislu
þegar veiran skæða hættir loksins
að hrella landsmenn og mannamót
verða gjaldgeng á ný.
„Við erum með góðan sætafjölda
og getum vonandi fyrr en síðar tekið
á móti stórum og litlum hópum. Svo
ætlum við að opna efri hæðina hjá
okkur líka á næstu vikum og þar
verður hægt að leigja sal, halda partí
eða hreinlega bara horfa á Eurovisi-
on og hafa gaman.“
Ásgeir segir þá félaga alltaf hafa
blásið til veislu úti í garði við hvert
tilefni og segir hann ekkert lát verða
á því á hinum nýja stað. „Við höld-
um árlega alls konar partí í garðin-
um, á 17. júní, októberfest og á vorin
og ætlum að halda því áfram, þann-
ig að þetta verði áfram samkomu-
hús fyrir Kársnes og Kópavog.“ n
Steikir hamborgara á grilli
við Hauskúpuhæðarveginn
Ásgeir Þór er snúinn aftur á slóðir æskunnar og fyrsta kossins og steikir nú hamborgara í húsi sem má segja að sé höll
æskuminninga hans og stendur í grennd við það sem Kaninn kallaði Mossley Knoll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kanarnir nefndu Kársnesið
Í seinni heimsstyrjöld gerði
bandaríski herinn kort af
höfuðborgarsvæðinu og gaf
ýmsum stöðum bandarísk ör-
nefni. Hæðin þar sem Hamra-
borg er var nefnd Skeleton Hill
og Nýbýlavegur/Kársnesbraut
voru nefnd Skeleton Hill Road.
Digranes var svo kallað Whale
Hill og hafnarsvæði Kársness
Whale Point. Kársnesið sjálft
fékk nafnið Mossley Knoll.
26 Lífið 19. janúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ