Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.02.1996, Qupperneq 2

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.02.1996, Qupperneq 2
Fleygar setningar úr tjónaskýrslum ákveðins tryggingafélags -Ég rakst á kyrrstæðan vörubíl, sem var að koma úr hinni áttinni. -Ég sagði lögreglunni að ég væri ómeiddur, en þegar ég tók ofan hattinn, komst ég að því að ég var höfuðkúpubrotin. -Ég var á leiðinni til læknisins, þegar púströrið datt aftur úr mér. -Ég var að reyna að drepa flugu og keyrði þarna á símastaurinn. -Hinn bíllinn keyrði beint á mig, án þess að gefa neitt merki um hvað hann ætlaði að gera. -Það kom bara ósýnilegur bíll, rakst á mig og hvarf. -Ég var búin að keyra í 40 ár, þegar ég sofnaði við stýrið og lenti í slysinu. -Sá fótgangandi stóð og vissi ekki í hvora áttina hann átti að hlaupa, svo ég keyrði yfir hann. -Það bakkaði trukkur gegnum rúðuna á mér og beint í andlitið á konunni. -Maðurinn var allsstaðar á veginum. Ég varð að taka heilmargar beygjur áður en ég rakst á hann. -Ég beygði frá vegbrúninni, rétt leit á tengdamömmu, og hentist út fyrir veginn hinum megin. Mér þykir þetta leitt, en konan í uppvaskinu þarfað ná síðasta strætó. Fræðsla fyrir fatlaöa og aðstandendur FFA VORDAGSKRÁFFA fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur. Ég sver að ég vissi ekki að systir hennar vœri svona ung. * Miðvikudaginn 28. febrúar n.k. verður rabbkvöld fyrir fullorðin systkini fatlaðra í sal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, kl. 20.30. * í mars verða Ivö fræðslukvöld, eitt fyrir mæður fatlaðra barna og fullorðinna og annað fyrir feðurna. Rætt verður um stöðu konunnar/karlmannsins og gefst fólki tækifæri til að spjalla saman og hitta aðra sem eru í svipaðri aðstöðu. Námskeiðsstaður verður auglýstur síðar. * í byrjun apríl verður námskeið fyrir fullorðin systkini fatlaðra á Akureyri, en það námskeið var fyrirhugað í október s.l. en féll niður. Þetta er heilsdagsnámskeið og er unnið í samvinnu við Svæðisskrifstofu Norðurlands eystra, Foreldrafélag barna með sérþarfir, Styrktarfélag vangefinna og Sjálfsbjargarfélagið á Akureyri. Á námskeiðinu verða fyrirlestrar og hópumræður. Fjallað verður m.a. um það að eignast fatlað systkini, hlutverk systkina o.fl. * í apríl verður ömmu- og afakvöld í Reykjavík. Þetta verður upplýsinga- og spjallkvöld fyrir ömmur og afa fatlaðra bama og fullorðinna. Er þetta nýmæli. Námskeiðin verða auglýst í dagblöðunum þegar nær dregur. Nánari upplýsingar fást hjá Ástu Friðjónsdóttur starfsmanni námskeiðanna í síma 588-9390 og hjá Lilju Þorgeirsdóttur, félagsmálafulltrúa Sjálfsbjargar l.s.f. í síma 552-9133. Við hvetjum fólk til að sækja þessi námskeið, til að bæta við þekkingu sína og kynnast öðrum með svipaða reynslu. Nauðsynlegt er að aðstandendur fatlaðra fái fræðslu um þessi mál og stuðning. Eftirfarandi félagasamtök eru aðilar að FFA: Landssamtökin Þroskahjálp. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðnL Stvrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélag vangefinna. 2

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.