Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
S
vava Kristín er í senn með tign-
arlegan og töff fatastíl og leggur mik-
ið upp úr því að vera alltaf smekklega
til fara. Hún segir stíl sinn ansi sveigj-
anlegan en hann þurfi að uppfylla
ákveðin skilyrði til þess að vera
Svövu-legur, eins og hún kallar það.
„Ég er algjörlega búin að finna
minn stíl. Hann getur verið mjög sveigjanlegur en alltaf
Svövu-legur,“ segir hún þegar hún er beðin að lýsa stíln-
um sínum.
Hvernig föt klæða þig best?
„Það er ótrúlegt hvað hvítar
skyrtur klæða mig vel, enda er
það svona það sem ég enda
langoftast í. Svartar háar bux-
ur, hvít skyrta og leðurjakki er
svona mitt „go-to“. Ég fell allt-
af fyrir hvítum skyrtum. Það er
eiginlega galið hvað þessi
venjulega flík getur alltaf heill-
að mig.“
Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?
„Það fer auðvitað eftir því hvort ég er í vinnu
eða ekki. Þegar ég er í fríi fæ ég oft unglingaveik-
ina. Þá geng ég bara um í kósígalla, hettupeysu og
þægilegum buxum. Hina dagana eru það svartar
fínar buxur, hvít skyrta og oftar en ekki fer
ég í peysu yfir skyrtuna
Hvernig klæðirðu þig þegar þú
ert að fara eitthvað fínt?
„Stundum er lítill munur á því
hvernig ég er klædd í vinnu eða
á leiðinni eitthvað fínt, þannig er
vinnan mín bara. En ég elska
samfestinga, dragtir og fallegar
satínblússur/skyrtur.“
Hvernig ákveður þú í hverju þú
ert í beinni útsendingu?
„Það er engin stór ákvörðun á bak við það
svo sem. Stundum er ég búin að ákveða það daginn áður,
stundum gríp ég bara eitthvað sem er straujað og fínt
þann daginn. En ég viðurkenni að það er minni hugsun á
bak við þetta í fréttunum en í einstaka þáttum, þar sem
ég er talsvert oftar í fréttasettinu.“
Hvað er að finna í fataskápnum þínum?
„Þar er sko allur skalinn. Tæplega 100 skyrtur og nú
er ég ekki einu sinni að ýkja. Helmingurinn af þeim er
hvítur en hinn helmingurinn í öllum regnbogans litum.
Þar er að finna mikið af samfestingum og síðkjólum,
vegna þess að ég er mjög dramatísk þegar kemur að því
að vera mjög fín. Það eru auðvitað þó nokkrir blazerar,
svona ekta fréttakonujakkar, og svo vil ég helst ekki vita
hversu marga stuttermaboli er þar að finna. Fyrsta sem
ég geri þegar ég kem heim á daginn er að fara úr skyrt-
unni og yfir í stuttermabol.“
Verstu fatakaupin?
„Alveg klárlega öll fötin sem ég hef keypt of lítil því
mín stærð var ekki til. Svo sannfæri ég sjálfa mig um að
ég muni passa í þau bráðum. Það hefur aldrei gerst. Til
dæmis falleg hvít dragt sem ég keypti einu sinni. Ég tel
mér trú um það enn þann dag í dag að einn daginn muni
ég komast í hana. Set hér með þá pressu á mig,“ segir
Svava og hlær.
Bestu fatakaupin?
„Spaksmannsspjarabuxur sem
ég kaupi alltaf aftur. Er á þriðju
eða fjórðu buxunum núna. Hef
aldrei átt flík sem klæðir mig eins
vel. Það er alltaf hægt að klæða
þær upp og niður. Má ég svo
segja eina tösku? Því Marc Ja-
cobs-taskan mín hefur líka svo
sannarlega staðið undir
væntingum og kostnaði.
Hana nota ég nær dag-
lega. Ótrúlega þægi-
leg, klæðileg og það
kemst ótrúlegt magn
í hana.“
Eru einhver tísku-
slys í fataskápnum þín-
um?
„Eflaust alveg hellingur
að mati annarra en ég sjálf
tek þeim ekki sem einhverjum
tískuslysum. Til að nefna eitthvað þá myndi ég
samt segja blessaða Apple-úrið mitt. Þetta er
auðvitað alveg einstaklega ljótt og væri ég til í
að vera meira með eitthvað fallegt úr á hendinni
en þetta er bara svo helvíti þægilegt.“
Hvað finnst þér flott á öðrum en myndir aldrei fara í
sjálf?
„Það eru svo margir tískustraumar sem mér hefur
þótt sjúklega töff en það bara klæðir mig ekki. Til dæmis
alveg víðar buxur og extra víður jakki við eins og er svo
mikið í dag. Allt svona blúndu, blóma og pastellitir passa
mér alls ekki en mjög sætt á öðrum.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að versla?
„Allt vintage. Ég elska að komast inn í góða Rauða-
krossbúð eða loppumarkað og kaupa mér einhverjar ran-
dom blússur og skyrtur. Elska fátt meira en að poppa
upp dressin mín með óhefðbundnum toppum og eru það
oftast þær blússur sem ég er mest spurð út í. Það er
stundum himinn og haf á milli dressa hjá mér. Stundum
Morgunblaðið/Eggert
Á hátt í 100
skyrtur í fata-
skápnum
Stíll Svövu Kristínar
er tignarlegur og töff.
Íþróttafréttakonan þarf
að líta vel út í fréttasett-
inu. Þá gera góðar sat-
ínskyrtur oft gott mót.
Í hvítri skyrtu
sem hún lét bró-
dera nafn sitt í. Gróft skart og
Gucci-ljónið er
Svövu að skapi.
5 SJÁ SÍÐU 18
Eyjapæjan og íþróttafréttakonan Svava
Kristín Grétarsdóttir er óneitanlega ein
best klædda konan á landinu. Svava seg-
ist alltaf hafa verið létt kaupasjúk og ber
fataskápur hennar svo sannarlega þess
merki. Segist hún elska að blanda saman
nýju og notuðu og eigi það til að þræða
helstu nytjamarkaði í leit að glingri og ger-
semum. Þá segist hún alveg óhrædd við
að blanda ódýrum fatnaði af nytjamörk-
uðum saman við fokdýrar merkjaflíkur
Ásthildur Hannesdóttir | asthildur@mbl.is
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Hæ Við erummeðSWING
gleraugu og þau eruÆÐI
Kosta bara9.900 kr.