Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 S vava Kristín er í senn með tign- arlegan og töff fatastíl og leggur mik- ið upp úr því að vera alltaf smekklega til fara. Hún segir stíl sinn ansi sveigj- anlegan en hann þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði til þess að vera Svövu-legur, eins og hún kallar það. „Ég er algjörlega búin að finna minn stíl. Hann getur verið mjög sveigjanlegur en alltaf Svövu-legur,“ segir hún þegar hún er beðin að lýsa stíln- um sínum. Hvernig föt klæða þig best? „Það er ótrúlegt hvað hvítar skyrtur klæða mig vel, enda er það svona það sem ég enda langoftast í. Svartar háar bux- ur, hvít skyrta og leðurjakki er svona mitt „go-to“. Ég fell allt- af fyrir hvítum skyrtum. Það er eiginlega galið hvað þessi venjulega flík getur alltaf heill- að mig.“ Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega? „Það fer auðvitað eftir því hvort ég er í vinnu eða ekki. Þegar ég er í fríi fæ ég oft unglingaveik- ina. Þá geng ég bara um í kósígalla, hettupeysu og þægilegum buxum. Hina dagana eru það svartar fínar buxur, hvít skyrta og oftar en ekki fer ég í peysu yfir skyrtuna Hvernig klæðirðu þig þegar þú ert að fara eitthvað fínt? „Stundum er lítill munur á því hvernig ég er klædd í vinnu eða á leiðinni eitthvað fínt, þannig er vinnan mín bara. En ég elska samfestinga, dragtir og fallegar satínblússur/skyrtur.“ Hvernig ákveður þú í hverju þú ert í beinni útsendingu? „Það er engin stór ákvörðun á bak við það svo sem. Stundum er ég búin að ákveða það daginn áður, stundum gríp ég bara eitthvað sem er straujað og fínt þann daginn. En ég viðurkenni að það er minni hugsun á bak við þetta í fréttunum en í einstaka þáttum, þar sem ég er talsvert oftar í fréttasettinu.“ Hvað er að finna í fataskápnum þínum? „Þar er sko allur skalinn. Tæplega 100 skyrtur og nú er ég ekki einu sinni að ýkja. Helmingurinn af þeim er hvítur en hinn helmingurinn í öllum regnbogans litum. Þar er að finna mikið af samfestingum og síðkjólum, vegna þess að ég er mjög dramatísk þegar kemur að því að vera mjög fín. Það eru auðvitað þó nokkrir blazerar, svona ekta fréttakonujakkar, og svo vil ég helst ekki vita hversu marga stuttermaboli er þar að finna. Fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim á daginn er að fara úr skyrt- unni og yfir í stuttermabol.“ Verstu fatakaupin? „Alveg klárlega öll fötin sem ég hef keypt of lítil því mín stærð var ekki til. Svo sannfæri ég sjálfa mig um að ég muni passa í þau bráðum. Það hefur aldrei gerst. Til dæmis falleg hvít dragt sem ég keypti einu sinni. Ég tel mér trú um það enn þann dag í dag að einn daginn muni ég komast í hana. Set hér með þá pressu á mig,“ segir Svava og hlær. Bestu fatakaupin? „Spaksmannsspjarabuxur sem ég kaupi alltaf aftur. Er á þriðju eða fjórðu buxunum núna. Hef aldrei átt flík sem klæðir mig eins vel. Það er alltaf hægt að klæða þær upp og niður. Má ég svo segja eina tösku? Því Marc Ja- cobs-taskan mín hefur líka svo sannarlega staðið undir væntingum og kostnaði. Hana nota ég nær dag- lega. Ótrúlega þægi- leg, klæðileg og það kemst ótrúlegt magn í hana.“ Eru einhver tísku- slys í fataskápnum þín- um? „Eflaust alveg hellingur að mati annarra en ég sjálf tek þeim ekki sem einhverjum tískuslysum. Til að nefna eitthvað þá myndi ég samt segja blessaða Apple-úrið mitt. Þetta er auðvitað alveg einstaklega ljótt og væri ég til í að vera meira með eitthvað fallegt úr á hendinni en þetta er bara svo helvíti þægilegt.“ Hvað finnst þér flott á öðrum en myndir aldrei fara í sjálf? „Það eru svo margir tískustraumar sem mér hefur þótt sjúklega töff en það bara klæðir mig ekki. Til dæmis alveg víðar buxur og extra víður jakki við eins og er svo mikið í dag. Allt svona blúndu, blóma og pastellitir passa mér alls ekki en mjög sætt á öðrum.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að versla? „Allt vintage. Ég elska að komast inn í góða Rauða- krossbúð eða loppumarkað og kaupa mér einhverjar ran- dom blússur og skyrtur. Elska fátt meira en að poppa upp dressin mín með óhefðbundnum toppum og eru það oftast þær blússur sem ég er mest spurð út í. Það er stundum himinn og haf á milli dressa hjá mér. Stundum Morgunblaðið/Eggert Á hátt í 100 skyrtur í fata- skápnum Stíll Svövu Kristínar er tignarlegur og töff. Íþróttafréttakonan þarf að líta vel út í fréttasett- inu. Þá gera góðar sat- ínskyrtur oft gott mót. Í hvítri skyrtu sem hún lét bró- dera nafn sitt í. Gróft skart og Gucci-ljónið er Svövu að skapi. 5 SJÁ SÍÐU 18 Eyjapæjan og íþróttafréttakonan Svava Kristín Grétarsdóttir er óneitanlega ein best klædda konan á landinu. Svava seg- ist alltaf hafa verið létt kaupasjúk og ber fataskápur hennar svo sannarlega þess merki. Segist hún elska að blanda saman nýju og notuðu og eigi það til að þræða helstu nytjamarkaði í leit að glingri og ger- semum. Þá segist hún alveg óhrædd við að blanda ódýrum fatnaði af nytjamörk- uðum saman við fokdýrar merkjaflíkur Ásthildur Hannesdóttir | asthildur@mbl.is Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Hæ Við erummeðSWING gleraugu og þau eruÆÐI Kosta bara9.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.