Sjálfsbjörg - 01.07.1986, Blaðsíða 31
Atvinnumál
og hjá Örtækni, 90% af Iðju-
taxta í byrjun, en hækkar eftir
það.
Hér eru einnig nokkrir starfs-
menn, sem vinna samhliða hin-
um fötluðu. Þetta er lítill kjarni
starfsfólks, sem styrkir hina og
leiðbeinir þeim.
Saumastofan hefur starfað síð-
an árið 1983 og þjálfunarverk-
efni okkar eru einkum frá Ríkis-
spítölunum. Raunar má segja,
að tilvist okkar sem þjálfunar-
staður sé háð verkefnum, sem
við fáum þaðan. Við saumum
nátttreyjur og taupoka fyrir
óhreint tau. Einnig vinnusloppa
og svuntur handa fólki í veitinga-,
hjúkrunar- og verslunarstörf-
um. Svo höfum við saumað
fermingarkyrtla, sem eru að
sækja á á markaðnum. Við erum
ekki samkeppnisfær við ódýra,
innflutta vöru, en leggjum metn-
að okkar í að sýna vandaða
vinnu.“
EH
Múlalundur
Yfir eitt hundrað á launaskrá“
Múlaiundur liggur í útjaðri Há-
túnstorfunnar. Reyndar er þakið
grasi vaxið og húsið því undir
grænni torfu. Starfsemi Múla-
lundar er hins vegar blómlegri
en svo, að taka megi þetta bók-
staflega. Á Múlalundi hittum við
Steinar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra, að máli.
Steinar, hvað vinna margir á
Múlalundi?
„Alls eru yfir eitt hundrað
manns á launaskrá. Þar af eru
innan við 10 ófatlaðir. Á Múla-
lundi er ákveðinn kjarni fastra
starfsmanna, og eru þeir flestir
öryrkjar. Aðrir starfsmenn eru
hér í 3 til 3Vi mánuð í senn og
eru ráðnir fyrir milligöngu ör-
yrkjadeildar Ráðningarskrif-
stofu Reykjavíkurborgar. Fólkið
fær hér starfsþjálfun, þótt raunar
megi segja, að 3 mánuðir séu
fullstuttur tími. Við höfum tím-
ann ekki lengri en þetta, til þess
að geta hleypt sem flestum að.
Það er ekki óalgengt að fólk
komi tvisvar á ári, enda líta
menn oft á það sem álíka upp-
lyftingu að vinna hér í stuttan
tíma eins og það er fyrir aðra að
fara í sumarfrí.
Múlalundur starfar skv. lögum
um málefni fatlaðra, en ég tel
óheppilegt að kalla hann vernd-
aðan vinnustað. Ég vil kalla
þetta venjulegan vinnustað, sem
hefur það markmið að skapa
sem flest atvinnutækifæri handa
öryrkjum.
Þótt tíminn sé ekki lengri en
þetta hefur vinnan mikla þýð-
ingu fyrir fólkið. Það er því
mikils virði að blandast öðrum
og skapa um leið verðmæti.
Þetta veitir fólki aukið sjálfs-
traust, og gefur því styrk til að
stíga fyrstu skrefin út í atvinnu-
lífið.
Hér eru framleiddar plast-
möppur af öllum stærðum og
gerðum, lausablaðabækur, hulst-
ur utan um skjöl og skilríki og
svo mætti lengi telja. Að. sjálf-
sögðu er erfitt að standast sam-
keppni við erlenda framleiðslu,
en við leggjum áherslu á að gæð-
in séu ekki síðri en hjá öðrum.
Við framleiðum eftir óskum í
litlu upplagi, t. d. möppur með
áletrun. Þetta er vara, sem ekki
er hægt að fá annars staðar, og
með því að skipta beint við fyrir-
tæki og sleppa öllum milliliðum,
getum við haldið verðinu niðri.
Verkstjórafundir eru hér viku-
lega og í framhaldi af þeim er
gert starfsmat. Við leitumst við
að einangra ekki fólk í ákveðn-
um störfum, heldur færa það til.
Á þeim tíma, sem fólkið vinnur
hér, er gert starfsmat a. m. k.
tvisvar sinnum. Matið er síðan
haft til viðmiðunar hjá Ráðning-
arskrifstofu Reykjavíkurborgar,
þegar reynt er að útvega fólkinu
vinnu á hinum almenna vinnu-
markaði. Hér á Múlalundi ger-
um við miklar kröfur til starfs-
fólksins um mætingu og ástund.
Segja má, að þetta sé liður í
starfsþjálfuninni. Yfirleitt erum
við með mjög samviskusamt fólk
í vinnu, en þó verður að athuga,
að það gengur ekki í hvernig
vinnu sem er. Það verður að
velja starf handa því.“
EH
Steinar Gunnarsson framkvæmdastjóri Múlalundar í vinnusalnum.
SJÁLFSBJÖRG 29