Lindin - 02.05.1956, Blaðsíða 2
blautan fatnað á gólfinu við vaskana eða í kássu yfir miðstöðinni,
eins og tíðast er.
3. Hvemig á að pressa buxur: Buxur er bezt að pressa \xngir svefn-
pokunum eina nótt með vaxandi tungli. Varizt að hengja huxur upp
á herðatré í skápum.
_4. Hvernig á að ^era við göt; Takið nál og tvinna úr umferð.
Farið í apótekið og hiðjið um skæri. Klippið svo götin af.
5. Hvernig á að nota föt: Fyrst og fremst her að nota þau. Notið
þau til að sofa í þeim og til þess að baða ykkur í þeim og til þess
að stinga upp í signalhorn.
6. Hvernig á að losna við föt: Farið úr þeim, leggið þau vandlega
frá yður einhversstaðar úti eða inni, þó ekki á afvikinn stað.
Síðan eruð þið lausir við fötin.
7. Hvernig fötum er komið fyrir í ferðatösku; Hafið vaðstívélin
neðst. Gætið þess að þau séu hrein að innan. Þar ofan á skal setja
hvítar skirtur, þá fótbolta og vinnubuxur. Næst koma spariföt,
sundskýla og sokkar, sem er raðað allt í kring mjög vandlega.
ERINDI UM BARNAUPPELFI.
9
Uppeldisfræðingur Skógarmanna flytur erindi um bamauppeldi.
Góðir hlustendur og aðrir, sem mál mitt heyrið.
Þe&ar barn fæðist, skulu foreldrar þess panta dvöl í Vatna-
skógi handa því, ef barnið heitir karlmannsnafni. Annars verður
að senia það í Vindáshlíð.
Kennið barninu að telja upp að fjórum. Þetta er mjög auðvelt
ef barnið hefur 4 bleyjur. Nefnið alltaf töluna einn við fyrstu
bleyjuna, 2 við þá næstu o. s. frv., alveg upp í fjóra. Einnig
má nota þá aðferð að hrópa ferfallt húrra þegar skipt er á barninu
Með þessu móti lærir bamið örugglega að telja upp að fjórum.