Lindin - 02.05.1956, Blaðsíða 4
Kennið 'barninu hreinlæti. Aðferðin er þessi: Áður en haniið
vaknar á morgnana, skuluð þér fylla kojuna af appelsínu hýði, kara-
mellubréfi og öðru drasli. Ef barnið hreinsar ekki kojuna skuluð
Þér tvöfalda skammtinn, þrefalda eða fjórfalda. Bamið lærir örugg-
lega hreinlæti á stuttum tíma með þessari aðferð.
Kennið barninu að vinna. Aðferðin er þessi. Gefið baminu
fótbolta, fótboltaskó og fótboltavöll. Sprautið vatni á völlinn
í tvo mánuði. Pá ið svo barninu haf(a og skóflu. Vinnan lærist
sjálfkrafa undir stjórn háskólagengins verkfræðings, stud. polyt.
Bjössa.
Margt fleira þarf að kenna barninu. En þetta verður að nægja
að sinni...
Góða nótt, góðir hlustendur og aðrir tilheyrendur mínir.
Hann Halli átti einu sinni kött, sem nefndist Brandur. Brand-
ur var mjög svo gáfaður af ketti til að vera og merkilegur á margan
hátt. Það voru til margar sögur, sem sönnuðu vitsmuni Brands. En
ég ætla nú ekki að eyða tímanum í að segja þær. Heldur ætla ég að
segja frá því, þegar Brandur komst á hátind frægðar sinnar.
Það bar svo við eitt sumar að hingað til lands kom frægur
þýzkur prófessor. Þessi prófessor var prófessor af 10 gráðu í
kattarfræði. Alla sína æfi hafði hann rannsakað ketti og alfrei
annað.
Hann byrjaði strax að rannsaka ketti borgarinnar og eftir
hokkrar vikur hafði hann rannsakað þá alla nema einn. Hann hafði
ekki rannsakað Brand. Og af þeirri einföldu ástæðu, að Brandur
kærði sig ekkert um að veráa rannsakaður. Og hann lét því hjálp-
armenn prófessorsins ekki handsama sig.