Fréttablaðið - 16.02.2022, Blaðsíða 14
Við komumst að því að
það er rosalega miklu
magni af bókum hent af
þjóðinni á hverjum ein-
asta degi sem endar bara í
landfyllingu.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
Þorsteinn Gíslason
matsveinn,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ingimar Þorsteinsson
Kristín Þorsteinsdóttir
Steinar Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við undirbúning Þinnar eigin
bókasafnsráðgátu barst Borgar-
bókasafninu í Gerðubergi gríðar-
legt magn af bókum. Sýningar-
stjórar halda stutt spjall í dag til
að ræða stöðu bóka innan hring-
rásarhagkerfisins.
arnartomas@frettabladid.is
Fyrir nokkrum mánuðum umbreyttist
Borgarbókasafnið Gerðubergi í dular-
fullan heim byggðan úr mörg þúsund
bókum. Um var að ræða verkefnið Þín
eigin bókasafnsráðgáta þar sem gestum
bauðst að taka þátt í ratleikjum þar sem
framvinda mála var ekki ráðin.
Ráðgátan vakti mikla lukku og hefur
aðsókn verið góð en í dag munu aðstand-
endur sýningarinnar standa fyrir opnu
spjalli um hvað skuli gera við bækurnar
þegar sýningunni lýkur.
„Sýningin er búin að ganga mjög vel
og aðsókn hefur verið góð, en það sem
við ætlum að ræða í spjallinu tengist
kannski frekar framhaldinu,“ segir Svan-
hildur Halla Haraldsdóttir, sýningar-
stjóri og deildarbókavörður í Gerðu-
bergi.
Í aðdraganda verkefnisins óskaði
safnið eftir gömlum og notuðum bókum
á samfélagsmiðlum og segir Svanhildur
að viðbrögðin hafi verið meiri heldur
en búist var við. „Þetta vatt ansi mikið
upp á sig. Við nýttum bæði bækur sem
voru afskrifaðar af safninu og bækur
sem okkur voru sendar, auk þess sem
við kíktum í Góða hirðinn,“ segir hún.
„Við komumst að því að það er rosalega
miklu magni af bókum hent af þjóðinni
á hverjum einasta degi sem endar bara í
landfyllingu.“
Sívaxandi söfn
Íslendingar eru bókelsk þjóð og segir
Svanhildur að fólk ráði stundum ekki
við fjölda þeirra bóka sem það á.
„Það eru fáar fornbókabúðir á landinu
og fólk kom oft með bækur úr dánarbúi
eða vegna þess að það vildi minnka við
sig,“ segir hún. „Það var mjög mikið af
flottum bókum sem við fengum, sumar
glænýjar í plastinu og aðrir algjörir forn-
gripir. Ég veit ekki hvað þær voru margar
en þær hlupu á þúsundunum.“
Svanhildur segir að á spjallinu á safn-
inu í dag verði umræður opnar enda sé
hún sjálf ekki viss hvernig sé best að eiga
við sívaxandi bókaforða landsmanna.
„Við erum bara að fara að spjalla um
þetta og velta okkur upp úr þessu,“ segir
hún. „Kannski kemur einhver með tíma-
mótahugmynd um hvernig sé hægt að
leysa þennan vanda.“
Sýningarspjallið hefst klukkan 20 í
Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld.
Áhugasamir um Þína eigin bókasafns-
ráðgátu geta kynnt sér hana frekar á
heimasíðu Borgarbókasafnsins þar sem
hægt er að skrá hópa. ■
Örlög bókanna
Bókasafnsráðgátan hefur vakið lukku og mikla aðsókn. MYND/AÐSEND
Mörg þúsund bækur bárust safninu í
kjölfar ákallsins á samfélagsmiðlum.
Þann 11. febrúar 2011 strandaði
Goðafoss, gámaskip Eimskips, á leið
sinni út úr höfninni við Frederiksstad í
Noregi að kvöldi til. Skipið var nokkur
hundruð metra frá landi þegar gat
kom á það og olía lak í sjóinn. Í fyrstu
var talið að ekki væri um stórtjón að
ræða en fljótlega kom í ljós að olíu-
lekinn væri umtalsverður.
Á dögunum sem eftir fylgdu voru
olíugildrur lagðar umhverfis skipið
til að sporna gegn lekanum. Alls láku
úr skipinu 105 tonn af olíu en svæðið
þar umhverfis er skilgreint sem þjóð-
garður og hafði slysið slæm áhrif á
dýralíf í kring. Björgunar- og hreinsiað-
gerðir vegna slyssins kostuðu alls um
1,7 milljarða króna. ■
Þetta gerðist 11. febrúar 2011
Gámaskipið Goðafoss strandar
1899 Knattspyrnufélag Reykjavíkur
er stofnað.
1918 Litáen lýsir yfir sjálf-
stæði frá Rússlandi og
Þýskalandi.
1920 Fyrsta dómþing
Hæstaréttar Íslands
er háð. Þar með hafa
Íslendingar fengið
æðsta dómsvald í eigin
málum.
1923 Howard Carter opnar gröf
Tútankamons.
1927 Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, er stofnaður.
1937 Wallace H. Carothers fær einkaleyfi á næloni.
1941 Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, fæðist
1951 Verkfall strætisvagnastjóra hefst í Reykjavík.
1959 Fidel Castro tekur við völdum á Kúbu eftir að Ful-
gencio Batista hefur verið settur af.
1968 Neyðarlínan 911 er tekin í notkun í Bandaríkj-
unum.
1978 Fyrsta upplýsingatöflukerfið, CBBS, er sett upp í
Chicago.
1981 Ofviðri gengur yfir Suðvesturland að kvöldi þessa
mánaðardags og verður mikið tjón á húsum og
bílum, meðal annars í Engihjalla í Kópavogi. Staðar-
hólskirkja í Saurbæ í Dalasýslu fýkur af grunni.
1999 Kúrdískir skæruliðar hertaka nokkur sendiráð í
Evrópu.
2005 Kýótóbókunin tekur gildi eftir undirskrift Rúss-
lands, án stuðnings Bandaríkjanna og Ástralíu.
2011 Flutningaskipið Goðafoss strandar í Ytre Hvaler-
þjóðgarðinum, skammt undan Fredrikstad við
Noregsstrendur.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 16. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGUR