Fréttablaðið - 16.02.2022, Side 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Nú geturðu tryggt
þitt fyrirtæki
fyrir netárásum Hugsum í framtíð
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Eitt sinn var bankað upp á heima
hjá mér að loknum vinnudegi.
Þegar ég opnaði dyrnar stóð ungur
drengur í dyragættinni sem sagði:
„Uhhh … trampólínið ykkar er í
innkeyrslunni okkar.“ Saga þessi
rifjaðist upp í óveðrinu um daginn
og hækkaði stressmælinn allveru-
lega. Með eiginmanninn víðs fjarri
dröslaði ég inn snævi þöktu grilli og
öðru sem kona ræður við. Kross-
aði svo fingur að hitt stæði af sér
storminn og klappaði sjálfri mér á
bakið fyrir að tryggja lausamuni
eftir bestu getu.
Síðustu tvö ár hefur annars
konar stormur geisað. Til að draga
úr líkum á heilsutjóni hvetja
yfirvöld okkur til að þiggja bólu-
setningu, spritta putta, halda okkur
í hæfilegri fjarlægð frá öðrum og
fela okkur á bak við grímu. Mér
hefur þótt athyglisvert að lítið er
lagt upp úr vörnum sem eru ekki
síður mikilvægar. Til dæmis að
borða mat sem kemur beint úr
náttúr unni, eins og spergilkál sem
inniheldur um 500 næringarefni á
meðan fjölvítamín gefa þér mest
30. Til að ónæmisfrumur starfi eðli-
lega þurfa þær að hafa aðgang að
C- og D-vítamíni, sinki, seleni, járni
og próteinum, sem best er að fá úr
náttúrunni. Pillur virka ekki jafn
vel og geta stundum valdið skaða.
Við þurfum líka að gefa okkur
tíma til að sofa og slaka á, eiga í
góðum samskiptum við fólkið
okkar, hreyfa okkur markvisst og
halda áfengi og tóbaki í núlli eða
algjöru hófi. Heilbrigt hófstillt
líferni gerir ónæmiskerfið okkar
hæfara til verjast sýklum. Vissulega
veikjast sumir sem gera allt rétt, en
með því að passa upp á heilsuna
minnkum við verulega líkurnar á
heilsutjóni.
Nú reynum við að koma eigum
okkar í öruggt skjól þegar stormur
er í aðsigi, en hvað með eigin heilsu
– hvað gerir þú til að verjast heilsu-
tjóni? n
Stormur
Askja · Krókhálsi 11–13, 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
*Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af. Lestu meira um ábyrgðina á www.kia.com/abyrgd.
Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun banda ríska grei ning ar
fyr ir tæk is ins J.D. Power yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð
sem Kia er í efsta sætinu í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er
þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílamerki og því er
sannarlega um tímamót að ræða.
Komdu og reynsluaktu Kia.
Við tökum vel á móti þér.
Gæðin eru staðfest.
Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power.
1. sæti í flokki allra bílaframleiðenda
1. sæti í flokki söluhæstu bílaframleiðenda
Áreiðanleikakönnun J.D. Power 2022