Fréttablaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 1
Útlit er fyrir að nýting á hótelherbergjum í febrúar verði 70 pró- sent en ekki undir 50 prósentum eins og áætlað var. 3 4 . t ö l u b l a ð 2 2 . á r g a n g u r f rettab lad id . i s F ö S t u D a g u r 1 8 . F e b r ú a r 2 0 2 2 Mismunandi móðurhlutverk Vísindi á mannamáli Lífið ➤ 36 Lífið ➤ 38 Útlit er fyrir að fjöldi erlendra ferðalanga hér á landi í ár nái um sjötíu prósentum af því sem hann var 2019, en þegar ber á miklu meiri önnum á hótelum en áætlanir gerðu ráð fyrir. ser@frettabladid.is FerðaÞJÓnuSta Nýting á hótelher­ bergjum á fyrstu mánuðum ársins hér á landi er mun meiri en útlit var fyrir undir lok síðasta árs. Áætlað var að hún yrði undir 50 prósentum nú í febrúar, en reyndin er allt önnur og betri, upp undir 70 prósent. „Það hefur orðið ótrúlega skörp aukning á skammtímabókunum,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferða­ þjónustunnar, og metur það svo að yfirstandandi mánuður verði „stór­ góður miðað við aðstæður“. Undir það tekur Kristófer Oli­ vers son, formaður FHG, félags fyrir­ tækja í hótel­ og gistiþjónustu, en ekki sé saman að jafna frá febrúar á síðasta ári „þegar nýtingin mældist varla“. Jóhannes segir að nýjustu aflétt­ ingar á ferðatakmörkunum skipti sköpum fyrir f jörkipp í ferða­ þjónustunni, uppsöfnuð ferðaþörf fólks sem ætlaði sér hingað til lands í desember, en varð frá að hverfa vegna aðstæðna, sé nú að skila sér til landsins. Bókunarstaða hótelanna fyrir sumarmánuði er einnig að batna, sérstaklega seinni hluta sumars og fram á haust. Bæði Jóhannes og Kristófer vonast til að annasömustu mánuðirnir dragi til sín um 70 pró­ sent af ferðamannafjöldanum 2019 – og hingað komi upp undir 600 þús­ und manns frá júlí og fram í septem­ ber, sem er á pari við allt árið í fyrra. Þeir ítreka báðir að áskoranir greinarinnar séu miklar og felist í manneklu, húsnæðisskorti og fyrir­ sjáanlegur sé líka hörgull hjá bíla­ leigum. „Menn eru ekki búnir að jafna sig eftir tveggja ára tekjufall,“ bendir Kristófer á. „Fjárhagsgreining Ferðamála­ stofu sýnir,“ segir Jóhannes, „að eig­ infjárstaðan getur hæglega þurrkast upp á næstu tveimur árum þegar allur kostnaður fer aftur af stað.“ ■ Ferðabókanir að utan hafa rokið upp Súkkulaðipáskaegg MJÓLKURSÚKKULAÐI Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til. Virðisaukinn er farinn út í bláinn! Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!* *Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu. HEKLA · Laugavegi 170-174 · mitsubishi.is/eclipse heilbrigðiSmál „Mér finnst að trans fólk almennt hafi alltaf verið svolítið vanræktur hópur í heil­ brigðiskerfinu,“ segir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, for­ maður Trans Íslands. Langur biðtími eftir kynleiðrétt­ ingaraðgerð getur reynst hættuleg­ ur þeim sem bíða slíkrar aðgerðar. Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að stytta biðtímann. sjá síðu 8 Trans fólk bíður í heilbrigðiskerfinu Færðin í Reykjavík undanfarna daga hefur gert borgarbúum kleift að æfa sig í hefðbundnum vetrarakstri með nægum snjó fyrir alla og gott betur eins og í götunni Miðhúsum í Grafarvogi. Fréttablaðið/Ernir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.