Fréttablaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 50
Matur og matargerð er líf og yndi Helgu Gabríelu Sig- urðardóttur. Hún útskrifaðist sem matreiðslumaður frá VOX árið 2019 og vann eftir sveinspróf sem yfirkokkur á Klömbrum Bistró. Þessa dagana nýtur hún þess að vera í fæðingarorlofi. sjofn@frettabladid.is Helga Gabríela Sigurðardóttir segist dásamlega vel gift Frosta Logasyni og saman eiga þau tvo drengi. „Þeir eru allir miklir nautna- seggir og ég elska að elda hollan og góðan mat fyrir þá. Ég stunda reglu- lega líkamsrækt og er orðin algjör prjónakerling eftir að ég eignaðist strákana mína. Veit fátt betra en að að setjast í sófann með hljóðbók, kaffibolla og prjóna.“ Hvenær kviknaði áhuginn á bakstri og matargerð? „Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á matargerð. Ég þvældist mikið í eldhúsinu hjá ömmu og afa í Drápu- hlíð og fékk alltaf að hjálpa til. Enda kom engum á óvart þegar stefnan var tekin á kokkinn um tvítugt. Ég hef líka eldað mikið með mömmu og er þakklát fyrir að hafa alist upp við frábæra eldamennsku og fengið að taka þátt. Þetta voru dýrmætar fjölskyldustundir sem sitja í minn- ingunni. Mér hefur líka alltaf fund- ist gaman að baka en það var ekki fyrr en á VOX sem ég fór að læra master-eftirréttagerð og bakstur. Áhuginn jókst svo með aukinni getu eftir því sem ég varð betri og flinkari,“ segir Helga Gabríela sem í dag rekur Smakk sem sérhæfir sig í veislukökum fyrir öll tækifæri. Matur er mannsins megin Hvaða matargerð heillar þig mest? „Frönsk matargerð á hjarta mitt. En ég elska að elda mexíkanskt eða ítalskt fyrir fjölskylduna. Lífið væri erfitt án tacos og pitsu.“ Hvar slær hjarta heimilisins? „Eldhúsið er besti staðurinn, enda er matur mannsins megin.“ Ómissandi eldhúsáhald? „Góð panna og góður hnífur.“ Hvað áttu ávallt til í ísskápnum? „Haframjólk, sódavatn, sítrónur, súr, góðgerla og engiferskot.“ Áttu hlut sem þér þykir vænt um? „Ætli það sé ekki ítalska La Pavoni-espressovélin hans afa sem ég er með í láni á meðan þau búa í Portúgal. Hann hefur átt hana í 18 ár og hún virkar eins og draumur.“ Uppáhaldsmatarstellið? „Iittala-matarstellið sem ég fékk frá Helgu ömmu. Það er svo fínt að ég nota það nánast bara á jólum.“ Matur sem minnir þig á æskuna? „Það er klárlega eldrauður tando- ori-kjúklingur og „thai fish cakes“ með sweet chili sósu, gúrkum og salthnetum sem ég fékk hjá ömmu og afa í Drápuhlíð.“ Hvað er skemmtilegast að baka? „Klárlega eitthvað með súr; súr- deigsbrauð, beyglur eða pitsu. Líka góðar súkkulaðibitakökur. Er með uppskrift að einni slíkri á Insta- gram, @helgagabriela.“ Lumar þú á skemmtilegu matar- kombói sem ekki margir þekkja? „Fiskur í raspi og bananar. Hljóm- ar furðulega, en hrikalega gott með nýjum soðnum kartöflum, mýktum lauk og remúlaði.“ Hvar sérðu þig eftir tíu ár? „Hamingjusöm þriggja barna móðir, í góðu formi og með eigin rekstur í miklum blóma.“ Helga Gabríela gefur uppskrift að sínum uppáhaldskjúklingarétti. „Uppskriftin er frá afa mínum sem er mikill matgæðingur. Ég hef lært mikið af honum og hann gerir alveg geggjaðan mat.“ Ómótstæðilegur kjúklingaréttur afa Kjúklingur (leggir og læri) 1-2 stk. sítrónur Handfylli af ferskri basilíku Góð ólífuolía Hvítlauksrif fyrir hvern kjúklinga- bita Salt og pipar eftir smekk Lykilatriði í þessum rétti er að nota góð hráefni og láta kjúklinginn standa við stofuhita í klukkustund áður en hann er eldaður. Þá verður hann lungamjúkur og safaríkur. Það fyrsta sem ég geri er að nudda kjúklinginn upp úr góðri ólífuolíu og krydda vel með ferskum pipar og smá Maldon-salti. Í lokin sting ég hvítlauksrifi inn í eða undir hvern bita. Grillið kjúklinginn við 200°C í ofni í um 25 mínútur, eða þar til hann er gylltur og stökkur. Setjið þá sítrónusneiðar og basilíku yfir kjúklinginn. Ég nota basilíku frá Vaxa, hún geymist vel í ísskáp og bragðast dásamlega. Í lokin er gott að hella örlitlu af olíu yfir til að koma í veg fyrir að sítrónan og basilíkan þorni upp. Setjið kjúklinginn aftur í ofninn og grillið í 5-10 mínútur. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er tilvalið að nota ólífuolíuna og gúmmulaðið úr ofnbakkanum til að „drissla“ kjúklinginn. Sumum finnst gott að setja soðið yfir taglia telle. Það er gott að bera réttinn fram með gufu- soðnum gulrótum og spergilkáli. n Frönsk matargerð á hjarta mitt Helga Gabrí- ela segir lífið erfiðara án taco og pitsu. MYNDIR/ MARGRÉT R. JÓN- ASAR Kjúklingaréttur afa Helgu Gabríelu er í miklu dálæti enda undurgóður. www.lysingoghonnun.is 4 kynningarblað 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURMATUR OG HEIMILI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.