Fréttablaðið - 05.03.2022, Side 50

Fréttablaðið - 05.03.2022, Side 50
Ert þú snillingur? Sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að framsæknum sérfræðingi í efnahags- og fjármálum sem hefur reynslu af og þekkingu á gagnagrunnum og – vinnslu. Viðkomandi ber ábyrgð á þróun og rekstri gagnagrunna og greiningu gagna. » Helstu verkefni og ábyrgð: • Kemur að þróun nýrra lausna í gagnamálum s.s. vöruhúsgagna, gagnalón o.fl. • Tekur þátt í greiningu á fjármálum sveitarfélaga og efnahagsumhverfi þeirra. • Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum hag- og upplýsingasviðs að öflun, miðlun og úrvinnslu gagna um sveitarfélög. • Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum. » Hæfnikröfur • Háskólapróf í hagfræði eða skyldum greinum greinum sem nýtist í starfi. Framhaldsnám er kostur. • Haldgóð þekking á efnahagsmálum og málefnum sveitarfélaga. • Yfirgripsmikil þekking á hugbúnaði og gagnavinnslu. • Reynsla af verkefnum á sviði gagnastjórnunar, eins og viðskiptagreind og vöruhúsi gagna. • Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu á gögnum. • Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum • Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga. • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti. Frekari upplýsingar um starfið Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Nánari upplýsingar veita: Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs, netfang: sigurdur.snaevarr@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900 Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á hag- og upplýsingasviði “, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti á samband@samband.is. Sérfræðingur á kjarasviði Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að einstaklingi í starf sérfræðings á kjarasviði sem hefur til að bera frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnu- brögðum og getu til að vinna sjálfstætt og með öðrum að fjölbreyttum verkefnum. » Helstu verkefni og ábyrgð: • Annast gerð reiknilíkana vegna kostnaðarmats kjarasamninga. • Hefur umsjón með framkvæmd og úrvinnslu kjararannsókna kjarasviðs. • Annast sérfræðiráðgjöf um framkvæmd og túlkun kjarasamninga ásamt gerð leiðbeininga til sveitarfélaga vegna launaútreikninga. • Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum kjarasviðs að undirbúningi og gerð kjarasamninga og tekur þátt í kjaraviðræðum. • Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum. » Hæfnikröfur • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi. Framhaldsnám er kostur. • Góð þekking á kjarasamningsumhverfi opinbers vinnumarkaðar. • Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum • Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga. • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti. Frekari upplýsingar um starfið Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Nánari upplýsingar veita: Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs, netfang: inga.run.olafsdottir@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900. Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á kjarasviði“, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is. Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að tveimur snillingum í liðið og við látum staðsetningu ekki stoppa okkur í stafrænum heimi þar sem báðar stöðurnar eru auglýstar óháð staðsetningu. Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, möguleika á heimavinnu, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Ekki skemmir fyrir að sambandið er heilsueflandi vinnustaður sem leggur ríka áherslu á fjölskylduvænt umhverfi og heimavinnu. Þannig að ef þetta heillar þig og ef þú ert snillingur þá viljum við heyra í þér. Starfsaðstaða Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfslýsingar fyrir störfin ásamt mannauðsstefnu sambandsins. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is 16 ATVINNUBLAÐIÐ 5. mars 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.