Fréttablaðið - 05.03.2022, Qupperneq 50
Ert þú snillingur?
Sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að framsæknum sérfræðingi í efnahags-
og fjármálum sem hefur reynslu af og þekkingu á gagnagrunnum og – vinnslu.
Viðkomandi ber ábyrgð á þróun og rekstri gagnagrunna og greiningu gagna.
» Helstu verkefni og ábyrgð:
• Kemur að þróun nýrra lausna í gagnamálum s.s. vöruhúsgagna, gagnalón o.fl.
• Tekur þátt í greiningu á fjármálum sveitarfélaga og efnahagsumhverfi þeirra.
• Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum hag- og upplýsingasviðs að öflun,
miðlun og úrvinnslu gagna um sveitarfélög.
• Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum.
» Hæfnikröfur
• Háskólapróf í hagfræði eða skyldum greinum greinum sem nýtist í starfi.
Framhaldsnám er kostur.
• Haldgóð þekking á efnahagsmálum og málefnum sveitarfélaga.
• Yfirgripsmikil þekking á hugbúnaði og gagnavinnslu.
• Reynsla af verkefnum á sviði gagnastjórnunar, eins og viðskiptagreind og
vöruhúsi gagna.
• Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu á gögnum.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum
• Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga.
• Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Nánari upplýsingar veita: Sigurður Á. Snævarr,
sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs, netfang: sigurdur.snaevarr@samband.is,
eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á hag- og
upplýsingasviði “, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands
íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti
á samband@samband.is.
Sérfræðingur á kjarasviði
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að einstaklingi í starf sérfræðings á kjarasviði
sem hefur til að bera frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnu-
brögðum og getu til að vinna sjálfstætt og með öðrum að fjölbreyttum verkefnum.
» Helstu verkefni og ábyrgð:
• Annast gerð reiknilíkana vegna kostnaðarmats kjarasamninga.
• Hefur umsjón með framkvæmd og úrvinnslu kjararannsókna kjarasviðs.
• Annast sérfræðiráðgjöf um framkvæmd og túlkun kjarasamninga ásamt gerð
leiðbeininga til sveitarfélaga vegna launaútreikninga.
• Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum kjarasviðs að undirbúningi og gerð
kjarasamninga og tekur þátt í kjaraviðræðum.
• Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum.
» Hæfnikröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi.
Framhaldsnám er kostur.
• Góð þekking á kjarasamningsumhverfi opinbers vinnumarkaðar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum
• Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga.
• Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Nánari upplýsingar veita: Inga Rún Ólafsdóttir,
sviðsstjóri kjarasviðs, netfang: inga.run.olafsdottir@samband.is, eða
Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á kjarasviði“,
berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að tveimur snillingum í liðið og við látum staðsetningu ekki stoppa okkur í stafrænum heimi þar sem báðar stöðurnar eru auglýstar óháð
staðsetningu. Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, möguleika á heimavinnu, samheldinn starfsmannahóp og skapar
starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Ekki skemmir fyrir að sambandið er heilsueflandi vinnustaður sem leggur ríka áherslu á fjölskylduvænt umhverfi og heimavinnu.
Þannig að ef þetta heillar þig og ef þú ert snillingur þá viljum við heyra í þér.
Starfsaðstaða
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig
á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is.
Þar er einnig að finna starfslýsingar fyrir störfin ásamt mannauðsstefnu sambandsins.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
16 ATVINNUBLAÐIÐ 5. mars 2022 LAUGARDAGUR