Fréttablaðið - 05.03.2022, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 05.03.2022, Blaðsíða 86
Leikskáldið Hrafnhildur Hagalín skrifaði sína fyrstu ljóðabók á æskuslóðum rit­ höfundaferils síns á Spáni. Hún segir ljóðið og leikritið að mörgu leyti skyld form. tsh@frettabladid.is Hrafnhildur Hagalín Guðmunds­ dóttir sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók á dögunum, sem ber titil­ inn Skepna í eigin skinni. Hrafn­ hildur hefur starfað sem leikskáld, þýðandi og dramatúrg um árabil og getið sér gott orð fyrir störf sín á þeim sviðum. Hrafnhildur segir ljóðin hafa kviknað þegar hún tók sér þriggja mánaða leyfi frá starfi sínu í Borgarleikhúsinu fyrir þrem­ ur árum hvar hún starfaði sem list­ rænn ráðunautur. „Ég hafði aldrei gefið mér neinn tíma til þess að huga að skriftum á þessu tímabili þannig að ég var orðin svolítið langeyg eftir því og bað um leyfi og fór í þrjá mánuði til Frakklands og Spánar og var ekki með neitt sérstakt plan. Ég fór í borgina Alcoy þar sem ég í rauninni hóf minn rithöfundarferil. Var áður í gítarnámi þar og svissaði svo yfir og fór að skrifa mitt fyrsta leikrit, Ég er meistarinn. Ég var þarna í tvo, þrjá mánuði og fór að rifja upp alls konar sem hafði átt sér stað þar, þannig að ljóðin eiginlega bara komu til mín.“ Í bókinni er mikið um borgar- og landslagsmyndir en þú ert líka að fjalla um tilfinningar og minningar, mætti kannski segja að þetta væri einhvers konar kontrapunktur á milli hins innra og ytra landslags? „Já, það má kannski segja það. Það var eiginlega dálítið merkilegt að koma þarna aftur af því að það er náttúrlega langur tími liðinn og það er nú eitt það skemmtilega við að eldast að maður sér alltaf hlut­ ina í nýju og nýju ljósi og fattar að maður er eiginlega margar per­ sónur yfir ævina. Að koma aftur á þennan stað og rifja alls konar upp og uppgötva það hvað minn­ ingin er hál og hvað líkaminn getur geymt mikið af alls konar tilfinn­ ingum og minningum sem maður kannski nær ekki alveg yfir vits­ munalega.“ Þannig að það var ekki mikil áreynsla að skrifa bókina? „Nei, í rauninni ekki og ég fór að lesa mikið ljóð, ég hef nú alltaf lesið töluvert af ljóðum og haft gaman af því. Það hafa margir sagt að leik­ ritin mín sum séu ljóðræn þannig að þetta er svo sem alveg í samhengi við það sem ég hef gert áður.“ Hrafnhildur segist sammála því að ljóð og leikrit séu skyld fyrirbæri að því leytinu til að formin séu bæði mjög knöpp. „Ljóð eru kannski svona eins og litlar óperur í sjálfu sér, þau sam­ ræma í rauninni allar listgreinarnar, þau eru með hrynjandi og þau eru myndlist og það er hægt að f lytja þau eins og litla leikþætti. Hrynj­ andin í tungumálinu í ljóði er líka í takt við leikrit að því leytinu til að þau eru flutt og það er hlustað á þau, ljóðin náttúrlega hófu sinn feril þannig að þau voru mælt af munni fram,“ segir hún. Er einhvers meira að vænta frá þér í ljóðlistinni eða heldurðu að þú munir snúa þér aftur að leikritun? „Já, það er aldrei að vita. Ég er með alls konar í bígerð og langar til þess að fara að gefa skriftum meiri tíma. Ég er náttúrlega búin að vera í leikhúsinu núna alveg í átta ár í fullu starfi og rúmlega það þannig að þetta kallar á orðið,“ segir Hrafn­ hildur að lokum. n Maður er eiginlega margar persónur yfir ævina Hrafnhildur Hagalín leitaði aftur á æsku- slóðir á Spáni við ritun bókarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR ÁRNASON Orfeus Höfuð þitt hrekst eftir botninum hver steinn á veginum verður ríkari af mýkt meðan andlit þitt eyðist og hafið setur upp helgrímu þína tsh@frettabladid.is Á sunnudag verður haldið lista­ verkauppboð í Gallery Porti til styrktar Úkraínu. Fjölmargir lista­ menn taka þátt í uppboðinu og mun allur ágóði renna til mannúðar­ og baráttusamtaka í Úkraínu. Skipuleggjendur eru úkraínsk­ íslenski listamaðurinn Alexander Zaklynsky og sænski listamaðurinn Julia Mai Linnéa Maria, ásamt þeim Árna Má Erlingssyni og Skarphéðni Bergþórusyni hjá Gallery Porti. Alexander segist hafa stokkið til þegar Julia kom með hugmyndina að uppboðinu en hann á mikið af vinum og vandamönnum í Úkraínu og vildi reyna að láta gott af sér leiða. „Ég á fjölskyldu í Úkraínu og þau eru í miklum vandræðum í átök­ unum og ég varð að gera eitthvað.“ Að sögn Alexanders er auðvelt að líða eins og maður sé bjargarlaus vegna ástandsins og er uppboðið ein leið til að takast á við það. Fjölmargir listamenn hafa gefið verk á uppboðið, þar á meðal ljós­ myndarinn Óskar Hallgrímsson sem er búsettur í Kænugarði ásamt úkraínskri eiginkonu sinni. „Núna eru í kringum fimmtíu listamenn og það bætast f leiri við dag hvern. Næstu helgi verðum við í Bíó Paradís og helgina eftir það stefnum við á að sýna nokkrar úkraínskar kvikmyndir þar,“ segir Alexander. Um svokallað hljóðlátt uppboð er að ræða og verður því ekkert ham­ arshögg. Jón Gnarr setur uppboðið en hann hefur sjálfur persónuleg tengsl við Úkraínu og forseta lands­ ins Volodímír Zelenskíj. Nánari upplýsingar eru á Facebo­ ok og artists4ukraine.com. n Uppboð til styrktar Úkraínu Skipuleggjendur uppboðsins eru Alexander Zaklynsky, Julia Mai Linnéa Maria, Skarphéðinn Bergþóruson og Árni Már Erlingsson. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 50 Menning 5. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 5. mars 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.