Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 2
Endurbætur á húsnæð-
inu kosta 600 milljónir
króna.
Það komu hingað 110
manns til að vinna að
þessu og við vorum
svo um 80 í innlenda
tökuliðinu.
Sædís Kolbrún
Steinsdóttir, hjá
TrueNorth
Svangir svanir á Seltjarnarnesi
Lokaþættir nýjustu seríu
Bachelor voru teknir upp
á Íslandi í haust og sýndir í
sjónvarpi í síðustu og þessari
viku. Sérfræðingar sem komu
að framleiðslu þáttanna hér
á landi eru sammála um að
landkynningin sé verulega
verðmæt.
lovisa@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Gera má ráð fyrir
að rúmar þrjár milljónir Banda-
ríkjamanna hafi séð Bachelor-
þættina í línulegri dagskrá auk þess
sem mikill fjöldi horfir á streymis-
veitum.
„Þetta hefur mjög mikið að segja
og vekur áhuga hjá fólki á að ferðast
til Íslands,“ segir Sigríður Dögg Guð-
mundsdóttir, fagstjóri ferðaþjón-
ustu hjá Íslandsstofu.
„Þannig er svo sterkt núna að
vera í lokaþáttum Bachelor. Þetta er
rosalega vinsælt sjónvarpsefni með
mikið áhorf auk þess sem tímasetn-
ingin er mjög góð því á sama tíma
er verið að aflétta takmörkunum
vegna heimsfaraldursins,“ segir
Sigríður.
„Það að þessi tiltekni þáttur hafi
verið tekinn upp á Íslandi hefur
gríðarlega jákvæð áhrif á Ísland
sem áfangastað,“ segir Hjalti Már
Einarsson, viðskiptaþróunarstjóri
hjá Datera, en fyrirtæki hans hefur
frá því að fyrri þátturinn var sýndur
í síðustu viku greint ýmis gögn um
leitaráhuga og Ísland á netinu.
„Þær þjónustur og vörur sem komu
fram í þáttunum hafa allar fengið
mikla athygli í leitarvélum. Sama
hvort um ræðir gististaði, afþrey-
ingu, fatamerki eða baðlón. Tökum
dæmi um baðlón og spa á Íslandi.
Gögnin sýna að velflest baðlón og
spa-tengd afþreying á Íslandi er að
njóta góðs af þeim í leitaráhuga frá
Bandaríkjunum í kjölfar þáttarins.“
Sædís Kolbrún Steinsdóttir, fram-
leiðandi hjá TrueNorth, segir að
þetta sé með skemmtilegri verk-
efnum sem hún hafi tekið þátt í en
hlutverk TrueNorth var sem dæmi
að velja og finna áfanga- og gisti-
staði fyrir stefnumótin sem voru í
lokaþáttunum og fjölskyldusamveru
sem er í þeim síðasta ásamt tökustað
rósaafhendinga og bónorðs.
„Það komu hingað 110 manns til að
vinna að þessu og við vorum svo um
80 í innlenda tökuliðinu. Auk þess er
svo fólkið sem kom fram í þáttunum
eins og kórinn í Hallgrímskirkju og
aðrir sem komu fram,“ segir Sædís.
Hún segir að framleiðsludeildin hafi
verið óvenjustór því um sé að ræða
raunveruleikaþátt og að það hafi
þurft að undirbúa marga tökustaði
í einu. Aðspurð um hvernig það hafi
verið að halda þessu leyndu í marga
mánuði segir Sædís hlæjandi að það
hafi gengið óvenju vel.segir Sædís og
hlær. n
Ástarævintýri Claytons hér
á landi verulega verðmæt
Fyrri Íslandsþátturinn var sýndur á skjá í Sky Lagoon þar sem eitt stefnu-
mótið átti sér stað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nánar á frettabladid.is
AUGLÝSING
um sveitarstjórnarkosningar 2022.
Á grundvelli 1. mgr. 24. gr. kosningalaga
nr. 112/2021 með síðari breytingum, fara almennar
sveitarstjórnarkosningar fram 14. maí 2022.
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar
í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi föstudaginn
8. apríl 2022. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast
undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til
yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu skal hefja svo fljótt
sem kostur er eftir að framboðslistar hafa verið auglýstir,
þó eigi síðar en 29 dögum fyrir kjördag.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt
2. mgr. 24. gr. framangreindra laga.
Landskjörstjórn, 17. mars 2022.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTURLAND Félagasamtökin sem
rýma þurftu Brákarbraut 25 til 27
í Borgarnesi fyrir ári geta sótt um
styrk upp á samanlagt 7,5 milljónir
króna til að koma starfseminni fyrir
á nýjum stað. Þau þurftu að víkja
úr húsnæðinu vegna ákvörðunar
slökkviliðsstjóra um ófullnægjandi
brunavarnir.
Félögin sem geta fengið styrki eru
Fornbílafjelag Borgarfjarðar, bif-
hjólafélagið Raftarnir, körfuknatt-
leiksdeild Skallagríms, Skotfélag
Vesturlands og Golfklúbbur Borg-
arness. Hefur ríkt nokkur óánægja
með rýminguna og hefur formaður
skotfélagsins til að mynda gagnrýnt
hana harðlega.
Samkvæmt skýrslu verkfræði-
stofunnar Verkíss myndu endur-
bætur á húsnæðinu, til að hægt sé að
koma starfseminni aftur fyrir, kosta
600 milljónir króna. Þann kostnað
er sveitarfélagið ekki reiðubúið að
leggja í og óvíst hvað verður um hús-
næðið. n
Félögin í Brákarey
fá samanlagt sjö
og hálfa milljón
elinhirst@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Það sem borgarráð
samþykkti að gera er hvorki fugl né
fiskur,“ segir Hrafn Jökulsson rithöf-
undur og einn af forsvarsmönnum
Réttlætis, hóps sem vill rannsókn á
starfsemi vöggustofa á vegum Reykja-
víkurborgar. Hrafn var gestur Frétta-
vaktarinnar á Hringbraut í gærkvöldi
ásamt Árna H. Kristjánssyni sagn-
fræðingi, sem einnig er í hópnum.
„Það eru sjö mánuðir síðan við
gengum á fund borgarstjóra og
lögðum fram mjög vel rökstudda
kröfu um rannsókn á starfsemi á
vöggustofunum sem voru reknar af
Reykjavíkurborg frá 1949-1979. Og
þar fóru í gegn allt að 2.000 börn á
þessum tíma. Og það er óumdeilt að
þarna voru vinnubrögð og aðbúnað-
ur þannig að það var mannskemm-
andi fyrir litlu börnin. Við vildum fá
ítarlega rannsókn á því og hvað varð
um börnin, því að við vissum að svo
mörg hafa orðið fyrir skaða í lífinu.
En borgarráð afgreiddi þetta eftir
allan þennan tíma eins og einhverja
hálfvelgju eins og þeir hefðu ekki
kynnt sér málið,“ segir Hrafn.
Árni sagði að þau væru ánægð með
að borgarráð hafi samþykkt rann-
sókn en þegar þau hafi farið að lesa
markmiðin og hvað borgaryfirvöld
ætla sér með rannsókninni þá hafi
það valdið vonbrigðum. Málið sé
illa skilgreint, mjög loðið og ekki að
sjá að neinum markverðum spurn-
ingum verði svarað. n
Borgin að svæfa vöggustofumálin
Hrafn Jökulsson,
rithöfundur og
skákmaður
Eldri maður gaf sér tíma á milli élja og gaf svöngum svönum brauð á Seltjarnarnesi í gær. Svanirnir hópuðust saman og fengu sér gott í gogginn en þeir virtust
hæstánægðir með góðvildina þegar ljósmyndari Fréttablaðsins bar að garð. Sílamáfur naut einnig góðs af og flaug með brauðbita í burtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 Fréttir 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ