Fréttablaðið - 17.03.2022, Side 6
Við eigum í alvarlegum
viðræðum um vopna-
hlé með fyrirvörum.
Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands
Í dag eru tólf sveitar-
félög með færri en 250
íbúa og 25 með undir
1.000.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Tónlistarsjóður
2022
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að
kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til
kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki.
Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki
lengur en til eins árs í senn.
Umsóknartímabil er frá 17. mars til 2. maí 2022 kl. 15.00.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.
Gert er ráð fyrir að viðspyrnuaðgerðir ríkisstjórnar sem
kynntar voru síðastliðinn janúar hækki Tónlistarsjóðinn um
50 milljónir króna árið 2022, fjárframlag er ætlað
viðburðarhaldi á árinu.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári,
í maí og nóvember.
tonlistarsjodur@rannis.is.
Sími: 515 5800
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Institute for the Study of War, UK Ministry of Defence, Reuters
Innrás í Úkraínu – dagur 21
PÓLLAND
SLOVAKIA
UNGVERJALAND
RÚMENÍA
MOLDÓVA
SVARTAHAF
Lvív
Donetsk
Lútsk
Dnípro LúhanskKríjvíji
Ríh
Karkív
Kænugarður Súmíj
Konotop
Sjostka
Gomel
Tjernív
Odessa
Míjkolaíjv
Kerson Berdíjansk
Melítopol
Zaporizhzhia
Maríupol
Ívano-
Frankívsk
Ú K R A Í N A
HVÍTA-RÚSSLAND R Ú S S L A N D
KRÍMSKAGI
DONBASS-
SVÆÐIÐ
60 mílur
100 km
1
2
3
4
5
6
8
7
Borgir
undir
stjórn
Rússa
Svæði undir
stjórn Rússa
Sókn Rússa
Umkringdar borgir
Átakasvæði
Kænugarður: Áfram skotið á
íbúðarhúsnæði. Útgöngubann.
Maríupol: Áfram skotið á borgina
sem er alveg umkringd. Rússneskir
hermenn halda 400 gíslum á spítala,
þar á meðal læknum og sjúklingum.
Kerson: Úkraínumenn skutu
niður þrjár rússneskar þyrlur við
ªugvöllinn.
Odessa: Fjórtán rússnesk skip gera
sig líkleg til innrásar.
Donbass: Rússar hafa vopnað
almenna borgara til að gæta öryggis.
Gomel: Búið að setja upp tvær
þjálfunarbúðir fyrir málaliða.
Súmíj: Rússar hafa hleypt
almennum borgurum frá tveimur
bæjum skammt frá Súmíj.
Karkív: Tvær húsalengjur eyðilagðar
í sprengjuárásum. Rússar eru að ná
að umkringja borgina.
1
6
7
8
5
3
4
2
Þrjár vikur eru frá því Rússar
réðust inn í Úkraínu. Erind-
rekar landanna eru bjartsýnir
á að viðræður beri árangur.
Bandaríkjamenn auka
stuðning sinn við Úkraínu.
arib@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Tæpar þrjár vikur eru frá
því innrás Rússa í Úkraínu hófst.
Erindrekar Úkraínu og Rússlands
halda áfram viðræðum um mögu-
legt vopnahlé.
Volodímír Selenskíj, forseti Úkra-
ínu, ávarpaði þingmenn í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings í gær þar sem
hann kallaði eftir frekari stuðningi
og hlaut hann standandi lófaklapp
fyrir.
Ítrekaði Selenskíj beiðni um að
lofthelgi landsins yrði lokað, Jens
Stoltenberg, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, ítrekaði
að þeirri beiðni væri hafnað þar
sem slíkt gæti stigmagnað átökin.
„Við sjáum eyðilegginguna, við
sjáum þá mannlegu þjáningu sem
á sér stað í Úkraínu. Ástandið gæti
orðið mun verra ef NATO grípur til
aðgerða sem gætu breytt stöðunni
í beint stríð milli NATO og Rúss-
lands,“ sagði hann.
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur
heitið 800 milljónum dala í beina
hernaðaraðstoð til Úkraínu. Bætist
það við 13,4 milljarða dala aðstoð
til landsins. Öldungadeild Banda-
ríkjaþings sendi frá sér ályktun um
að Vladímír Pútín Rússlandsforseti
væri stríðsglæpamaður, hlaut til-
lagan einróma stuðning.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, var bjartsýnn á að við-
ræður gætu skilað árangri þegar
hann ræddi við RBC-fréttastofuna
í gær. „Við eigum í alvarlegum við-
ræðum um vopnahlé með fyrir-
vörum.“
Kína, sem hefur til þessa verið
hliðhollt Rússum, virðist leika
tveimur skjöldum, sendiherra
Kína í Bandaríkjunum sagði í skoð-
anagrein að Kína hefði ekki haft
neina vitneskju um innrásina og ef
þeir hefðu vitað af henni þá hefðu
Úkraína fær peninga en ekki gæslu
Íbúar Maríupol
sem náðu að
flýja borgina
hafast við í
hringleikahúsi
í Zaporizhzhia.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
stjórnvöld þar reynt að stöðva
áformin.
Forsætisráðherrar Tékklands,
Póllands og Slóveníu funduðu með
Selenskíj í Kænugarði í gær þar sem
þeir ítrekuðu stuðning landa sinna
og Evrópu við stjórn hans.
Samkvæmt minnisblaði breska
varnarmálaráðuneytisins hafa rúss-
neskir hermenn átt í erfiðleikum
með að komast á milli innan Úkra-
ínu og eru því háðir vegakerfinu. Þá
hafa þeir einnig átt í erfiðleikum
með að ná yfirráðum í lofti, hefur
það hægt töluvert á framgangi
þeirra. Talið er að hersveitir fyrir
utan Kænugarð haldi áfram að
safna vistum áður en þær ráðast
á borgina, er líklegt að það gerist í
næstu viku. n
kristinnhaukur@frettabladid.is
BÍLAR Sjálfskiptum bílum hefur
fjölgað hratt á Íslandi á undan-
förnum árum. Árið 2014 var rétt
rúmlega helmingur allra innfluttra
bíla sjálfskiptur og hafði hlutfallið
verið svipað árin þar á undan. Í dag
er mikill meirihluti innfluttra bíla
sjálfskiptur, 83,5 prósent árið 2021.
Þetta kemur fram í svari Sigurðar
Inga Jóhannssonar innviðaráð-
herra til Andrésar Inga Jónssonar,
þingmanns Pírata.
Árið 2021 voru f luttir inn 15.797
bílar, 13.187 af þeim sjálfskiptir,
1.181 beinskiptur og 1.429 óskráðir.
Þá voru aðeins 2.242 bílar, eða
14,2 prósent, hreinir bensínbílar og
hefur hlutfallið aldrei verið lægra.
Árið 2020 var hlutfall hreinna
bensínbíla 22 prósent og 39 pró-
sent 2019.
Vildi Andrés vita hvort ráðherra
teldi reglur um takmörkun öku-
skírteinis þeirra sem taka bílpróf
á sjálfskiptan bíl í samræmi við
þróun bílaf lotans og markmið
stjórnvalda. En samkvæmt Evr-
ópureglugerð er hægt að taka próf á
sjálfskiptan bíl og má viðkomandi
þá ekki keyra beinskiptan bíl. Í
svarinu sagði Sigurður að þetta
fyrirkomulag væri ekki í andstöðu
við markmið stjórnvalda í orku-
skiptum eða í ósamræmi við þróun
bílaflotans. n
Beinskiptingin
að hverfa úr
bílaflotanum
Gírskiptingin skiptir fólk máli.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Samkvæmt nýjum
drögum að leiðbeiningum fyrir lítil
sveitarfélög verða þau að hefja sam-
einingarviðræður eða svara ráðu-
neytinu því hvers vegna það geti
sinnt lögboðnum skyldum sínum.
Á þetta við sveitarfélög með færri
en 250 íbúa fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor og sveitarfélög
með færri en 1.000 íbúa fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar árið 2026.
Upphaf lega vildi Sigurður Ingi
Jóhannsson innviðaráðherra að
íbúalágmarkið yrði skylda. Fjölda-
mörg sveitarfélög hafa því farið af
stað í viðræður eða kosningar um
sameiningar við nágranna sína.
Hins vegar hafa mörg sveitarfélög
streist á móti og sagst sjálf bær þó
að íbúafjöldinn sé lítill. Þær leið-
beiningar sem litu dagsins ljós eru
því málamiðlun milli ráðuneytis-
ins og þeirra.
Í dag eru tólf sveitarfélög með
færri en 250 íbúa og 25 með undir
1.000. Þegar samþykktar samein-
ingar eru gengnar í gegn fækkar
þeim þó í 11 og 21. Tvær samein-
ingarkosningar fara fram um þar-
næstu helgi.
Samkvæmt leiðbeiningunum
þurfa sveitarfélögin þó að skila inn
ítarlegri skýrslu, meðal annars um
fjárhag til næstu þriggja ára, um
hvernig 44 lögboðnum málaflokk-
um og 17 ólögboðnum sé háttað og
hvort sveitarfélagið hafi sett sér 20
tegundir af lögbundnum stefnum
og reglum.
Þá beri sveitarfélögunum að
nefna hvaða sameiningarkostir
komi helst til greina og gera grein
fyrir styrkleikum og veikleikum
fyrir sameiningu. n
Lítil sveitarfélög þurfa
að réttlæta tilvist sína
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
innviðaráðherra
Ómögulegt er að sprengingin hafi
verið slys. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
helenaros@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rússar eru sagðir hafa
jafnað leikhús við jörðu í sprengju-
árás í Maríupol í gær. Leikhúsið
hafði verið notað sem neyðarskýli
íbúa borgarinnar og segja borgar-
yfirvöld í Maríupol að yfir þúsund
manns hafi verið í leikhúsinu þegar
sprengjan féll.
Utanríkisráðherra Úkraínu deildi
mynd á samfélagsmiðlum af rjúk-
andi rústum leikhússins og sagði
hann sprenginguna vera viður-
styggilegan stríðsglæp.
Linnulausar loftárásir og stór-
skotaárásir Rússa hafa nú staðið í
um tvær vikur í Maríupol og telur
utanríkisráðherrann ómögulegt að
um slys hafi verið að ræða. n
Rússar sagðir hafa
sprengt í Maríupol
6 Fréttir 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ