Fréttablaðið - 17.03.2022, Qupperneq 10
Aðalfundur
VM 2022
Aðalfundur félagsins verður haldinn
föstudaginn 25. mars kl. 17:00.
Fundarstaður: Stórhöfða 29
(gengið inn Grafarvogs megin)
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt lögum félagsins.
Nánari upplýsingar varðandi fundinn
er að finna á heimasíðu félagsins, vm.is
Boðið verður upp á léttar veitingar
að fundi loknum.
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna
www.vm.is
Allur þingflokkur Viðreisnar
hafnar hugmyndum um sölu á
þriðjungshlut í Landsvirkjun. Þau
leiðu mistök komu fram í Frétta-
blaðinu í gær að einungis Hanna
Katrín Friðriksson, þingflokksfor-
maður Viðreisnar, hefði svarað
fyrirspurn blaðsins. Rétt er að
hún svaraði fyrir hönd alls þing-
flokksins. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
helgivifill@frettabladid.is
Landsbankinn hefur enn ekki ráðið
hlutabréfagreinanda í stað Sveins
Þórarinssonar. Fram kom í frétt
á Innherja í janúar að hann hefði
ráðið sig til Arctica Finance.
Landsbankinn er ekki hættur að
vinna greiningar fyrir fagfjárfesta,
samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum, en verið sé að skoða hvernig
málum verði háttað framvegis.
Sveinn vann við greiningar hjá
Landsbankanum í liðlega átta ár.
Landsbankinn hefur verið eini
bankinn sem unnið hefur verðmöt á
skráðum fyrirtækjum fyrir fagfjár-
festa undanfarin misseri.
Enginn banki vinnur verðmöt
fyrir einstaklinga þrátt fyrir að
MiFID II tilskipunin veiti svigrúm
til að birta opinberlega verðmöt
á smærri hlutafélögum. Öll fyrir-
tækin í Kauphöllinni nema þrjú
falla undir þá skilgreiningu. ■
Ekki enn ráðið í
stað greinanda
magdalena@frettabladid.is
Ísland er langt á eftir því sem er að
gerast í samanburðarlöndunum
hvað varðar stafræna þróun í versl-
unar- og þjónustugeiranum.
Þetta segir Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu, í sjónvarpsþætt-
inum Markaðinum sem sýndur var
á Hringbraut í gærkvöldi.
„Það er skylda okkar að stíga ræki-
leg skref svo við verðum ekki áfram
eftirbátur samanburðarlandanna
hvað þetta varðar. Í grunninn snýst
þetta um að tryggja samkeppnis-
hæfni íslensks atvinnulífs til fram-
tíðar,“ segir Andrés og bætir við að
Samtök verslunar og þjónustu hafi
lagt mikla áherslu á þennan mála-
flokk á undanförnum misserum.
„Við höfum lagt áherslu á þetta í
allri okkar kynningarstarfsemi og
aðstoðað fyrirtækin við að innleiða
stafræna umbreytingu í sinni starf-
semi. Við stigum stórt skref með
stofnun Stafræna hæfniklasans sem
er samstarfsverkefni okkar, VR og
Háskólans í Reykjavík með dyggri
fjárhagslegri aðkomu stjórnvalda.
Þetta er okkar leið til að aðstoða
atvinnulífið við að mynda þekk-
ingu á stafrænni umbreytingu á
öllum sviðum.“
Aðspurður hvað sé fram undan í
stafrænni þróun segir Andrés að erf-
itt sé að spá fyrir um hvað sé handan
við hornið.
„Við munum líklega sjá frekari
þróun í þá átt sem við höfum nú
þegar séð í verslunum. Við höfum
séð sjálfvirka afgreiðslukassa, öpp
og f leiri nýjungar. Við munum sjá
fleira í þeim dúr á næstu misserum.“
Í þættinum var einnig rætt um
verðhækkanir á olíu og hrávörum,
rekstrarumhverfi fyrirtækja, kjara-
mál og netverslun. ■
Segir Ísland eftirbát
samanburðarlandanna
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
MYND/HRINGBRAUT
LEIÐRÉTTING
Í grunninn snýst þetta
um að tryggja sam-
keppnishæfni íslensks
atvinnulífs til fram-
tíðar.
Sviðsstjóri hjá Samtökum
iðnaðarins segir að 80 prósent
af útflutningi Íslands byggi á
orkunýtingu, þar með talin
ferðaþjónusta og sjávarút-
vegur.
helgivifill@frettabladid.is
Áttatíu prósent af útf lutningi
Íslands byggja á orkunýtingu. Ann-
ars vegar er um að ræða orkusækinn
iðnað sem nýtir græna orku. Hins
vegar ferðaþjónustu og sjávarútveg
sem nýta jarðefniseldsneyti.
Þetta segir Sigríður Mogensen,
einn af höfundum grænbókar á
vegum ráðherra um stöðu og áskor-
anir í orkumálum í ljósi loftslags-
markmiða stjórnvalda og sviðsstjóri
hjá Samtökum iðnaðarins, í sjón-
varpsþættinum Markaðinum sem
sýndur var á Hringbraut í gærkvöldi.
Sigríður segir að ef ná eigi mark-
miðum um full orkuskipti meðal
annars í f lugi og á skipum ásamt
því að viðhalda öflugum útflutningi
þurfi orkuframleiðsla að aukast um
120 til 125 prósent fyrir árin 2040
eða 2050, eftir því hvernig á málið sé
litið, samkvæmt grænbókinni. Hún
bendir á að góð lífskjör hér á landi
byggi á útflutningi.
Að hennar sögn er stærsti hlutinn
af aukinni orku sem framleiða þurfi
vegna þess að hætta eigi að nota
jarðefnaeldsneyti og nýta þess í stað
græna orku.
Sigríði finnst ekki koma til greina
að draga úr umsvifum orkusækins
iðnaðar til að heimili og önnur fyr-
irtæki geti nýtt orkuna í orkuskipti,
eins og Auður Önnu Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri Landverndar,
talaði fyrir í sama sjónvarpsviðtali.
Sigríður segir að hin Norðurlönd-
in og Evrópusambandsríki stefni á
að margfalda sína grænu orkufram-
leiðslu.
Hún segir að við megum ekki
láta það gerast að ekki hafi tekist að
ná markmiðum í loftslagsmálum
vegna þess að ekki hafi verið vilji til
að fara í frekari orkuvinnslu.
Auður segir að ekki megi ganga
á náttúruna og afsaka það með því
að vísa til þess að um sé að ræða
aðgerðir í loftslagsmálum. Það muni
leiða til þess að við munum rekast
á annan vegg: Ekki losun gróður-
húsalofttegunda heldur skort á
auðlindum.
„Við verðum að muna að við
búum í kerfi þar sem eðlisfræðilög-
málin segja okkur að auðlindir eru
takmarkaðar. Við verðum að lifa í
sátt við náttúruna,“ segir hún.
Auður segir að millilandaflug sé
skammt á veg komið í að losa sig við
jarðefnaeldsneyti. „Þar gætum við
hreinlega þurft að fækka ferðum en
í mörgum flokkum þarf að hugsa
hlutina upp á nýtt,“ segir hún og
nefnir sem dæmi áherslu á fjöl-
breyttari ferðamáta og að bílaleigur
geti ekki f lutt inn mikinn fjölda af
jarðefnaeldsneytisbílum.
Sigríður segir að í svipmynd Eflu
og Samorku sem hafi verið mest í
umræðunni hvað varðar orkuþörf
hafi verið gert ráð fyrir breyttu
neyslumynstri, fjölbreyttari ferða-
mátum og Borgarlínu, orkusparn-
aði, bættri orkunýtingu vegna
tækniþróunar og svo framvegis.
„Ég er ósammála því að við séum
að fórna íslenskri náttúru,“ segir
hún og nefnir að rammaáætlun sé
til staðar til að tryggja að jafnvægis
sé gætt á milli verndar og nýtingar
náttúrunnar.
Sigríður segir að rammaáætlunin
hafi ekki gagnast vel að undanförnu
því hún hafi verið föst í þinginu.
„Við værum ekki að sjá þessa miklu
aukningu í raforkuframleiðslu
ef rammaáætlunin hefði rúllað í
gegnum þingið jafnt og þétt.“
Hún tekur undir að skoða eigi
aðra valkosti áður en virkjað sé, eins
og að stækka núverandi virkjanir og
bæta orkunýtingu. ■
Útflutningur byggir á orkunýtingu
Sigríður Mogen-
sen, sviðsstjóri
hjá Samtökum
iðnaðarins
Auður Önnu
Magnúsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar
Flugvélar munu í framtíðinni ganga fyrir grænni orku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
10 Fréttir 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR