Fréttablaðið - 17.03.2022, Side 11
Sandra Yunhong She, framkvæmda-
stjóri hjá Arctic Star, segir að hennar
helstu áhugamál séu vinnan og
samverustundir með fjölskyldunni.
Þá hefur hún einnig mikinn áhuga á
kínverskri heimspeki. Arctic Star er
fyrirtæki sem framleiðir fæðubótar-
efni úr sæbjúgum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Áhugamálin eru mörg, það má
segja að vinnan og fjölskyldan megi
líka flokkast undir áhugamálin mín.
Mér leiðist aldrei í vinnunni, alltaf
hægt að finna einhver skemmtileg
og krefjandi verkefni að fást við.
Mér finnst gaman að ferðast og
að upplifa mismunandi menningu.
Við fjölskyldan ferðumst mikið.
Mér finnst gaman að fara í göngu-
túra og stunda útvist. En líka bara
að vera heima eða í bústað með fjöl-
skyldunni, leika við dóttur mína
eða dunda mér í matargerð, fara út
á kaffihús með fjölskyldu eða hitta
vini og félaga. Fara í leikhús eða bíó.
Lífið er stutt og ég nýt þess á meðan
ég get.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Kínversk heimspeki, til dæmis
Daodejing (Tao Te Ching), og Konfú-
síus hefur haft mikil áhrif á mig.
Kannski vegna þess að ég er Kínverji
og lærði mikið um gamla kínverska
heimspeki í skóla.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Markaðssetning á Arctic Star
heilsuvörum er efst á listanum hjá
mér. Það er að koma Arctic Star
heilsuvörum inn á kínverska og
bandaríska markaðinn. Covid-
19 hefur haft mikil áhrif á söluna
okkar til Kína. Við vorum komin vel
í gang með dreifingar- og söluaðila
í Kína og salan gekk mjög vel, svo
stoppaði allt vegna Covid-19. Það
er mjög krefjandi verkefni að fara í
gang aftur og ég er mjög spennt fyrir
því verkefni. Arctic Star heilsuvörur
eru á Amazon.com og það gengur
vel þar. Við stefnum á að fá sam-
starfsaðila í Bandaríkjunum til að
koma okkar frábæru heilsuvörum
inn í heilsubúðir þar.
Hvaða áskoranir eru fram undan?
Áskoranir eru helst markaðsmál
og þróun á nýjum afurðum. Við hjá
Arctic Star erum fyrst og fremst að
sérhæfa okkur í þróun á fæðubótar-
efnum úr hreinum, ómenguðum og
hágæða náttúrulegum hráefnum,
eins og til dæmis íslenskum sæbjúg-
um. Í Kína eru sæbjúgu notuð til
bóta við hinum ýmsu meinum, til
dæmis til að meðhöndla háan blóð-
þrýsting, liðverki og stirðleika, jafn-
vel til að auka kynorku, ásamt ýmsu
öðru. Í Indónesíu eru þau til dæmis
mikið notuð í græðandi meðferðir.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Það er svo margt sem ég mundi
vilja gera og finnst gaman, ég er
alltaf tilbúin til að læra og prófa
eitthvað nýtt.
Ef ég þyrfti að velja annan starfs-
frama, þá mundi ég vilja fara í til
dæmis lögfræði og verða lögfræð-
ingur, eða fara í myndlistarskóla
og vera hönnuður eða arkitekt, eða
læra f leiri tungumál og vera þýð-
andi og svo framvegis.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
Ég er fædd í Anshan í Kína og upp-
alin þar. Bjó í Dalian þar til ég flutti
til Íslands árið 2002. Dalian er ein af
þeim borgum sem eru í uppáhaldi
hjá mér, mjög falleg strandborg í
Norðaustur-Kína. Svo finnst mér
gott og þægilegt að búa í Reykjavík,
íslenskt veður er kannski ekki mitt
uppáhalds en ég læt það ekki hafa
áhrif á mig. n
Þykir kínversk heimspeki heillandi
Sandra segir að borgin Dalian sem er strandborg í Norðaustur-Kína sé ein af
þeim borgum sem séu í uppáhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
n Svipmynd
Sandra Yunhong She
Nám: BA í íslensku, MBA í mark-
aðsfræði og alþjóðaviðskiptum.
Störf: Framkvæmdastjóri hjá
Arctic Star ehf.
Fjölskylduhagir: Gift Jens H.
Valdimarssyni, matvælatækni-
fræðingi og eigum við saman eina
dóttur.
Ef ég þyrfti að velja
annan starfsframa, þá
mundi ég vilja fara í til
dæmis lögfræði.
JAGUAR F-PACE 180D Portfolio
Nýskr. 3/2019, ekinn 44 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 8.690.000 kr.
Rnr. 148334.
JAGUAR E-PACE 150D
Nýskr. 10/2020, ekinn 16 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 7.690.000 kr.
Rnr. 420907.
LAND ROVER Discovery Sport SE
150D
Nýskr. 6/2018, ekinn 48 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 6.290.000 kr.
Rnr. 420918.
JAGUAR I-PACE EV400 HSE
Nýskr. 7/2020, ekinn 9 þús. km,
rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 11.590.000 kr.
Rnr. 149045.
JAGUAR I-PACE EV400 HSE
Nýskr. 8/2020, ekinn 11 þús. km,
rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 11.890.000 kr.
Rnr. 420919.
LAND ROVER Discovery 5 HSE
SDV6
Nýskr. 12/2018, ekinn 22 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 13.890.000 kr.
Rnr. 420854.
RANGE ROVER VELAR HSE
R-dynamic
Nýskr. 5/2018, ekinn 61 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 12.190.000 kvr.
Rnr. 420913.
RANGE ROVER SPORT HSE
Dynamic P400e
Nýskr. 2/2019, ekinn 32 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð: 13.290.000 kr.
Rnr. 333717.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
0
0
6
7
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
8
b
íl
a
r
5
x
2
0
1
7
m
a
rs
10 Fréttir 16. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐFIMMTUDAGUR 17. mars 2022