Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 14

Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 14
Því miður er ekkert sem bendir til þess að breyting verði á rekstri og stjórnun borgar- innar komist Sjálf- stæðisflokkurinn ekki til valda í borginni. Alda er ekki vön að gera eða segja nokkuð til þess eins að geðjast öðrum eða kaupa hylli þeirra. Reykjavíkurborg er borg tækifær- anna. Í borginni er fjölbreytt mann- líf, öflugt atvinnulíf og skemmtilega ólík borgarhverfi. Það er fegurðin við Reykjavík. Frábærir hlutir eiga sér stað í borginni á degi hverjum, hvort sem um ræðir velferðarþjón- ustu, skipulagt íþróttastarf, listvið- burði og jafnvel almennt skólahald svo eitthvað sé nefnt. Reykjavíkur- borg er nefnilega lifandi borg sem líkja mætti við lystigarð fullan af ólíkum en fallegum blómum. Forgangsröðun fjármuna Forgangsröðun fjármuna í grunn- og lögbundna þjónustu hefur fengið að víkja fyrir „skemmtilegri verkefnum“ sem sumir nefna gælu- verkefni. Nauðsynlegt er að breyta um stefnu og sammælast um að forgangsraða í þágu grunnþjón- ustunnar. Það gæti hljómað sem leiðinlegt stefnuskjal fyrir kosn- ingar. Hins vegar er staðreyndin sú að slæm sorphirða, biðlistar eftir leikskólaþjónustu, myglað og ónot- hæft húsnæði, framkvæmdastopp í samgöngumálum og kreppa á hús- næðismarkaði eru vandamál sem nauðsynlegt er að leysa. Þau eru þó öll tilkomin vegna pólitískra ákvarðana vinstri manna síðustu ár en einstrengingsleg nálgun er því miður farin að hafa slæm áhrif á þjónustuna og reksturinn. Því mætti segja að í lystigarðinum sé einnig talsvert mikið af arfa sem hefur verið ósnertur í fjölda ára. Stefnubreyting nauðsynleg Því miður er ekkert sem bendir til þess að breyting verði á rekstri og stjórnun borgarinnar komist Sjálf- stæðisf lokkurinn ekki til valda í borginni. Áframhaldandi skulda- söfnun, lóðaskortur með tilheyr- andi húsnæðiskreppu, biðlistar eftir þjónustu, uppsöfnuð við- haldsþörf og enn meiri umferðar- tafir eru það sem koma skal ef fram heldur sem horfir. Lystigarðurinn er fullur af arfa. Til þess að blómin nái að blómstra og njóta sín þarf að byrja á að hreinsa jarðveginn og fjarlægja arfann. Þó ekki sé það skemmtilegasta verkefnið skilar það mun fallegri garði til lengri tíma. n Lystigarðurinn Reykjavík Egill Þór Jónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins og fram- bjóðandi í 6. sæti í prófkjöri f lokksins 18. og 19. mars Ragnhildur Alda vinkona mín sæk- ist nú eftir fyrsta sæti í próf kjöri Sjálfstæðisf lokksins í Reykjavík. Hún er hæfileikarík og ég er þess algjörlega viss að hún verði frábær og farsæll stjórnmálamaður. Ég gæti skrifað margt um ótal kosti hennar en ég held að einn þeirra skipti miklu meira máli en aðrir. Það vita nefnilega allir sem þekkja Öldu að hún er algjörlega laus við alla tilgerð og plat. Ég kynntist Öldu í menntaskóla. Á þeim aldri eru f lestir logandi hræddir við að vera öðruvísi, synda á móti straumnum og falla ekki í hópinn. Alda er hins vegar ekki þannig. Henni finnst það sem henni finnst og hún er óhrædd við að segja það hverjum sem er. Hún fórnar ekki sínum gildum til að þóknast neinum. Þrátt fyrir það er Alda ótrúlega vinmörg og einhvern veginn virðast allir þekkja hana og, það sem meira er, tala um hana af hlýju. Þetta held ég að sé merki um náttúrulegan leiðtoga. Alda er ekki vön að gera eða segja nokkuð til þess eins að geðjast öðrum eða kaupa hylli þeirra. Þess vegna eru loforð hennar ekki innan- tóm og þess vegna mun hún raun- verulega berjast fyrir því sem hún talar fyrir, þar á meðal bættu skipu- lagi borgarinnar, vandaðri rekstri borgarinnar og ekki síst umbótum í leikskólamálum … þessum sömu leikskólamálum og núverandi borgarstjóri hefur reglulega lofað að sinna í 20 ár. Ég held að það sé kominn tími fyrir Öldu breytinga. n Kominn tími fyrir Öldu breytinga í Reykjavík Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður Daglega berast nýjar fréttir sem tengja má við hlýnun jarðar. Kristján Vigfússon, aðjúnkt við HR, sagði í frétt Fréttablaðsins 1. febrúar sl. loftslagskvíða barna og ungmenna gríðarlegt áhyggjuefni. Nýleg könnun sýni að 60 prósent ungs fólks hafi svo miklar áhyggjur að þau telji mannkynið dauða- dæmt. Í þessu samhengi má spyrja sig hvort eftirfarandi fréttir séu gleði- tíðindi eða áhyggjuefni. Sjófar- endur sjá risastóran borgarísjaka á Húnaflóa og hafís sem er aðeins 17 sjómílur frá landi. Hafís er óvenju mikill á norðurslóðum og NA-sigl- ingaleiðin fyrir norðan Síberíu lokaðist fyrr en venjulega í haust þannig að fjöldi f lutningaskipa sat fastur í hafís. Landsvirkjun afhend- ir ekki raforku til fjarvarmaveitna á köldum svæðum sem hitaðar eru með raforku eða til fiskimjöls- verksmiðja sem kaupa raforku með skerðingarákvæðum. Ástæðan er sú að miðlunin í Þórisvatni fylltist ekki í haust þar sem jöklar á vatna- sviði Þjórsár bráðnuðu lítið síðast- liðið sumar og rennsli inn í Þóris- vatnsmiðlun var því takmarkað. Árið 2021 var lélegt vatnsár. Afleið- ingin er sú að það þarf að brenna þúsundum tonna af olíu vegna raf- orkuskorts. Fyrir tveim árum birti undirrit- aður grein sem bar nafnið „Þróun hitastigs í eina öld“ og hófst þann- ig: Veðurstofa Íslands var stofnuð 1.  janúar 1920 og er því 100 ára í ár. Af því tilefni er rétt að líta yfir farinn veg og þróun veðurfars á Íslandi í eina öld. Oft er sagt að það þurfi að kanna fortíðina til þess að gera sér grein fyrir því sem framtíð- in kann að bera í skauti sér. Hitastig er sá þáttur í veðurfari sem mest er rætt um á þessum tímamótum. Þessi grein fjallar um þróun hita- stigs í eina öld í höfuðstaðnum Gleðitíðindi eða áhyggjuefni? Gunnlaugur Jónsson eðlisfræðingur Tölulegar upplýsingar um ársmeðalhita í 100 ár til 2019 Stykkishólmur Reykjavík Stórhöfði Ársmeðalhiti 4,0°C 4,8°C 5,2°C Mesti ársmeðalhiti 5,5°C 6,1°C 6,3°C Minnsti ársmeðalhiti 2,3°C 2,8°C 3,7°C Hallatala: hlýnun á ári 0,0057°C 0,0036°C 0,0025°C Hlýnun á 100 árum 0,57°C 0,36°C 0,25°C Tölulegar upplýsingar um ársmeðalhita í 100 ár til 2021 Stykkishólmur Reykjavík Stórhöfði Hallatala: hlýnun á ári 0,0051°C 0,0028°C 0,0020°C Hlýnun á 100 árum 0,51°C 0,28°C 0,20°C Það virðist því ekki sérstök ástæða til þess að hlakka til eða kvíða breytingum á hita í Reykjavík næstu aldirnar. Ársmeðalhiti 1920-2021 n Stórhöfði n Reykjavík n Stykkishólmur 7,0 6,0 5,0 4,0 3,0 2,0 1,0 0,0 19 20 19 23 19 26 19 29 19 32 19 35 19 38 19 41 19 44 19 47 19 50 19 53 19 56 19 59 19 62 19 65 19 68 19 71 19 74 19 77 19 80 19 83 19 86 19 89 19 92 19 95 19 98 20 01 20 04 20 07 20 10 20 13 20 16 20 19 Reykjavík auk Stykkishólms og Stórhöfða sem eiga sér lengsta sögu samfelldra hitamælinga á Íslandi. Þá er hugað að því hvað gerist ef þróunin verður óbreytt næstu 100 árin. Meðfylgjandi töf lur gefa tölu- legar upplýsingar um ársmeðalhita í 100 ár í Reykjavík, Stykkishólmi og á Stórhöfða. Fyrri taf lan er sú sama og birtist fyrir tveim árum og sýnir hlýnun í eina öld til 2019 og sú síðari til ársins 2021. Tafla 1 Á meðfylgjandi línuriti má sjá hvernig ársmeðalhiti á þessum þrem veðurstöðvum hefur breyst á 102 árum frá 1920 til 2021. Fyrstu árin eru köld en þegar árið 1939 kemur eitt heitasta árið á tímabil- inu, ársmeðalhiti allra stöðvanna var 5,7°C og þá mældist jafnframt mesti hiti sem mælst hefur á Íslandi 30,5°C á Teigarhorni. Á þeim tveim árum sem skilja að fyrri og síðari töfluna hafa ekki orðið marktækar breytingar á ársmeðalhita, minnsta ársmeðalhita eða mesta ársmeðal- hita. Hæstur er ársmeðalhitinn í suðri á Stórhöfða 5,2°C, í Reykjavík er hann 4,8°C en kaldast norður í Stykkishólmi 4,0°C. Langlægsti samanlagður ársmeðalhiti á öllum stöðvunum var árið 1979, aðeins 2,9°C, en mestur árið 2003 þegar hitinn náði 5,9°C. Næsthlýj asta árið var fyrir 80 árum, árið 1941, þegar samsvarandi hiti var 5,8°C. Á síðsta ári var þessi hiti 5,2°C og mun lægri en að jafnaði fyrir 80 árum. Tafla 2 Á tveim árum frá 2019 til 2021 hafa orðið breytingar á hallatölunum til lækkunar. Í Reykjavík mælist hlýn- un á 100 árum 0,28°C í stað 0,36°C áður, hlýnun í Stykkishólmi 0,51°C í stað 0,57°C og á Stórhöfða 0,20°C í stað 0,25°C. Hlýnun á þessum þrem veðurstöðvum hægir á sér en gefur ekki í eins og ætla mætti af umræðu um hlýnun jarðar. Í umræðunni hefur komið fram að veðurfar á Íslandi muni eftir 100 til 200 ár líkjast veðurfari eins og það er nú á Skotlandi. Lands- virkjun muni njóta meiri úrkomu og rennslis í ám og bændum muni ganga betur að rækta korn og þá sérstaklega bygg, en það hentar vel til bruggunar á bjór og Whisky í Skotlandi. Lítum aðeins nánar á þessa hugmynd með hliðsjón af því að meðalárshiti í Reykjavík hefur vaxið um 0,28°C á síðustu 100 árum. Meðalhiti í Reykjavík síð- ustu 100 árin var 4,8°C, meðalhiti í höfuðborg Skotlands, Edinborg, er 9,5°C. Mismunurinn er 4,7°C. Með 0,28°C hlýnun á öld verður hiti í Reykjavík orðinn sambærilegur við hitann í Edinborg eftir nær 17 aldir eða árið 3700. Það virðist því ekki sérstök ástæða til þess að hlakka til eða kvíða breytingum á hita í Reykjavík næstu aldirnar. n 14 Skoðun 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.