Fréttablaðið - 17.03.2022, Side 16
Hann kemur inn í
geggjuðu formi og mér
finnst ég sjá meiri
hund í honum. Hann
er svo spenntur.
Pétur Marinó Jónsson
Mér finnst
líklegt að
þetta endi í
jörðinni á
einhverj-
um tíma-
punkti og
þá mun ég
sækja vel á
hann með
höggum og
vonandi
endar þetta
bara á
klassískri
hengingu.
Gunnar Nelson
Gunnar Nelson er mættur
til Lundúna en um helgina
mætir hann Takashi Sato
í bardagabúrinu á vegum
UFC. Gunnar segir tilfinn-
inguna vera góða í tengslum
við að stíga aftur inn í búrið
eftir yfir tveggja ára fjarveru.
Hann spáir því að gera út um
viðureign sína við Sato fyrir
dómaraúrskurðinn.
UFC „Tilfinningin fyrir því að vera
kominn aftur hingað er mjög góð,“
segir Gunnar í samtali við Frétta-
blaðið í Lundúnum. „Það er langt
síðan síðast og bara gott að vera
kominn aftur. Núna tekur við smá
bið fram að bardaga sem maður
hlakkar aldrei til að upplifa en það
er samt margt gott við þetta. Ég er
búinn að vera oft á þessu hóteli og
finnst gott að koma hingað.“
Undirbúningurinn hefur að sögn
Gunna gengið mjög vel. Hann segist
vera meiðslafrír og hefur að eigin
sögn ekki verið svona ferskur lengi.
Hvað dagana fram að bardaga
varðar segir Gunnar að þeir snúist
um að halda þyngdinni niðri. „Það
er svo sem ekkert mikið vandamál
fyrir mig þar sem ég þarf ekki að
skera neitt svakalega mikið niður,
allavegana miðað við marga aðra.
Núna snýst þetta bara um léttar
æfingar, að halda flæðinu gangandi,
borða mikið af hreinni fæðu, drekka
rosalega mikið af vatni og fara oft á
klósettið. Síðan er þetta náttúrulega
bara svaka mikil bið.“
Það er alveg ljóst af viðbrögðum
og fasi Gunnars að dæma að hann
er meira en tilbúinn fyrir komandi
bardagakvöld. Pétur Marinó Jóns-
son, ritstjóri vefsíðunnar mmafrett-
ir.is, þekkir vel til Gunnars og hefur
fylgst vel með undirbúningi hans.
„Fyrir alla bardaga eru menn að
lenda í einhverjum smávægilegum
meiðslum sem þeir koma síðan með
inn í bardagann sjálfan. Núna hafa
æfingabúðirnar gengið mjög vel og
þá aðallega vegna þess að Gunnar
er svo heilsuhraustur,“ segir Pétur
Marinó í samtali við Fréttablaðið.
Pétur er ekki frá því að hann sjái
neista frá fyrri árum í augum Gunn-
ars. „Hann kemur inn í geggjuðu
formi og mér finnst ég sjá meiri
hund í honum. Hann er svo spennt-
Gunnar ekki
verið svona
ferskur lengi
ur, finnst mér, að fara í búrið vegna
þess að það er svo langt síðan hann
steig inn í búrið síðast. Mér finnst
vera meiri tilhlökkun í honum
heldur en fyrir síðustu bardaga og
þá kannski sér í lagi vegna þess að
svo langur tími hefur liðið síðan
hann steig síðast inn í búrið.“
Andstæðingur Gunnars, Takashi
Sato, lét hafa það eftir sér í samtali
við MMA fréttir og Fréttablaðið
í gær að hann hygðist klára bar-
dagann áður en kemur að dómara-
ákvörðun. Gunnar ætlar ekki að
leyfa því að gerast.
„Mér finnst líklegt að þetta endi í
jörðinni á einhverjum tímapunkti
og þá mun ég sækja vel á hann með
höggum og vonandi endar þetta
bara á klassískri hengingu,“ segir
Gunnar Nelson í samtali við Frétta-
blaðið í Lundúnum. n
ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR
aron@frettabladid.is
Rúm tvö ár eru liðin síðan Gunn-
ar Nelson steig síðast inn í búrið á
vegum UFC. Það gerðist gegn Gil-
bert Burns í september árið 2019
í bardaga sem Gunnar tapaði, þar
áður hafði hann tapað gegn Bret-
anum Leon Edwards á dómara-
ákvörðun.
Meiðsli og heimsfaraldur hafa
haldið Gunnari frá búrinu síðan þá
en nú fær hann tækifæri til þess að
minna á sig aftur á bardagakvöldi í
London á laugardaginn.
Það þarf óneitanlega mikinn
styrk og ástríðu fyrir íþrótt sinni til
þess að þrauka tíma líkt og Gunnar
hefur gengið í gegnum þessi rúmu
tvö ár eftir að hafa þurft að sætta sig
við tvö erfið töp.
En það er einmitt málið. Þetta er
það sem Gunnar kann best, þetta er
það sem hann þekkir.
Það er alveg ljóst að bardaginn á
laugardaginn gegn Takashi Sato er
gríðarlega mikilvægur fyrir Gunn-
ar og feril hans í UFC. Þetta er fyrsti
bardagi hans á nýjum samningi
og með góðum sigri gætu opnast
spennandi tækifæri.
Mér fannst ég skynja það á Gunn-
ari þegar ég tók viðtal við hann í síð-
ustu viku að hann er vel einbeittur á
verkefnið fram undan. Hann horfir
ekki langt fram á veginn heldur
fetar hann skref fyrir skref.
Gunnar segir okkur mega eiga
von á bestu útgáfunni af sér á laug-
ardaginn, stefnan er sett og mark-
miðin skýr. Svörin eru handan við
hornið. n
Einbeittur Gunnar fetar veginn áfram skref fyrir skref
n Utan vallar
Gunnar snýr
aftur í búrið á
laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR Stefnan er
sett og
markmiðin
skýr. Svör-
in eru
handan
við hornið.
Það er í mörg
horn að líta
fyrir Gunnar
fyrir komandi
bardaga.
Sumt tengist
markaðsefni og
áritunum.
Gunnar Nelson á hótelherbergi sínu að æfa fyrir komandi bardaga. MYNDIR/MJÖLNIR
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
skrifar frá London