Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 20

Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 20
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL .IS Vatnsvarðar yfirhafnir frá Einn frægasti hönnuður hátískuskófatnaðar vann nýlega með Birkenstock- merkinu og hannaði nýja og glamúrskotna útgáfu af þessum frægu og hversdags- legu inniskóm. oddurfreyr@frettabladid.is Samstarf tískuhúsa er oft óhefð­ bundið og skemmtilegt og stund­ um er jafnvel lúmskur húmor í því hvernig hátísku og hversdagsleika er blandað saman á nýjan hátt. Það á svo sannarlega við um þetta nýja samstarf, sem er í senn glæsilegt og skemmtilegt. Blahnik er einn frægasti skó­ hönnuður heims og þekktur fyrir fína og dýra skó, svo það er engin furða að hans útgáfa af þessum frægu inniskóm sé töluvert ólík upprunalegu útgáfunni. Að sögn framleiðenda var samt lögð jafn mikil áhersla á að þeir væru þægi­ legir eins og alltaf, en þeir eru bara mun skrautlegri og með miklu meira flaueli. Tveir stílar í nýjum búningi Blahnik tók snúning á tveimur af vinsælustu skónum frá Birken­ stock, Arizona­sandalanum og Boston­klossanum, og báðir stílarnir eru nú fáanlegir með bleikfjólubláu flaueli, bláu flaueli eða svörtu leðri. Allir skórnir hafa líka kristalsylgju, sem er ein­ kennismerki Blahnik­skónna. Skórnir fara í sölu í tvennu lagi. Hluti þeirra fer í sölu eftir viku og svo kemur annar hluti í verslanir í júní. Þeir verða seldir á vefsíðum vörumerkjanna tveggja og í völdum verslunum. Þeir ódýrustu kosta um 79 þúsund krónur en þeir dýrustu tæplega 96 þúsund krónur. Blahnik elskar Birkenstock Blahnik segir sjálfur að Birken­ stock­skór hafi „verið í fataskápn­ um hans frá upphafi vega“ og bætir við: „Ég hef elskað og notað mína í mörg ár. Ég er mjög ánægður með að við skulum hafa getað unnið saman og það að blanda saman Manolo Blahnik­útlitinu við hvers­ dagsleg þægindi Birkenstock er bara dásamlegt!“ Oliver Reichert, forstjóri Birken stock, bætti við: „Við erum hæstánægð með að vinna með Manolo Blahnik, en óviðjafnanlegt handverk hans hefur sett staðalinn fyrir skósmíði í langan tíma.“ Hann sagði að þetta safn af skóm væri einstakt og að það lyfti bæði hönnun Birkenstock og stíl Manolo Blahnik á hærra plan. ■ Manolo Blahnik hannaði Birkenstock-skó Manolo Blahnik er einn frægasti skóhönnuður heims og þekktur fyrir fína og dýra skó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Nýju skórnir eru mun skrautlegri og með miklu meira af flaueli en venjulegir Birkenstock-skór. SKJÁSKOT/YOUTUBE Nýju Birkenstock-skórnir fást í tveimur útgáfum og þremur litum. SKJÁSKOT/YOUTUBE Allir skórnir hafa kristalsylgju, sem er einkennismerki Blahnik-skónna. SKJÁSKOT/YOUTUBE Það er líka hægt að fá skóna með svörtu leðri. SKJÁSKOT/YOUTUBE Blahnik tók snún- ing á tveimur af vinsælustu skónum frá Birken stock, Arizona- sandalanum og Boston- klossanum. 4 kynningarblað A L LT 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.