Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2022, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 17.03.2022, Qupperneq 22
Í hverri flík gefst kjörið tæki- færi til þess að tjá sig á tísku- palli lífsins og hinum ýmsu breiðstrætum borga og bæja. Eitt af því sem tískuunn- endur hafa löngum hunsað í fataskúffunni, að minnsta kosti þeir sem ekki gegna forsetaembætti á Íslandi, eru sokkarnir. jme@frettabladid.is Á tískuvikum í París, Madrid, Kaupmannahöfn, New York og víðar hafa sokkapörin nú fengið að stíga fram í sviðsljósið á leggjum tískusýningargesta. Þið heyrðuð rétt. Sokkar hafa undanfarið verið heitasta heitt, bæði bókstaflega og ekki, hjá tískumógúlum úti í heimi. Eftir að stórstjörnurnar Zoë Kravitz og Bella Hadid sáust báðar skarta sportsokkum nýlega hafa tískuunnendur keppst við að setja strikið í tísku-téið með fallegum, skrautlegum og litríkum sokkum með ágætis árangri. Hinn fullkomni fylgihlutur Sokkar eru hinn fullkomni fylgi- hlutur til þess að toppa lúkkið með smá litasprengju. Til dæmis getur verið fallegt að nota dökka hlutlausa sokka undir gyllta eða málmlitaða sandala. Sokkar mega líka kíkja vel upp úr ökklaskóm eða strigaskóm. Ef þú ert ekki alveg tilbúin/n í að fara alla leið í sokkatískunni þá má alltaf para áberandi eða mynstraða sokka saman við síðar buxur og lágar mokkasíur og leyfa sokkunum að skína þegar þú sest til borðs. Það allra besta við sokkatísk- una er að kaup á sokkum þurfa alls ekki að létta um of á peninga- pyngjunni, þó svo það sé auðvitað hægt, sé vilji fyrir hendi, að eyða háum fjárhæðum í sokka eins og allt annað. Hlýjar titrandi tám Það þarf vart að nefna að þetta trend er sérstaklega kærkomið hér á landi, þar sem sjaldan gefst tækifæri til þess að skarta opnum skóm eða sandölum, enda er kuldaboli gjarnan snöggur að narta í berar tærnar þegar dregur fyrir sjaldséða sólu. Þá er gott að hafa leyfi frá tískulöggunum til að sporta sokkum með sandölum, líkt og ekta pabba sæmir. n Tjáðu þig með táklæðnaði Gestur á Louis Vuitton tískusýningunni á tískuvikunni í París í lok janúar klæddist fagurgrænum sokkum við stuttbuxur, strigaskó og græna tösku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Norski áhrifavaldurinn Annabel Rosendahl sést hér skarta neongulum sokkum við stuttbuxur og græna sandala á tískuvikunni í París í ágúst í fyrra. Svissættaða leikkonan Cleo von Adelsheim parar saman Dior sportsokka og gul-köflótta dragt í anda Clueless á tískuvikunni í París í janúar síðastliðnum. Þessi gestur klæddist pastelfjólubláum sokkabuxum við bleika mynstraða sokka og pastelfjólubláa tösku fyrir utan tískusýningu Miu Miu í París í mars. Hin kínversk-bandaríska Jaime Xie skartar hér gylltum sandölum yfir gráa sokka fyrir utan Miu Miu tískusýning- una í París í mars. Útkoman er afar elegant. SJÁLFBÆR REKSTUR Föstudaginn 25. mars gefur Fréttablaðið, í samstarfi við Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð, út sérblaðið Sjálfbær rekstur. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um auglýsingar og umfjallanir fyrir blaðið veitir; Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 kynningarblað A L LT 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.