Fréttablaðið - 17.03.2022, Page 31
FÓKUS Á HJARTA LANDSINSFIMMTUDAGUR 17. mars 2022
Hvannadalshnjúk (2.110 m) þekkja allir en færri þekkja
til litla bróður hans, Sveinstinds (2.044 m), sem er
skammt frá og státar af því að vera næsthæsti tindur
landsins. Enn færri þekkja til litlu systur Sveinstinds,
Sveinsgnípu, sem lúrir í kjöltu hans. Hún er líkt og flestir
hæstu tindar landsins staðsett á öskjubarmi Öræfajök-
uls og nær 1.925 m hæð. Hvað hæð varðar er hún því
ekki jafnoki áðurnefndu risanna tveggja en á fullt roð í
nágranna sína Vestari- og Eystri-Hnapp. Þrátt fyrir lítil-
látt nafnið er Sveinsgnípa snotur tindur sem minnir á
hanakamb. Efst býðst mergjað útsýni yfir krosssprung-
inn Hrútárjökul og austurhlíð Sveinstinds ofan hans. Í
vesturátt blasir síðan við 7 km breið og fannhvít askja
Öræfajökuls og Hvannadalshnjúkur, sem frá þessu
sjónarhorni minnir á egypskan sfinx.
Sveinsgnípa er líkt og Sveinstindur kennd við Svein
Pálsson lækni og náttúrufræðing. Hann telst einn merk-
asti vísindamaður okkar Íslendinga en var jafnframt
hugrakkur fjallagarpur. Er talið að hann hafi fyrstur
manna gengið á Sveinstind, þann 11. ágúst 1794, frá Kví-
skerjum, en hann var þá talinn hæsti tindur landsins.
Síðar hafa margir efast um að Sveinn og fylgdarmaður
hans hafi í raun náð Sveinstindi, og út frá lýsingum og
tímasetningum í Ferðabók hans líklegra að hann hafi
sigrast á tindi Sveinsgnípu. Hvað sem því líður þá er
talið að í göngunni hafi Sveinn áttað sig betur á eðli
skriðjökla, en hann var einn sá fyrsti í heiminum sem
áttaði sig á rennsli þeirra. Sveinn vissi hins vegar ekki,
fremur en flestir samtíðarmenn hans, að háfjallaveiki
gerir ekki vart við sig fyrr en komið er yfir 2.500 m hæð.
Segir svo í Ferðabók hans: „Loftið tók nú, eins og vant er
á slíkum stöðum, að verða of þunnt og andardrátturinn
alltof léttur. Annar félaga minna varð svo kvíðafullur
og syfjaður, að við urðum loks að skilja hann eftir, og
féll hann jafnskjótt í svefn og hann fleygði sér niður í
snjóinn.“ Félagarnir þrír komust þó allir lifandi heim
og fjallgangan þótti hin mesta frægðarför.
Á Sveinsgnípu og Sveinstind má velja um nokkrar
leiðir sem allar teljast langar og krefjandi jöklagöngur.
Vinsælust í seinni tíð er svokölluð Læknaleið, sem
Sveinn gekk á sínum tíma og liggur meðfram Rótar-
fjallshnjúki eystri. Loks má þvera öskjuna frá Sandfells-
eða Hnappaleið á Hnjúkinn. ■
Litla systir
litla bróður
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Þótt Sveins-
gnípa falli í
skugga voldugri
bróður síns
Sveinstinds þá
er hún ekki síður
tilkomumikill
tindur. Í fjarska
Hvannadals-
hnjúkur og Efri-
Dyrhamar.
Gengið upp hrygg Sveinsgnípu. Sveinstindur og Hvannadalshnjúkur í baksýn, en frá þessu sjónarhorni er hæsti tindur landsins hvað tilkomumestur. MYNDIR/ÓMB
Sveinsgnípa
liggur vinstra
megin Sveins-
tinds sem sést
fyrir miðri mynd
og var löngum
talinn hæsti
tindur landsins.
Fjallsárlón í for-
grunni.