Fréttablaðið - 17.03.2022, Qupperneq 34
Um 100 börn á aldr-
inum fimm til níu ára
komu með sínar hug-
myndir um hvernig
þau myndu vilja hafa
rýmið.
Hjördís Ástráðsdóttir
KVIKMYNDIR
The Batman
Leikstjórn: Matt Reeves
Aðalhlutverk: Robert Pattinson,
Zoë Kravitz, Paul Dano og Colin
Farrell
Oddur Ævar Gunnarsson
Robert Pattinson er hvorki vampíra
né skólastrákur í galdraskólanum
Hogwarts lengur, heldur Leður-
blökumaðurinn í enn einni endur-
ræsingunni og harla fínn sem slíkur.
Þegar við hittum Leðurblöku-
manninn að þessu sinni hefur hann
barist gegn spillingunni í Gotham-
borg í tæp tvö ár. Skyndilega finnst
borgarstjórinn myrtur á dularfullan
hátt og Leðurblökumaðurinn má,
sem Bruce Wayne, hafa sig allan við
að finna morðingjann og tónninn
sem er gefinn minnir jafnvel á rað-
morðingjamyndir á borð við Zodiac
frá 2007.
Leikararnir standa sig upp til hópa
með prýði í myndinni og áhyggjur af
Pattinson í titilhlutverkinu eru með
öllu óþarfar. Þá skilar Zoë Kravitz
sínu í hlutverki Kattarkonunnar á
meðan Colin Farrell og Paul Dano
fara hreinlega á kostum sem ill-
mennin Mörgæsin og Gátumennið.
Colin er svo gott sem óþekkjanlegur
í hlutverkinu og virðist skemmta sér
konunglega.
Tónninn í þessari leðurblöku-
mynd er nokkuð frábrugðin fyrri
myndum að því leytinu til að hand-
ritshöfundar gefa sér dágóðan tíma
til að rekja söguna með „slow burn“
aðferðinni sem er mjög í tísku þessi
misserin. Þessi frásagnaraðferð er
þó ekki allra og sjálfum leiddist mér
nokkuð á köflum.
Myndin er tveir tímar og 47 mín-
útur að lengd og má færa fyrir því
rök að það hefði verið hægt að stytta
hana um allavega 40 mínútur án þess
að það bitnaði á söguþræðinum.
Þyngsta byrði myndarinnar er sú
staðreynd að þetta er jú þrátt fyrir
allt enn önnur myndin um Leður-
blökumanninn. Það verður hins
vegar enginn aðdáandi svikinn af
því að sjá myndina en spurningin
er hvort venjulegir áhorfendur séu í
stuði fyrir mynd sem tekur sig ansi
alvarlega. n
NIÐURSTAÐA: The Batman er góð
mynd en er þrátt fyrir það bara
enn ein myndin um Leðurblökuna.
Aðdáendur munu kætast en
öðrum áhorfendum gæti leiðst.
Hægeldaður Leðurblökumaður
Nýlega var nýtt upplifunar-
rými opnað í Hörpu, Hljóð-
himnar, sem ætlað er börnum
og fjölskyldum þeirra til að
kynnast töfraheimi hljóðs
og tóna. Með þessu framtaki
hefur Maxímús Músíkús,
frægasta tónlistarmús
Íslands, fengið samastað.
svavamarin@frettabladid.is
Hljóðhimnar eru nýtt upplifunar-
rými í Hörpu, ætlað yngri tónlist-
arunnendum, sem opnað var í vik-
unni. „Hugmyndin að verkefninu
er innblásin af heillandi ferðalagi
hljóðbylgja og skiptist í miðeyra,
innra eyra og ytra eyra, þar sem
hvert svæði er litakóðað eftir mis-
munandi viðfangsefnum, allt frá því
hvernig hljóð myndast og hvernig
tónlist verður til,“ segir Ingibjörg
Fríða Helgadóttir, barnamenn-
ingarstjóri Hörpu. „Innra eyrað er
svæði með tæknileg viðfangsefni,
gengið er inn um miðeyra og í ytra
eyranu er leikmynd af Sinfóníunni,
svo dæmi sé tekið.“
Að sögn Ingibjargar er kveikjan
að Hljómhimnum tónlistarmúsin
Maxímús Músíkús. Hún segir fólk
geta þar fundið tengingu við íbúa
hússins, sem eru Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, Stórsveit Reykjavíkur,
Íslenska óperan og aðrir tónlistar-
menn, án þess að þurfa að fara á
tónleika.
Músarholur Maxí í Hörpunni
Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri
Sinfóníunnar, tekur undir þetta.
„Maxi hefur verið með okkur frá
því Sinfóníuhljómsveitin var í
Háskólabíói. Það má segja að hann
sé afsprengi hljómsveitarinnar,“
segir hún. „Hann fæddist þar og er
auðvitað eins og góðar húsamýs.
Hann f lutti með hljómsveitinni,
kom í þessa eðalhöll: Hörpu. Hér
er hann, drengurinn, og búinn að
fá samastað eins og öll börn. Hér
á hann heima og hér eru holurnar
hans,“ segir Hjördís.
„Hægt er að fylgjast með honum í
gegnum hljóðfæraleikarana. Hann
tjáir sig með þeirra rödd, tónlistin er
hans tungumál.“ Hjördís segist hafa
fylgt verkefninu frá upphafi. Hall-
fríður Ólafsdóttir, höfundur bók-
anna um Maxímús Músíkús, hafi
verið hluti af verkefninu í byrjun, en
hún lést fyrir aldur fram árið 2020.
Hugmyndir frá hundrað börnum
Hópur barna frá krakkaráði hönn-
unarfyrirtækisins Þykjó aðstoðuðu
við hönnun rýmisins. „Um 100
börn á aldrinum fimm til níu ára
komu með sínar hugmyndir um það
Músarholur Maxímúsar í Hörpu
Ingibjörg Fríða og Hjördís í einni músarholunni í miðju rýminu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI
Sinfónían er staðsett í ytra eyra Hljóðhimna.
Hjördís lætur fara vel um sig í vöggu Hljóðhimna við fagurra tóna undirspil.
Hljóð dýranna eru kölluð fram með snertingu.
Stytta mætti myndina um 40 mínútur án þess að það bitnaði á sögu-
þræðinum, segir gagnrýnandi. MYND/SKJÁSKOT
hvernig þau myndu vilja hafa rýmið,
eins og teppin sem eru á veggjun-
um,“ segir Ingibjörg. Hún hefur eftir
Sigríði Sunnu Reynisdóttur, list-
rænum stjórnanda Þykjó, að börnin
séu yfir sig ánægð með útkomuna. n
n Spurningin
ninarichter@frettabladid.is
Á vefsvæði bandaríska viðskipta-
tímaritsins Forbes má lesa grein
þar sem reifaðar eru ástæður fyrir
ameríska ferðamenn til að heim-
sækja Ísland í sumar.
Í greininni er komið inn á spá
Íslandsbanka þar sem reiknað er
með f leiri en milljón ferðamönn-
um á þessu ári.
Ástæðurnar sem gefnar eru fyrir
Íslandsför eru til dæmis aflétting á
höftum á landamærunum vegna
heimsfaraldurs, nýir valmögu-
leikar í f lugi með tilkomu Play,
umbætur á vegakerfi á Vestfjörðum
og tilkoma lúxushótelsins Reykja-
vík Edition. n
Hvernig er menntaskólalífið?
Jón Bjarni
Snorrason
framhaldsskóla-
nemi
Þetta er allt að
koma til. Það
hefur ekkert
ball verið síðan
í október, þetta
er svona endur-
koma ballanna aftur, Part II. Von-
andi varanleg endurkoma.
Ég er búinn að fara á eitt ball. Ég
fékk frímiða á MH-ball og svo er ég
búinn að vera að vinna á nokkrum
böllum sem ljósamaður.
Það er alltaf fyllerí á þessum
böllum. Ég veit ekki hvort að
það sé eitthvað meira þetta árið
og mér finnst fólk jafnvel vera
rólegra. Við erum skynsama og
rólega kynslóðin. n
Eldgosið í Fagradal trekkir enn marga
að þó það sé löngu hætt að gjósa.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Forbes hvetur
til Íslandsferða
26 Lífið 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR