Fréttablaðið - 17.03.2022, Qupperneq 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Á vormánuðum 1939 fæddist
drengur í Þýskalandi. Varla hefði
nokkurt barn getað valið sér verri
stað eða tíma til að fæðast því um
haustið ákvað leiðtogi landsins
að hefja stríð. Fyrstu minningar
drengsins voru því af sírenum um
miðjar nætur í neðanjarðarbyrgi á
meðan sprengjurnar féllu. Þar sat
hann skelfingu lostinn með systur
sinni Maríu og öðrum börnum í
fangi mæðra sinna. Feðurnir voru
allir á vígvellinum. Við stríðslok
var staðan þessi: Faðir hans hafði
fallið í stríðinu og sá hluti Þýska-
lands sem hann bjó í var her-
numinn af Rússum, sem stofnuðu
Austur-Þýskaland. Um leið var
landi hans lokað svo íbúar létu
ekki glepjast vestur í frelsið.
En svo varð hann heppinn. 1964
áttu íslensk stjórnvöld í viðræðum
við Austur-Þýskaland um við-
skipti. Ein niðurstaða þeirra var
að 25 ára gamall organisti, Martin
Hunger, fékk að fara til tímabund-
innar dvalar til Vestmannaeyja.
Hann fór aldrei til baka, stofnaði
hér fjölskyldu, varð íslenskur
ríkisborgari og hét nú Marteinn.
Síðar hrundi gamla landið Austur-
Þýskaland og til varð sameinað
Þýskaland frjálst og opið.
Að alast upp við stríð hefur óhjá-
kvæmilega áhrif á fólk. Marteinn
gætti þess alltaf að ísskápurinn
heima væri vel birgur af mat. Það
var hans leið til að takast á við áföll
og stöðugan skort í æsku. Hann dó
2010 hamingjusamur og stoltur
Íslendingur.
Í dag hefur brjálaður maður,
sem mótaður er af hugmyndafræði
kalda stríðsins, hafið stríð sem
mun hafa varanleg áhrif. Í Úkraínu
híma nú fjölmörg börn í neðan-
jarðar byrgjum í faðmi mæðra
sinna rétt eins og fyrir 80 árum í
Þýskalandi. Kannski verða sum
þeirra aldrei svo lánsöm að geta
fyllt ísskápinn sinn af mat. n
1939
ár í
röð!*5
Bað- og blöndunartæki
Flísar og múrefni
Málning og kítti
Salerni, baðkör, sturtur og handlaugar
Innréttingar
Handklæðaofnar
og frábær þjónusta
Takk fyrir!
*Skv. könnun Íslensku ánægjuvogarinnar 2017, 2018, 2019, 2020 og 2021 á ánægju viðskiptavina á byggingavörumarkaði.
Allt á
einum
stað
fyrir baðherbergið
SÆKTU
APPIÐ
samkaup.is/app
Betra verð
á matvöru
Fermingar-
skraut
Faxafeni 11,
108 Reykjavík
www.partybudin.is