Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Opnuð hefur verið ný ellefu rúma
legudeild á Reykjalundi, en þangað
verða teknir sjúklingar sem lokið
hafa fyrstu meðferð á Landspítala en
þurfa áfram að dveljast á sjúkra-
stofnun. Að því leyti er verið að létta
að einhverju marki það mikla álag
sem er á sjúkrahúsinu vegna Co-
vid-19. Gripið hefur verið til sam-
bærilegra ráðstafana að undanförnu
með liðsinni fleiri heilbrigðisstofnana
víða um land.
„Í heilbrigðiskerfinu þarf þvert á
stofnanir að vera samstaða í að leysa
úr aðsteðjandi neyðarástandi. Því má
í rauninni segja að við hér á bæ
séum þátttkendur í samfélagslegu
verkefni,“ segir Pétur Magnússson,
forstjóri Reykjalundar, í samtali við
Morgunblaðið.
Opnuðu deild og
fólk kallað úr fríi
Að staðaldri er á Reykjalundi
starfrækt tólf rúma deild með sólar-
hringsþjónustu. Hlé var gert á starf-
seminni þar yfir jólin eins og venja
er, en um hátíðir var álagið á Land-
spítalanum orðið slíkt að biðlað var
til Reykjalundar um liðsinni. Því var
deildin opnuð aftur 29. desember og
starfsfólk sem var í jólafríi kallað til
vinnu. Ljóst var enn fremur að
meira þyrfti til og því var fyrr-
greindri deild með rúmunum ellefu
bætt við. Því fylgir hins vegar að
endurhæfingarstarf lungna-, hjarta-
og taugateyma verður takmarkað á
meðan, en um 50 skjólstæðingar
sækja að staðaldri þjónustu þeirra.
Ekki er fyrirséð hve lengi starf-
semi legudeildanna á Reykjalundi
verður haldið úti en vonandi verður
hægt að færa starfsemina í eðlilegt
horf sem allra fyrst.
„Að starfrækja hér tvær deildir
með alls 23 sjúkrarúmum er vissu-
lega áskorun. Nýjasta deildin er til
dæmis í húsnæði sem tæplega
hentar fyrir sólarhringsþjónustu,
en við látum þetta ganga upp, seg-
ir Pétur. „Okkar frábæra starfs-
fólk hefur líka verið tilbúið, ekki
síst hjúkrunarfræðingarnir, þótt
þetta sé utan þeirra daglega verk-
sviðs. Iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar,
félagsráðgjafar og sálfræðingar,
svo ég nefni stéttir, hafa líka tekið
þátt í umönnun sjúklinga og jafn-
vel stjórnendur. Sjúklingarnir sem
hingað koma eru valdir af Land-
spítalanum, en viðmiðið er þó jafn-
an að þeim nýtist endurhæfingar-
þjónusta, sem er kjarninn í starfi
Reykjalundar.“
Að undanförnu hefur verið tals-
vert um að sjúklingar sem lokið hafa
meðferð á Landspítalanum dvelji eft-
ir það á sjúkrahúsum úti á landi, svo
sem spítölunum í nágrenni Reykja-
víkur – í Keflavík, á Selfossi og
Akranesi. Einnig hefur fólk verið
sent á sjúkrahúsið á Akureyri og nú
nú síðast heilbrigðisstofnanirnar á
Sauðárkróki, Húsavík, Neskaupstað,
Vestmannaeyjum og Ísafirði. Þannig
eru nú fjórir sjúklingar sem áður
voru á Landspítala komnir á sjúkra-
deild á Ísafirði, en rúmin þar eru alls
fimmtán, segir Gylfi Ólafsson, for-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða.
Út á land og létt af Landspítala
- Sjúklingar fluttir á heilbrigðisstofnanir utan Reykjavíkur - Ísafjörður, Sauðárkrókur, Húsavík og
Neskaupstaður - Leysa úr vanda í neyðarástandi - Fólk úr mörgum stéttum leggur lið á Reykjalundi
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Umönnun Mikið álag er á öllu heilbrigðiskerfi landsins þessa dagana og því kappkostað að stilla saman krafta og
þekkingu fólks á landinu öllu. Gengið var þungum skrefum á löngum gangi sjúkrahússins á Ísafirði í gærdag.
Pétur
Magnússon
Gylfi
Ólafsson
Mýflug hf. annast sjúkraflugið í
landinu og hefur á síðustu dög-
um farið í fjölda ferða með sjúk-
linga út á land, þá eftir að þeir
luku meðferð á sjúkrahúsi í
Reykjavík. „Í gegnum tíðina höf-
um við auðvitað oft fengið þau
verkefni að flytja sjúklinga út á
land úr bænum. Slíkar ferðir eru
hins vegar mun fleiri nú en í
annan tíma vegna þess mikla
álags sem er á Landspítalanum
vegna Codvid-19. Núna í augna-
blikinu lágu fyrir beiðnir um að
við færum í sex svona ferðir en
við höfum í verkefnum af þess-
um toga að undanförnu meðal
annars farið á Ísafjörð og Sauð-
árkrók,“ segir Leifur Hall-
grímsson hjá Mýflugi.
Sjúklingum í flugi fylgir jafn-
an sérhæfður sjúkraflutninga-
maður. Ef tilvik eru alvarleg eða
sérstök ástæða til, er læknir
einnig með í för.
Mýflug gerir út tvær flugvélar
vegna sjúkraflugsins. Slíkir
flutningar í fyrra voru um 800,
sem þá gerir rúmlega tvær ferð-
ir á degi hverjum.
Margar ferðir
MÝFLUG MEÐ SJÚKLINGA
Mýflug Vélin tilbúin að fara í loftið.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Útsvarstekjur Hörgársveitar
hækkuðu um fimmtung frá því
sem var árið á undan, eða um 19%
sem er vel umfram landsmeðaltal.
Hækkunin nam 60 milljónum
króna milli ára, fóru úr 312 millj-
ónum árið 2020 í 372 milljónir í
fyrra. Snorri
Finnlaugsson
sveitarstjóri seg-
ir auknar út-
svarstekjur
stuðla að frekari
uppbyggingu í
ört vaxandi
sveitarfélagi.
Íbúar Hörg-
ársveitar voru
rétt um 700 tals-
ins á síðastliðnu
ári og fjölgaði um 8% milli ára, en
gert er ráð fyrir að þeir verði
orðnir eitt þúsund í upphafi ársins
2026.
Fjöldi íbúða hefur risið í svo-
nefndu Lónsbakkahverfi sem
stendur við mörk sveitarfélaganna
Hörgársveitar og Akureyrar. Þar
var frá fyrri tíð nokkurt þéttbýli
með um 100 íbúum, en frá því haf-
ist var handa við að stækka hverf-
ið hafa um 95 íbúar bæst við það.
Skoða alla möguleika
Útlit er fyrir að á næstu tveim-
ur árum bætist enn í hópinn og
stefnir í að í lok næsta árs eða
byrjun ársins 2024 muni um 400
manns búa í þéttbýliskjarnanum
við Lónsbakka að sögn sveitar-
stjóra.
Snorri segir stöðuna með þeim
hætti um þessar mundir að mikil
ásókn sé í lóðir í hverfinu og því
séu verið að skoða alla þá mögu-
leika sem fyrir hendi séu til að
stækka hverfið. „Það er mikil eft-
irspurn eftir lóðum og við reynum
að bregðast við henni eftir bestu
getu,“ segir Snorri.
Fram hafa komið hugmyndir
um að taka svæði á gömlum
íþróttavelli undir íbúðabyggð, en
þær eru skammt á veg komnar.
Eitt af þeim úrlausnarefnum sem
við blasa verði farið í slíkar fram-
kvæmdir segir hann vera tilfærslu
þjóðvegar 1, en sveitarfélagið hafi
óskað eftir tillögum frá Vegagerð
varðandi framtíðarlegu þjóðveg-
arins á þessum slóðum. Þá segir
Snorri að möguleiki opnist á að
byggja örfáar íbúðir á svæði við
Lónsá, en fyrir liggur að rekstri
gistiheimilis og tjaldsvæðis á
bökkum árinnar verði hætt. Það
sé enn líkt og íþróttavöllurinn í
frumskoðun.
Annað svæði er í uppbyggingu í
sveitarfélaginu, Hagabyggð við
Glæsibæ þar sem möguleiki er á
allt að 30 einbýlum á stórum sjáv-
arlóðum. Gera megi þá ráð fyrir
um 70 nýjum íbúum í þeirri byggð
á komandi árum.
Mestu framkvæmdir í sögunni
„Það er ekkert sem bendir til
annars en hér verði mikil upp-
bygging á næstu árum og almenn
bjartsýni ríkir í samfélaginu hér,
við finnum að fólk hefur áhuga
fyrir að setjast hér að,“ segir
Snorri.
Vaxandi sveitarfélag stendur
frammi fyrir ýmsum áskorunum
við að styrkja sína innviði en hann
segir að nú í ár muni Hörgársveit
standa í meiri framkvæmdum en
nokkru sinni í langan tíma.
„Við höfum metnað til að taka
vel á móti nýjum íbúum og mun-
um innan tíðar hefjast handa við
að stækka leikskóla og gera end-
urbætur á grunnskólanum, Þela-
merkurskóla,“ segir hann.
Þrátt fyrir heimsfaraldur og
erfiða tíma segir Snorri fjárhaginn
traustan. „Góð afkoma undanfarin
ár gerir okkur kleift að fara út í
fjárfrekar framkvæmdir án þess
að steypa okkur í skuldir.“
Mikil uppbygging í Hörgársveitinni
- Íbúum fjölgaði um 8% í fyrra og útsvarstekjur jukust um 19% - Mikil eftirspurn eftir lóðum
- Miklar framkvæmdir á árinu til að styrkja innviði - Til skoðunar að stækka Lónsbakkahverfið
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hörgársveit Mikil ásókn er í lóðir í kringum Lónsbakkahverfið svonefnda og sveitarfélagið reynir að bregðast við.
Snorri
Finnlaugsson