Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Vefuppboð nr. 584
ÚR SAFNI
BÆNDASAMTAKANNA
Vefuppboði á uppbod.is lýkur 19. janúar
Kristín Jónsdóttir Kjartan Guðjónsson
Forsýning verka í Gallerí Fold
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Áformað er að ríkið leigi allar skrif-
stofuhæðir í húsinu Austurstræti 17
sem bráðabirgðahúsnæði fyrir
Menntaskólann í Reykjavík. Ef til
þess kemur þarf að reisa flóttastiga á
bakhlið hússins og hefur skipulags-
fulltrúi Reykjavíkur tekið jákvætt í
ósk þar að lútandi.
Menntaskólinn í Reykjavík hefur
starfað í höfuðborginni síðan 1846 en
á rætur að rekja allt aftur til ársins
1056. Skólinn er starfandi í 10 húsum
og fer kennsla fram í sjö þeirra. Húsin
mynda litla þyrpingu, sem afmarkast
af Lækjargötu, Amtmannsstíg, Þing-
holtsstræti og Bókhlöðustíg. Menn
rekur ekki minni til að skólinn hafi áð-
ur kennt í Austurstræti.
Leysa á húsnæðisvandann
Í október 2020 féllst borgarráð á
ósk menntamálaráðuneytisins um að
ganga til viðræðna um sameiginlega
framkvæmd ríkisins og Reykjavíkur-
borgar til að leysa húsnæðismál
Menntaskólans í Reykjavík (MR).
Framkvæmdasýsla ríkisins samdi
greinargerð um frumathugun vegna
húsnæðismála skólans. Þar er miðað
við að leysa þarfir skólans með 2.220
fermetra nýbyggingu og endurbyggja
400 fermetra friðaðan hluta húss sem
kallaður hefur verið Casa Christi.
Heildarkostnaður var talinn verða
2.626 milljónir króna.
Elíasbet Siemsen, rektor MR, segir
í samtali við Morgunblaðið að ástand
Casa Christi hafi verið metið svo bág-
borið í ástandsmati sem framkvæmt
var síðasta haust, að hún hafi talið
húsið óhæft til kennslu. Casa Christi
(hús Krists) var byggt árið 1907 og
var samkomuhús KFUM og K.
„Við höfum verið á hrakhólum eftir
að við misstum Casa Christi við Amt-
mannsstíg. Við höfum verið að kenna í
öllum skúmaskotum og kústaskápum
ef svo má taka til orða,“ segir El-
ísabet. Til dæmis sé nú kennt í les-
salnum, leikfismisalnum og lestr-
arsalnum. Það sé mjög aðkallandi að
fá bráðabirgðahúsnæði fyrir skólann
sem allra fyrst.
Framkvæmdasýsla ríkisins aug-
lýsti eftir bráðabirgðahúsnæði fyrir
skólann í miðborginni og var ákveðið
að ganga til samninga við fasteigna-
félagið Eik um að leigja húsnæði í
Austurstræi 17, allt nema jarðhæð-
inna. Þar er í dag rekin verslun 10-11.
Ekki hefur verið gengið frá leigu-
samningi við Eik hf. en samninga-
viðræður standa yfir, fékk blaðið upp-
lýst hjá Framkvæmdasýslunni.
Á embættisafgreiðslufundi skipu-
lagsfulltrúa Reykjavíkur 10. desem-
ber 2021 var lögð fram fyrirspurn
Laufeyjar Agnarsdóttur arkitekts
um breytingu á notkun efri hæða
hússins á lóð nr. 17 við Austurstræti
úr skrifstofum í bráðabirgðahúsnæði
fyrir Menntaskólann í Reykjavík og
setja flóttastiga og svalir á norðurhlið
hússins, samkvæmt uppdráttum
Teiknistofunnar Traðar ehf.
Fyrirspurninni var vísað til um-
sagnar verkefnisstjóra. Í greinargerð
hans kemur fram að Austurstræti 17
sé sex hæða módernískt hús með
efstu hæð inndregna, teiknað árið
1963 af Bárði Daníelssyni arkitekt. Í
gildandi deiliskipulagi, samþykktu í
borgarráði 19. júní 2017, var sam-
þykkt að byggja fyrir inndregna 6.
hæð til suðurs þar sem eru svalir,
gluggafrontur framlengdur til að
hæðir 2-6 séu byggðar inn í ramma
og 7. hæðin inndregin að svölum.
Markmið deiliskipulagsbreytingar
nú sé að bæta brunavarnir Austur-
strætis 17 með því að bæta við flótta-
stiga á norðurhlið. Flóttastiginn verði
á milli 2. og 6. hæðar. Frá 2. hæð, þaki
1. hæðar, verði annar stigi niður á
jarðhæð. Flóttastiginn er opinn.
Verkefnisstjóri skipulagsfulltrúa
tekur jákvætt í erindið í umsögn
sinni. Gerir hann ekki athugasemdir
við að umsækjandi sæki um breyt-
ingu á deiliskipulagi.
Flóttastigi fyrir nemendur MR
- Áformað að leigja hæðir í Austurstræti 17 fyrir kennslustofur Menntaskólans í Reykjavík - „Við
höfum verið á hrakhólum eftir að við misstum Casa Christi,“ segir rektor - Flóttastigi á bakhliðinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Austurstræti Húsið númer 17 er fyrir miðri mynd, milli gamla pósthússins og Héraðsdóms Reykjavíkur. MR mun fá allar skrifstofuhæðir hússins til afnota.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lækjargata Í vetur er kennt á öllum tiltækum svæðum í húsakynnum MR.
Ásrún Ýr Gests-
dóttir hefur til-
kynnt að hún
sækist eftir því
að leiða lista
Vinstri grænna
fyrir sveitar-
stjórnarkosning-
arnar í vor.
Áður hafði
Jana Salóme
Ingibjargar Jós-
epsdóttir varabæjarfulltrúi lýst yfir
framboði í 1. sætið.
Ásrún Ýr er fædd og uppalin í
Hrísey en bjó í 11 ár á Akureyri þar
til nýlega að hún fór á æskustöðvar.
Ásrún Ýr vill leiða
lista VG á Akureyri
Ásrún Ýr
Gestsdóttir
Kristín Thorodd-
sen, bæjar-
fulltrúi í Hafn-
arfirði, formaður
fræðsluráðs, for-
maður hafnar-
stjórnar og vara-
þingmaður,
gefur kost á sér í
annað sætið í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins
sem fram fer í byrjun mars nk.
Kristín hefur verið aðalbæjar-
fulltrúi í fjögur ár og setið í fjöl-
mörgum nefndum og ráðum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði.
Kristín stefnir á
2. sæti í Hafnarfirði
Kristín
Thoroddsen
Skúli Helgason,
formaður skóla-
og frístundaráðs,
hefur ákveðið að
bjóða sig fram til
endurkjörs fyrir
komandi kosn-
ingar í borginni
og óskar eftir
stuðningi til að
skipa áfram 3.
sæti á lista Sam-
fylkingarinnar.
Flokksval fer fram 12.-13. febr-
úar nk. Hann segist vilja leggja
fram reynslu sína, þekkingu og
áhuga á menntun og velferð barna.
Skúli vill áfram í 3.
sæti Samfylkingar
Skúli
Helgason
Kristín Ýr Pálm-
arsdóttir býður
sig fram í 3. sæti
í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins í Mos-
fellsbæ sem fer
fram 5. febrúar
næstkomandi.
Á þessu kjör-
tímabili hefur
Kristín gegnt
hlutverki varabæjarfulltrúa og ver-
ið varaformaður umhverfis-
nefndar. Í yfirlýsingu segist hún
m.a. vilja stíga „fleiri græn skref í
átt að sjálfbærri framtíð“.
Kristín Ýr stefnir á
þriðja sætið í Mosó
Kristín Ýr
Pálmarsdóttir