Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 60 ÁRA Einar er Skagamaður og hefur ávallt búið á Akranesi fyrir utan þrjú ár erlendis þegar hann var í námi og þrjú ár í Kópavogi. Hann er vélstjóramenntaður og lauk síðan rekstrartæknifræði í Odense teknikum. Einar er sölu- hönnuður hjá Skaganum3X og hef- ur verið bæjarfulltrúi á Akranesi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2010. Hann er fyrsti varaforseti bæjar- stjórnar og varaformaður vel- ferðar- og mannréttindaráðs. „Ég hef séð um getraunirnar ásamt fleirum fyrir knattspyrnu- félagið ÍA í mörg ár, er yfirtippfor- ingi þar og svo spila ég golf á sumr- in þegar ég get.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Einars er Ösp Þorvaldsdóttir, f. 1960. Börn þeirra eru Einar Kristleifur, f. 1982, Guðbjörg Ösp, f. 1984, og Gunnar Davíð, f. 2002. Barnabörnin eru þrjú, skábarnabörnin eru líka þrjú og eitt skálang- afabarn. Foreldrar Einars eru Brandur Fróði Einarsson, f. 1931, fv. varð- stjóri, og Þuríður Skarphéðinsdóttir, f. 1931, húsmóðir og fv. verkakona. Þau eru búsett á Akranesi. Einar Brandsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Miklir tekjumöguleikar eru fyrir hendi núna. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú verður fyrir áhrifum úr óvæntri átt. Aðgerðir þínar gagnvart stjórnvöldum eða stórum stofnunum bera takmarkaðan árangur og valda þér gremju. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þið eigið að láta einskis ófreistað til þess að skipuleggja betur tíma ykkar, því eins og er stefnir allt í óefni. Lífið er allt of stutt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þér verður treyst fyrir miklu leynd- armáli. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þér hættir til að vera of fastur fyrir og það leggur stein í götu þína. Annríkið má aldrei vera svo mikið að þínir nánustu verði út undan. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Reyndu að ná betri tökum á lífi þínu, það er ekkert vit að láta bara berast fyrir straumnum og lenda í hverju sem er. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt ráðlegt sé að hafa andvara á sér er ástæðulust að mála skrattann á vegg- inn. Mundu að hláturinn lengir lífið. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Reyndu að fá útrás fyrir sköp- unargleði þína því það gengur ekki til lengdar að byrgja hana inni. Hafðu það í huga nú þegar þú tekst á við mikilvæg verkefni. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ert á ferð og flugi og vekur mikla eftirtekt. Þú verður að standast allar freistingar um frekari fjárútlát meðan þú ert að koma peningamálunum í rétt horf. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Tímamörk þrýsta á þig og þú þarft að leggja nokkuð á þig til þess að mæta þeim. Einhver reynir að sýna þér stuðning, en gerir það á kolrangan hátt. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þér er lagið að ná árangri í rannsóknum á nánast hvaða sviði sem er í dag. Gættu þess að vera háttvís ef þú stingur upp á umbótum í vinnunni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Taktu þér tíma til að kanna málin og láttu svo til skarar skríða en gættu þess þó að fara ekki of hratt yfir. strandar í tíu ár og í stjórn Spari- sjóðs Svarfdæla 1993–2004, þar af formaður frá 1995. Sveinn sat í fyrstu bæjarstjórn 1998–2002, eftir samein- ingu Dalvíkur, Árskógshrepps og Svarfaðardalshrepps. Um skeið var Sveinn formaður Frímerkjaklúbbs Akureyrar og einn- ig formaður Safnaraklúbbsins Akka á Dalvík. Þá hefur Sveinn setið í stjórnum Félags íslenskra vélsleða- manna FÍV og Félags íslenskra frí- merkjasafnara FÍF. Hann er heið- ursfélagi margra félaga og var þar af formaður í níu ár) og í stjórn Búnaðarsambands Eyjafjarðar (BSE) 1969–1984, þar af formaður í ellefu ár. Búnaðarþingsfulltrúi 1978– 1994 og stéttarsambandsfulltrúi 1979–1984. Í hreppsnefnd Árskógshrepps sat Sveinn frá 1970 til 1994, og var odd- viti 1985–1994. Hann var formaður skólanefndar í 25 ár, og safnaðar- fulltrúi Stærri-Árskógskirkju í nokk- ur ár. Þá sinnti Sveinn kennslu í barnaskólanum Árskógi í nokkur ár, sat í stjórn Sparisjóðs Árskógs- S veinn Elías Jónsson fædd- ist 13. janúar 1932 í Ytra- Kálfsskinni á Árskógs- strönd. Hann ólst upp við sveitastörfin, gekk í barna og unglingaskóla á Árskógsströnd, fór í Laugaskóla 1950-1952 og lauk landsprófi þaðan. Veturinn 1952-53 var Sveinn í Ryslinge lýðháskólanum í Danmörku og starfaði á búgarði sem fóðurmeistari um sumarið. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði í Reykjavík vorið 1959 og hlaut meistararéttindi árið 1962. Vorið 1959 tók Sveinn við búinu í Kálfsskinni ásamt eiginkonu sinni, Ásu Marinósdóttur. Þau létu af búskap árið 1998. Hjónin fluttu á Hauganes árið 2005 og hafa búið þar síðan. Samhliða búskap var Sveinn um- svifamikill byggingaverktaki, með marga starfsmenn og lærlinga í húsa- smíði um tíma. Árið 1983 var ferða- þjónustu (bænda) bætt við búskapinn og sá dóttirin Erla Gerður um að koma henni af stað. Gistingin fór að mestu fram frá Ytri-Vík á Árskógs- strönd, en einnig frá Kálfsskinni. Ferðaþjónustan er starfrækt enn og er nú í höndum sonarins Marinós. Þeir feðgar Sveinn, Jón Ingi og Mar- inó stofnuðu Sportferðir ehf. árið 1994 í þeim tilgangi að efla afþreyingu og ævintýraferðir bæði á sjó og landi. Auk gistingar hefur því verið boðið upp á ferðir á snjósleðum, hestum, jeppum og mörgu fleiru. Sveinn byggði upp allan húsakost í Kálfs- skinni á árunum 1963 til 1975. Árið 1985 var búið að byggja yfir bygging- arstarfsemina að Melbrún 2 og sama ár var Byggingafélagið Katla ehf. stofnað og var Jón Ingi hluthafi frá upphafi ásamt fleirum og í dag er fyrirtækið undir hans stjórn. Sveinn var einn af fimm stofn- endum Tréverks hf. á Dalvík 1962. Hann stofnaði einnig félagið Plast og stálgluggar ehf. árið 1972 ásamt Helga, Birni og Kristni (Dalvík) – allir Jónssynir eins og Sveinn, en engir þeirra bræður! Unnið var að gerð plast- og stálglugga í ca. 16 ár. Sveinn er mikill félagsmálamaður og hefur starfað í óteljandi félögum. Hann gekk ungur í UMF-Reyni og var formaður þess í fimm ár. Hann var einnig í stjórnum UMSE (14 ár, sæmdur Fálkaorðunni 1. janúar 2013. Sveinn hefur verið félagi í Frímúrara- reglunni í 40 ár. Margt er enn ótalið enda Sveinn komið víða við. Árið 2007 komu út endurminningar Sveins og gefur bók- artitillinn góða vísbendingu um að Sveinn hafi ekki setið auðum höndum um ævina; „Vasast í öllu“. Björn Ing- ólfsson skráði. Sveinn gaf út kver um Steingrím Eyfjörð lækni árið 2012. Sveinn nýtur þess að ferðast, bæði ut- an lands sem innan og sérstaklega að ferðast um hálendi Íslands að vetri til. „Ég er búinn að fara á alla helstu jökla landsins, þetta hefur verið hálfgerð árátta hjá manni, en þessar ferðir hafa gefið mér marga skemmtilega daga.“ Fjölskyldan Eiginkona Sveins er Ása Marinós- dóttir, f. 9.2. 1932, húsmóðir og ljós- móðir. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmunda Ingibjörg Einarsdóttir ljósmóðir, f. 15.11. 1905, d. 16.5. 1999, og Marinó Steinn Þorsteinsson bóndi, f. 28.9. 1903, d. 4.11. 1971. Börn Sveins og Ásu eru 1) Jón Ingi, f. 5.6. 1959, framkvæmdastjóri Kötlu ehf. Maki: Guðbjörg Inga Ragnars- dóttir, f. 18.8. 1959, vinnur skrifstofu- störf hjá Kötlu ehf. Börn: Ásrún Ösp, f. 19.6, 1980, ljósmóðir og hjúkrunar- Sveinn Elías Jónsson, húsasmíðameistari og fyrrverandi bóndi – 90 ára Stórfjölskyldan Samankomin á 60 ára brúðkaupsafmæli Sveins og Ásu, 30. ágúst 2018, heima á Kálfsskinni. Hefur alltaf gaman af að lifa Nýtrúlofuð Ása og Sveinn árið 1958, skömmu fyrir brúðkaup þeirra. Afmælisbarnið Sveinn á hestbaki á góðum degi í Þorvaldsdal. Til hamingju með daginn Reykjavík Hörður Ingi Birgisson fæddist 25. jan- úar 2021 kl. 7.33. Hann vó 3.380 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans eru Birgir Örn Harðarson og Íris Irma Garðarsdóttir. Nýr borgari Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningar- greinar, skrifa minningargrein og æviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.