Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Active Liver inniheldur mjólkurþistil og
ætiþistil sem talin eru stuðla að eðlilegri
starfsemi lifrar og galls.
Í blöndunni er einnig kólín sem stuðlar að
eðlilegum fituefnaskiptum, lifrarstarfsemi
og eðlilegum efnaskiptum er varða
amínósýruna hómósystein.
Að auki inniheldur Active Liver túrmerik og svartann p pa .
LIÐSSTYRKUR
LIFRARINNAR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Nóg er að gera hjá Þörungaverk-
smiðjunni á Reykhólum. Fram-
leiðsla hefur gengið vel, gott ástand
er á mörkuðum og áhugaverð verk-
efni fram undan sem lúta að auknu
samstarfi við há-
skóla og rann-
sóknastofnanir
um rannsóknir á
lífríki og verð-
mætum lífefnum
úr þangi og þara,
og tækifærum til
aukinnar verð-
mætasköpunar
og atvinnu-
uppbyggingar.
Sögu Þörungaverksmiðjunnar má
rekja aftur til 8. áratugarins þegar
framsýnir bændur við Breiðafjörð
tóku höndum saman: „Þá langaði að
nýta bæði þangið og þarann sem
vex í firðinum og eins jarðhitann
sem er hér á Reykhólum. Segir
sagan að þeir hafi sent ríkisstjórn-
inni erindi og látið fylgja með pen-
ing í umslagi til að reyna að koma
því til leiðar að verkefnið gæti haf-
ist af krafti,“ segir Finnur Árnason
framkvæmdastjóri Þörungaverk-
smiðjunnar en það var verkfræð-
ingurinn Sigurður Hallsson sem lék
stóran þátt í undirbúningi að stofn-
un fyrirtækisins árið 1976, þá undir
nafninu Þörungavinnslan. Um það
leyti gerði Hafrannsóknastofnun
rannsóknir á magni og ástandi
þangs og þara í firðinum, svo stýra
mætti nýtingunni betur.
Eins og oft vill verða með ný-
sköpunarfyrirtæki gekk reksturinn
brösuglega í fyrstu og þurfti að
endurfjármagna fyrirtækið 1986 og
hefur það síðan borið nafnið Þör-
ungaverksmiðjan. Byggðastofnun
og fjölmargir einstaklingar sem
lögðu hönd á plóg eiga samtals um
28% hlut í félaginu en 72% eru í
eigu IFF sem er stór alþjóðleg
samstæða margra fyrirtækja á mat-
vælamarkaði. Á bilinu 20 til 25
manns starfa við að sækja hráefni í
fjörðinn, þurrka það og vinna eftir
kúnstarinnar reglum og landar
fyrirtækið og vinnur úr um það bil
18 til 20.000 tonnum af klóþangi og
hrossaþara á hverju ári.
Innihalda áhugaverð efni
Finnur segir Breiðafjörð besta
staðinn á landinu fyrir svona fram-
leiðslu þar sem náttúrufar hentar
vel fyrir vöxt og viðkomu þörung-
anna og eins fyrir starfsmenn Þör-
ungaverksmiðjunnar að athafna sig:
„Fjörðurinn er stór og mikill, fjöl-
margir firðir og óteljandi eyjar og
sker þar sem þangið vex. Fjörur
eru almennt aflíðandi og stórar þar
sem mikill munur er á flóði og fjöru
en Breiðafjörður hefur að geyma
um 60% af öllu klóþangi sem vex
við strendur Íslands.“ útskýrir
Stefnir vistkerfinu í voða
ef tvöfalda á skurðinn
- Finnur Árnason hjá Þörungaverksmiðjunni kveðst hafa áhyggjur af hug-
myndum um að auka nýtingu á þangi í Breiðafirði - Vistvæn og verðmæt afurð
Ljósmynd / Þörungaverksmiðja
Þörungaverksmiðjan Í Reykhólahöfn er alndað um 18 til 20 þúsund tonnum af klóþangi og hrossaþara á ári hverju.
Finnur Árnason
Atvinna
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Mikið hvassviðri gekk yfir landið
norðvestanvert í gær. Verst var
staðan milli klukkan tólf á hádegi og
sex um kvöld og voru heldur fá skip
á miðunum vestur af landinu.
„Þetta er vont veður og gengur á
með hríðum. Við erum í vesturjaðr-
inum á þessu veðri og þyrftum að
fara yfir hinum megin til að komast í
skaplegt veður,“ sagði Jóhannes Ell-
ert Eiríksson, skipstjóri á Viðey
ER-50, í samtali við blaðamann í
gær.
Það var kominn suðvest-
anstormur á Vestfjarðamiðum og
ölduhæðin um sex til átta metrar um
klukkan eitt í gær þegar rætt var við
Jóhannes Ellert, en skipið var á
veiðum á Víkurálnum. „Þetta er eng-
inn svakalegur sjór, það fer ekkert
illa um okkur. Það gerist nú reyndar
aldrei á Viðey að það fari illa um
okkur. Þau láta vel í sjó þessi skip.“
Ekki gott að hífa úr festi
Ekki var langt síðan Viðey mætti
á miðin og því tilvalið að spyrja
hvernig upphaf veiðanna hefði verið
við þessar aðstæður? „Við köstuðum
klukkan ellefu í gærkvöldi [þriðju-
dag] og þetta er allt í lagi miðað við
aðstæður – miðað við hvað veðrið er
vont. Þetta sleppur til. Við höfum
stundum þurft að toga bara aðra
leiðina í hríðunum. […] Það er að-
eins fast núna og það er ekki gott að
hífa úr festi í svona slæmu veðri,“
svarar skipstjórinn.
Hann segir að gert sé ráð fyrir að
koma til hafnar annaðhvort í Grund-
arfirði á sunnudagskvöld eða í
Reykjavík á mánudag.
Skjáskot/Vegagerðin
Sjólagsspá Útlitið var ekki gott
miðað við spár Vegagerðarinnar.
Þurftu stundum að
toga í aðra áttina
- Töluvert hvassviðri á Víkurálnum