Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2021
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
st’ al og
Stál og stansar
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Hinn 19 ára Baldur Einarsson er
virkilega fjölhæfur ungur maður
sem hefur mikið fyrir stafni. Hann
sló svo sannarlega í gegn í kvik-
myndinni Hjartasteini sem kom út
árið 2016 en þar lék hann ung-
lingsstrákinn Þór, aðra aðal-
persónu myndarinnar. Baldur seg-
ir í samtali við Sigga Gunnars í
Síðdegisþættinum að tökur á
myndinni séu enn þann dag í dag
eitt það skemmtilegasta sem hann
hefur gert í lífinu en hann segist
langt því frá að hafa lagt leik-
arastarfið á hilluna. Hann hefur
þó leitað á önnur mið líka því hann
gaf út sitt fyrsta lag undir lista-
mannsnafninu BaraBaldur á dög-
unum. Hann stundar nú nám með-
fram bæði leiklistinni og
tónlistinni en hann lærir að beita
sér á bak við myndavélina í kvik-
myndatækni í Tækniskólanum. Þá
lék hann í þáttunum Vitjunum
sem verða sýndir á RÚV um
páskana.
Baldur ræddi um öll járnin í
eldinum í Síðdegisþættinum og í
samtali við Morgunblaðið.
Hjartasteinn, undir leikstjórn
Guðmundar Arnars Guðmunds-
sonar, vakti gríðarlega athygli og
sópaði til sín verðlaunum eftir
frumsýningu og vann meðal annars
tugi alþjóðlegra verðlauna. Spurð-
ur út í það í Síðdegisþættinum
hvernig var að taka þátt í mynd-
inni, sagðist Baldur í raun hafa
byrjað að vinna að myndinni 12 ára
gamall en hann er fæddur árið
2002.
„Það skemmtilegasta
sem ég hef gert“
„Þetta var 2015 – upptöku-
tímabilið. Við tókum held ég sex,
sjö, átta mánaða æfingatímabil fyrir
þetta. Þannig að þessi hjartasteins-
upplifun byrjaði eiginlega 2014,
þegar ég var 12 ára,“ sagði Baldur.
„Þetta var örugglega það
skemmtilegasta sem ég hef gert í
lífi mínu. Og er enn þá. Upplifunin á
setti og „crewið“ og allir sem komu
að þessari mynd voru æðislegir,“
sagði hann en Baldur ferðaðist víða
um heim til að kynna myndina og
taka á móti verðlaunum.
Létt kraftaverk
„Ég var náttúrulega bara 12 ára.
Hafði aldrei leikið í neinu áður og
hafði engan áhuga á þessu á þeim
tíma. Það var eiginlega létt krafta-
verk að ég fékk hlutverkið í þessari
mynd,“ lýsti hann en honum var
boðið í leikprufu þegar hann var
með bróður sínum í auglýs-
ingatökum.
„Leikstjórinn var þar og bauð
mér að koma í prufu,“ sagði Baldur
sem segist hafa verið réttur maður
á réttum stað.
„Þetta var bara rosa einfalt. Ég
fór í prufur, komst langt og fékk
þetta svo,“ bætti hann við.
Lag til kærustunnar
Lagið Soon samdi Baldur til kær-
ustu sinnar, Freyju Soffíu Gunn-
arsdóttur en lagið fjallar um þeirra
samband.
„Ég fékk þessa hugmynd út frá
því hversu rétt allt var. Þetta er lag
um hvernig allt gengur upp. Bara
góðar hlýjar tilfinningar,“ sagði
Baldur sem byrjaði að einblína á
tónlistarferilinn sinn árið 2021.
Bjarki Ómarsson eða Bomarz
pródúseraði svo lagið.
„Ég er núna á tvítugsaldri og
málið með íslenskan leiklistarferil
er að það er svo lítið að gera fyrir
unglinga. Þannig að ég er núna að
stíga aðeins út fyrir minn þæg-
indaramma og búa til tónlist,“ út-
skýrði Baldur sem segist alltaf hafa
haft mikinn áhuga á tónlist. Sagðist
hann hafa sungið mikið frá blautu
barnsbeini enda mikil tónlistar-
menning á heimili hans en faðir
Baldurs, Einar Örn Jónsson, er tón-
listarmaður og var meðal annars
hljómborðsleikari í hljómsveitinni Í
svörtum fötum. Sjálfur spilar Bald-
ur bæði á gítar og á píanó.
Hann játaði því aðspurður að tón-
listin hefði í raun legið beinna við
en leiklistin.
„Það kemur mér ekki á óvart að
ég gaf út lag,“ sagði Baldur sem
hefur þó sungið eitt lag eftir föður
sinn sem gefið var út fyrir nokkrum
árum þegar hann var 16 ára gamall.
Það var lagið On My Mind. Soon er
þó fyrsta lagið sem Baldur semur
sjálfur og gefur út.
Spurður út í það hvers vegna
hann hafi ákveðið að taka upp lista-
mannsnafnið BaraBaldur sagðist
hann þakka mömmu sinni fyrir hug-
myndina.
„Við fórum yfir Spotify-reikninga
til að sjá hvort það væri eitthvað til
sem héti Baldur og mamma mín
spurði mig: Er bara Baldur til?
Hún var að tala um Baldur, bara
það. Og BaraBaldur vaknaði þann-
ig, svo hef ég haldið mig við það,“
útskýrði Baldur í Síðdegisþætt-
inum.
Nýr heimur
Bjartur segist þó hvergi hættur í
leiklistinni þrátt fyrir að hann sé nú
farinn að búa til tónlist líka. Hann
leikur til að mynda í nýjum þáttum,
Vitjunum, leikstýrðum af Evu Sig-
urðardóttur, sem verða sýndir á
RÚV um páskana á þessu ári.
Tónlistin og leiklistin er þó ekki
það eina sem Baldur hefur tekið sér
fyrir hendur en hann stundar nú
nám í kvikmyndatækni í Tækniskól-
anum.
„Ég svona blanda þessu saman,“
segir Baldur í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég er að læra núna
hvernig er að vera fyrir aftan
myndavélina. Þannig að ég er svo-
lítið að fara inn í nýjan heim þar
líka. Þannig að það er leiklistin,
kvikmyndagerð og tónlistin,“ segir
Baldur.
Hægt er að hlusta á lagið Soon
á Spotify og Youtube undir
nafninu BaraBaldur.
Fyrsta lag Baldurs úr Hjartasteini
Sló í gegn sem barn en er bara rétt að byrja
Baldur Einarsson sló í
gegn sem barn fyrir
hlutverk sitt sem Þór í
Hjartasteini en hann
hefur margt á prjón-
unum í dag, hefur stigið
sín fyrstu skref í
tónlistarbransanum og
gefið út sitt fyrsta lag.
Ljósmynd/Margrét Einarsdóttir
Fjölhæfur Baldur er afar fjölhæfur en hann er bæði leikari, tónlistarmaður
og stundar nú nám í kvikmyndatækni í Tækniskólanum og unir sér vel.
Ást Lagið Soon er rómantískt og fullt af tilfinningum enda samið um og til
kærustu hans Freyju Soffíu Gunnarsdóttur og lýsir ást Baldurs á henni.
Nýtt Lagið Soon er fyrsta lagið sem BaraBaldur gefur út og semur sjálfur
en það er pródúsað af Bómarz. Hér er Baldur að vinna við að semja lagið.