Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
fræðingur hjá HSN-Ak, maki: Björg-
vin Smári Jónsson, f. 12.5. 1980,
byggingaverkfræðingur hjá AVH.
Börn þeirra eru Anton Dagur og
Inga Karen; Sveinn Elías, f. 11.10.
1986, svæðisstjóri hjá Íslandsbanka,
Ak., maki: Pála Dröfn Sigurðar-
dóttir, f. 24.8. 1986, vinnur á fjár-
málasviði hjá „Höldi“ bílaleigu. Synir
þeirra eru Jón Alex og Sigurður
Sölvi; Einar Oddur, f. 28.2. 1992, raf-
virki hjá Rafeyri, maki: Karen Hrönn
Vatnsdal, f. 29.8. 1992, fimleikaþjálf-
ari á Akureyri; 2) Margrét, f. 27.9.
1960, framkvæmdastjóri markaða
hjá Arion banka, maki: Óli Björn
Kárason, f. 26.8. 1960, alþingismaður.
Börn þeirra: Eva Björk, f. 6.4. 1983,
verkefnastjóri hjá Marel hf., Kári
Björn, f. 20.12. 1991, starfsmaður hjá
bílaumboðinu Öskju, og Ása Dröfn, f.
3.4. 1999, sérfræðingur hjá Seðla-
banka Íslands; 3) Erla Gerður, f.
15.4. 1966, heilsugæslulæknir og lýð-
heilsufræðingur, maki: Geir Borg, f.
28.10. 1968, framkvæmdastjóri Gag-
arin ehf. Synir þeirra: Jökull Elí, f.
16.9. 1999, og Björn Víkingur, f. 16.9.
2002, þeir eru báðir í háskólanámi; 4)
Marinó Viðar Sveinsson, f. 11.9. 1971,
framkvæmdastjóri Sportferða og
ferðaþjónustu Ytri-Víkur. Maki Lilja
Magnúsdóttir, f. 6.12. 1990, vinnur
við ferðaþjónustuna Ytri-Vík. Þeirra
börn: Yrja Mey, f. 22.11. 2013, og
Leon Tindur, f. 5.11. 2016. Sonur
Marinós frá fyrra sambandi: Gabríel
Daði, f. 10.3. 1999, í námi, móðir:
María Bragadóttir, f. 2.6. 1974.
Hálfsystkini Sveins samfeðra:
Brynhildur, f. 24.6. 1916, Gunnhildur,
f. 24.6. 2016, Helga Steinunn, f. 2.2.
1921, Bergrós, f. 2.2. 1921, Einar, f.
12.11. 1922, og Þórey, f. 27.8. 1927.
Þau eru öll látin.
Foreldrar Sveins voru hjónin
Jóhanna Margrét Sveinbjarnar-
dóttir, f. 4.12. 1893, d. 16.12. 1971, og
Jón Einarsson, f. 12.10. 1892, d.
21.11. 1981, bændur í Kálfsskinni.
Sveinn
Elías
Jónsson
Jón Ólafsson
bóndi á Barká
Þórey Gísladóttir
húsmóðir á Barká í Hörgárdal
Einar Jónsson
bóndi á Hömrum
Rósa Loftsdóttir
húsmóðir á Hömrum við Akureyri
Jón Einarsson
bóndi á Kálfsskinni
Loftur Hallgrímsson
bóndi á Skáldalæk
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir á Skáldalæk í Svarfaðardal
Björn Jónsson
bóndi á Hrísum
Þorgerður Sveinsdóttir
húsmóðir á Hrísum í Svarfaðardal
Sveinbjörn Björnsson
bóndi á Hillum
Hallfríður Sigvaldadóttir
húsmóðir á Hillum á Árskógsströnd
Sigvaldi Sigurðsson
bóndi á Stóru-Brekku
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir á Stóru-Brekku í Hörgárdal
Ætt Sveins Elíasar Jónssonar
Jóhanna Margrét
Sveinbjarnardóttir
húsmóðir á Kálfsskinni
á Árskógsströnd
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
„ÞETTA ER BARA SUMARBÚSTAÐURINN
MINN.“
„VIÐ LÉTUM EKKI TAKA FRÁ BORÐ FYRIR
OKKUR. VIÐ KOMUM MEÐ OKKAR EIGIÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... kletturinn í lífi þínu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VEISTU HVAÐ ÞIG LANGAR Í
Í AFMÆLISGJÖF?
HVAÐ MEÐ
TRÖPPUR UPP Í
KATTAKASSANN?
NEI
FARÐU,
ASNI
HVAÐ VERÐURÐU
GAMALL?
43
FÉLAGAR, ÉG ÞEKKI VEL ÁHÆTTUNA SEM ÞIÐ
TAKIÐ! EN ÉGÆTLAST EKKI TIL NEINS AF
YKKUR SEM ÉG ER EKKI FÚS AÐ GERA SJÁLFUR!
VIÐ TRÚUM ÞÉR!
VIÐ ERUM BARA AÐ BÍÐA EFTIR AÐ ÞÚ FÁIR
ÞÉR FYRSTA BITANN!
Ingólfur Ómar laumaði að mér
einni hestavísu:
Æðir gjótur urð og grjót
ekki hót er ragur.
Kvikum fótum rífur rót
reiðarskjóti fagur.
Hrólfur Sveinsson orti um „sjálf-
lægni“:
Sú háðung ríður mér hreint á slig
að hlusta á menn tala bara um sig
í stað þess að heyra
hvort hafi ég fleira
fróðlegt að segja um sjálfan mig.
Limran „Jón“ eftir Hrólf:
Að vera eða ekki vera Jón
er vandalaust, sagði Mera-Jón
við Jón prest á Hraunum;
en hann komst að raun um
að sitthvað er Jón og séra Jón.
Þetta er fyrsta limran sem ég
lærði eftir Kristján Karlsson:
„Ég man ekki meira í flýti,“
sagði maður, sem flaut á spýtu.
Hann drukknaði óðara,
en hann drukknaði fróðari
um dauða og minni og spýtu.
Hér er önnur eftir Kristján:
Mælti Arngeir á Eyrarlandi,
„mikið andskotans djöfuls fjandi
er Suðurland ljótt
þegar svörtust er nótt
hjá sumrinu á Norðurlandi.“
Sturla Friðriksson orti um „upp-
lýsingaþjónustu“:
Við spurðum tvær fáklæddar frúr
um sinn fatnað í léttari dúr.
Þær svöruðu greitt,
að þeim samt væri of heitt,
svo við spurðum þær spjörunum úr.
Þórarinn Eldjárn veltir fyrir sér
„Vera eða gera“:
Ég er þreyttur á því að gera
og því vel ég hér fram bera
heitstrenging þá
að héðan í frá
ætla ég eingöngu að vera.
„Valþjófur er beturviti“ eftir
Þórarin:
Hann Valþjófur veit allt og getur
og viskuna færir í letur.
Ég sé hann oft hér
þá segir hann mér:
HIÐ SANNA (Ég veit þó betur.)
Jóhann S. Hannesson orti:
Að uppruna erum við norsk,
að innræti meinleg og sposk,
en langt fram í ættir
minna útlit og hættir
á ýsu og steinbít og þorsk.
Enn orti Jóhann:
Það er eitt sem ég aldrei get skilið:
ef ég ætla að ganga upp þilið
losna iljarnar frá
og fæturnir ná
ekki að fylla að gagni upp í bilið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ein limran rekur aðra