Morgunblaðið - 14.01.2022, Side 1

Morgunblaðið - 14.01.2022, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 11. tölublað . 110. árgangur . FRAMKVÆMDIR FLJÓTAR AÐ VINDA UPP Á SIG BERLÍNARMÚR Á MILLI ELSKENDA PORTÚGAL NÁÐ LENGRA Á SÍÐUSTU MÓTUM ÞAÐ SEM ER 28 LANDSLEIKUR Í DAG 27FASTEIGNABLAÐ 16 SÍÐUR Ekkert er óvenjulegt við hvassviðrið sem hefur geisað um land allt síðustu vikur. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir í samtali við Morgunblaðið að kominn sé vetur og vænta megi svipaðs veðurs næstu daga. „Það er mikið hæðasvæði yfir Bret- landseyjum núna, þetta beinir lægðunum svolítið til okkar. Það verður mjög rysjótt Landsmenn þurfa því að búa sig vel undir veðrið og fylgjast með spám næstu daga. Hægt er að fylgjast nánar með veðrinu á veðurvef mbl.is. veður í þessari viku og eitthvað fram í þá næstu.“ Desembermánuður var óvenjulegur veðurfarslega þar sem lítið var um snjó- komu og mun janúar mögulega bæta úr því. Morgunblaðið/Árni Sæberg Áfram er spáð mjög rysjóttu veðri á landinu Guðni Einarsson Inga Þóra Pálsdóttir „Staðan er orðin ansi þröng mjög víða. Meðal annars þurftum við að loka Seljaskóla,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri al- mannavarnanefndar höfuðborgar- svæðisins og slökkviliðsstjóri SHS. Ekkert skólahald verður í Selja- skóla í dag og á mánudag vegna fjölda kórónuveirusmita hjá nem- endum og starfsmönnum. Þá var frí- stundastarf í Seljahverfi fellt niður og íþróttaæfingar ÍR hjá grunn- skólabörnum. Jón Viðar sagði að ástandið væri orðið tvísýnt í fleiri skólum. Einnig þyrfti að fylgjast vel með velferðar- þjónustu sveitarfélaganna vegna út- breiðslu smita. Þar mætti m.a. nefna sambýli, heimahjúkrun og fleira. Staðan væri metin frá degi til dags og jafnvel nokkrum sinnum á dag. En má búast við fleiri lokunum? „Það kæmi mér ekkert á óvart miðað við hvernig þetta hefur þróast síðustu daga,“ sagði Jón Viðar. Afléttingar ólíklegar Afléttingar á sóttvarnaaðgerðum vegna faraldursins eru ekki í kort- unum. Slíkt væri órökrétt í ljósi stöð- unnar á Landspítalanum og neyðar- stigs almannavarna. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is í gær. Þórólfur sendi Willum Þór Þórs- syni heilbrigðisráðherra nýtt minn- isblað í gær og mun ríkisstjórnin ræða það á fundi sínum í dag. Verður að teljast líklegt að hann leggi til harðari aðgerðir en nú eru í gildi. Í nokkrum nágrannalöndum Íslands hafa afléttingar verið tilkynntar. „Menn eru að aflétta í ljósi stöð- unnar hjá sér. Hvert og eitt land verður að horfa á sína stöðu. Við á Ís- landi þurfum að skoða okkar stöðu. Það er mjög fróðlegt að sjá hvað aðr- ir eru að gera en það ræður ekki úr- slitum um það sem við eigum að gera,“ sagði sóttvarnalæknir. »4 Ástandið tvísýnt í skólum - Loka Seljaskóla vegna smita hjá nemendum og starfs- mönnum - Ríkisstjórnin ræðir minnisblað Þórólfs í dag Morgunblaðið/Hari Börn Loka þurfti Seljaskóla vegna fjölda smita að sögn Jóns Viðars. Skipulagsstofnun telur að óvissa ríki um áhrif lax- eldis á samfélagið í Seyðisfirði en þau geti orðið talsvert eða veru- lega neikvæð ef ekki næst sátt í nærsamfélaginu. Í því sambandi er vísað til fjölda athugasemda íbúa vegna áforma um sjókvíaeldi. Telur Skipulagsstofnun æskilegt að strandsvæðaskipulag, sem unnið er að, liggi fyrir áður en einstökum svæðum verði ráðstafað. Fiskeldi Austfjarða hefur unnið að undirbúningi framleiðslu á 10 þúsund tonnum af laxi í sjókvíum í Seyðisfirði og er umhverfismati loki. Áformin miðast við að nýta heimildir í burðarþolsmati og áhættumati Hafró og verður hluti heimildanna notaður til eldis á ófrjóum laxi. »6 Litið til andstöðu íbúanna _ Félag atvinnurekenda hefur beðið umboðsmann Alþingis að hefja frumkvæðisathugun á stjórnsýslu eftirlitsstofnana vegna Íslandspósts. Lítur félagið svo á að stjórnvöld hafi virt að vettugi gildandi laga- ákvæði þegar ákveðið var að ríkið skyldi greiða Póstinum rúmar 500 milljónir króna fyrir veitta alþjón- ustu á árinu 2020, að frádregnu 250 milljóna króna viðbótarframlagi. Stjórnvöldum sé ekki heimilt að ákveða að gildandi lagaákvæði sé óvirkt, eins og gert hafi verið, en yfirlýsingar þar að lútandi grafi undan grundvallarreglunni um þrí- skiptingu ríkisvaldsins. »12 Morgunblaðið/Hari Pósturinn Umboðsmaður Alþingis hefur nú verið beðinn að skoða málið. Vilja að umboðs- maður athugi málið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.