Morgunblaðið - 14.01.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.01.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrirtaka var í vikunni fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur í máli Hug- ins VE-55 gegn ríkinu vegna tjóns sem útgerðin varð fyrir við útgáfu makrílkvóta. Lögmaður Hugins lagði fram matsgerð vegna tjóns- ins og nemur tjón útgerðarinnar um 540 milljónum króna, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirsson- ar, framkvæmdastjóra Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum, en fyrirtækið eignaðist öll hluta- bréf í Hugin ehf. á síðasta ári. Að fyrirtöku lokinni var málinu frest- að til 10. febrúar. Hæstiréttur felldi tvo dóma í desember 2018 um að ekki hefði verið byggt á aflareynslu við út- gáfu makrílkvóta á grundvelli reglugerða 2011 til 2014 eins og skylt hefði verið og sama fyrir- komulag hefði verið viðhaft fram til 2018. Ríkið væri skaðabótaskylt í málinu þar sem ranglega hefði verið staðið að úthlutun kvótans og minna komið í hlut fyrirtækjanna en þeim hefði borið samkvæmt lögum. Sjö út- gerðarfélög stefndu ríkinu til greiðslu skaðabóta alls að upphæð um 10,2 milljarðar, en fimm félag- anna féllu frá málarekstri. Vinnslustöðin og Huginn héldu málinu áfram og var upphafleg krafa Vinnslustöðvarinnar upp á 982 milljónir króna og Hugins 839 milljónir. Að sögn Sigurgeirs Brynjars sættust aðilar á dóm- kvadda, óvilhalla matsmenn til að meta fjárhagslegt tjón. Aðilar hefðu hvor fyrir sig lagt gögn og spurningar fyrir matsmennina. Á grundvelli matsgerðar hafi lög- menn Hugins lagt fram bókun um breytta kröfugerð þar sem aðal- krafa er nú 547 milljónir, en vara- krafa 532 milljónir. Mat liggur ekki fyrir í máli Vinnslustöðvarinn- ar. Vekur spurningar Sigurgeir Brynjar segir að ríkið hafi lagt eigin forsendur; gögn og spurningar, fyrir matsmennina, en við fyrirtökuna hafi ríkið ekki lagt fram niðurstöður matsgerðar. Hann segir það athyglisvert og veki spurningar um hvort ríkislög- manni hafi ekki þótt hún hagstæð ríkinu. Mögulega geti ríkið farið fram á yfirmat í málinu. Hann segir að allt frá áliti um- boðsmanns Alþingis árið 2014 um ólögmæti kvótasetningar hafi fyrirtækið verið tilbúið í samtal við ríkisvaldið um lyktir málsins, en nú fari það sína leið í dómskerfinu. Hann bendir á að ef Vinnslustöðin hefði gerst sek um skattalagabrot hefði fyrirtækinu verið refsað og málið sett í innheimtuferli. Varð- andi makrílkvótann væri ekki leng- ur deilt um hvort ríkið hefði brotið af sér heldur hversu miklu tjóni fyrirtækið hefði orðið fyrir. Frumkvöðlar á Hugin Það væri líka athyglisvert að í málinu sem var tekið fyrir í vik- unni ætti Huginn VE í hlut. Út- gerð þess hefði verið frumkvöðull í makrílveiðum við Ísland ásamt öðrum útgerðarfyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Árin 2002 til 2006, áður en makrílveiðar hófust, hefðu Hugins- menn byrjað að þreifa fyrir sér í þessum efnum og sótt um leyfi til tilraunaveiða á makríl sem annars vegar hefði ekki verið svarað og hins vegar upplýst að starfsmenn ríkisins hefðu ekki tíma til að sinna umsókn eða eftirliti sökum sumar- leyfa. Sumarið 2007 hefði áhöfn Hugins VE síðan náð alls um 3.000 tonnum af makríl, þar af um 2.500 tonnum í íslenskri lögsögu og 500 tonnum í þeirri færeysku. Þar með hófust beinar makrílveiðar í lög- sögu Íslands, eins og segir á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar. Tjón Hugins metið um 540 milljónir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. - Krafa byggð á niðurstöðu matsmanna í deilu um makríl - Ríkið lagði ekki fram matsgerð við fyrirtöku Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ragnar Hjartarson, listrænn stjórn- andi hjá Georg Jensen í Kaup- mannahöfn, og Mehul Tank, for- stjóri fyrirtækisins, urðu þess heiðurs aðnjótandi í vikunni að ganga á fund Margrétar Þórhildar II. Danadrottningar í Amalien- borgarhöll og færa henni forláta nælu að gjöf í tilefni af því að á þessu ári eru liðin fimmtíu ár frá því að hún settist á valdastól. Um er að ræða nælu úr gulli og hvítagulli með 135 listilega út- skornum demöntum sem Georg Jen- sen lét hanna sérstaklega af þessu tilefni. „Það var gert til að fagna einni merkustu vörðunni á vegferð hennar hátignar,“ segir í frétta- tilkynningu frá fyrirtækinu. Í samtali við Morgunblaðið segir Ragnar fundinn hafa verið mjög ánægjulegan og að það hafi verið mikil upplifun og heiður að hitta drottninguna. „Það er mikill hátíðar- andi hér í Danmörku í kringum af- mælið og búast má við mikilli um- fjöllun um það á næstunni.“ Ljósmyndir/Keld Navntoft, Kongernes Samling Gjöf Mehul Tank, Margrét Þórhildur og Ragnar Hjartarson við hið hátíðlega tilefni í Amalienborgarhöll í vikunni. „Mikil upplifun og heiður“ - Færðu Margréti Danadrottningu forláta nælu í tilefni af fimmtíu ára valdaafmæli hennar - 135 útskornir demantar Demantar Nælan góða sem Ragnar Hjartarson afhenti drottningu. „Niðurstaðan þýðir auðvitað bara það sem hún segir, að mjög stór hóp- ur kennara er sammála því að þessi samningur sé ekki nægilega góður og ekki á vetur setjandi, sem þýðir að hann var felldur,“ segir formaður Félags grunnskólakennara, Þor- gerður Laufey Diðriksdóttir. Ljóst varð í gær að grunnskóla- kennarar hefðu fellt nýjan kjara- samning í atkvæðagreiðslu. Tæplega þrír af hverjum fjórum félagsmönn- um í félaginu kusu að fella samning- inn, en kjörsókn var 69%. „Tölurnar eru bara skýrar og kennarar eru samhentir í verkefnum sínum, þarna sést það enn og aftur, og það er ljóst að niðurstaðan er af- gerandi,“ segir Þorgerður og bætir við að ekki sé hægt að greina úr töl- unum hvað hafi orðið til þess að samningurinn var felldur. Aldís Hafsteinsdóttir, stjórnarfor- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði. „Þetta kemur okkur auð- vitað mjög á óvart af því að viðræð- urnar gengu það vel að eftir var tek- ið.“ Hún bætir við að vonast hafi verið til þess að samninganefnd kennara hefði það bakland að þessi samning- ur yrði samþykktur. „Við töldum að í þessum samningi fælist allt það sem við gátum boðið og þarna er verið að bjóða það sem aðrir launþegar á Íslandi fengu í lífs- kjarasamningunum, þannig að við áttum okkur ekki á hvaða staða er þarna uppi og um hvað er verið að biðja,“ segir hún. „Við buðum allt sem við gátum; í þessum samningi fólst það sem við höfðum að bjóða.“ Að sögn Aldísar hafi það legið fyr- ir allan tímann að samninganefnd sveitarfélaganna hefði ekkert umboð til þess að bjóða neitt annað en það sem aðrir Íslendingar hefðu fengið í lífskjarasamningunum. „Ef kennarar telja sig þurfa að fá meira en allir aðrir hafa fengið, þá verður mjög snúið að ná lendingu um það.“ rebekka@mbl.is Samningurinn ekki nógu góður - Ekki hafi verið hægt að bjóða meira Þorgerður L. Diðriksdóttir Aldís Hafsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.