Morgunblaðið - 14.01.2022, Page 15

Morgunblaðið - 14.01.2022, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 Inn að beini Veirufaraldurinn herjar nú á landsmenn sem aldrei fyrr. Grímuskylda er í almannarými og gildir einnig um Sjúkraþjálfun Reykjavíkur þar sem þessi beinagrind stendur vaktina. Eggert Maður um mann. Af því orði kemur menn- ing. Það er mikils virði að vera maður og geta notið íslenskrar menn- ingar. Það vill stundum gleymast að Íslend- ingar eiga aðra menn- ingu en bókmenntir og endurnýjaða frásagn- arlist Halldórs Kiljans Laxness. Frumherjar Á sama tíma og Halldór Kiljan Laxness tengir íslenskar bók- menntir við heimsmenninguna, þá eru frumherjar íslenskrar mynd- listar að tengja íslenska sjónmennt við evrópska samtímamyndlist. Á eftir frumherjunum koma spor- göngumenn, bæði karlar og konur. Ef til vill hefur hlut íslenskra kvenna ekki verið nægur gaumur gefinn. Höfundur þessarar greinar reyndi að vekja máls á hlut íslenskra kvenna á 100 ára afmæli kosninga- réttar kvenna. Þáttur kvenna í mód- ernisma íslenskrar myndlistar er mikill. Hvað þarf til að menning dafni? Það þarf meira en listamenn til þess að list dafni. Það fallegasta sem hægt er að segja um íslenska þjóð er að Íslendingar séu bókaþjóð. Hörður Ágústsson, listmálari fyr- ir hádegi og rannsakandi íslenskrar húsagerðar og sjónmenntar eftir há- degi, taldi að sjónmennt hefði ekki verið sinnt sem skyldi. Því er ég sammála. Bókaþjóðin keypti bækur en það voru aðeins örfáir sem sinntu sjón- mennt. Meðal þeirra voru hjónin Ingibjörg Guðmundsdóttir lyfja- fræðingur og Þorvaldur Guðmunds- son, svínabóndi, hótelhaldari og kaupmaður. Listháðir fíklar og velgjörðarmenn myndlistar Ævisaga Peggy Guggenheim heit- ir „Art Adicted“. Hjónin Ingibjörg og Þorvaldur falla undir það að vera listháðir fíklar. Það er alveg skað- laus fíkn og jafnvel ábatasöm á stundum. Þau hjón eru miklu fremur velgjörðarmenn íslenskrar mynd- listar. Þorvaldur Guð- mundsson varð ungur verslunarmaður í mat- ardeild Sláturfélagsins. Hann sinnti við- skiptavininum Jóhann- esi Kjarval, sem var ekki mikið fyrir að elda sér mat. Kynnin urðu til þess að Þorvaldur og Ingibjörg kona hans fengu áhuga á menn- ingararfi íslenskrar myndlistar. Þau góðu hjón urðu velgjörðarmenn íslenskr- ar myndlistar. Einstök menningargjöf Nú hafa börn Ingibjargar og Þor- valdar, þau Geirlaug, Skúli og Katr- ín, falið Listasafni Íslands til ævar- andi vörslu listasafn hjónanna. Menningargjöfin er 1.400 listaverk. Stærsti hluti af gjöfinni, um 400 verk, er eftir Jóhannes Kjarval, sem Þorvaldur hafði kynnst í matardeild- inni. Hjónin Ingibjörg og Þorvaldur voru mjög samlynd í áhugamáli sínu. Ingibjörg og Þorvaldur voru sam- hent hjón. Þannig varð til einstakt safn af íslenskri sjónmenningu. Kvöldverður á Holti varð menning- arferð. Hjónin trúðu því sem Kjarval sagði þeim. Íslensk þjóð stígur út úr landslaginu sem ól þjóðina. Ver- urnar í landslagi Kjarvals eru hin ís- lenska þjóð. Hjónin vissu einnig að einhver hluti af menningararfi íslenskrar þjóðar var innlyksa í útlöndum. Eins og við vildum handritin heim vildu þau hjón sjónlistina heim. Mörg verkanna keyptu þau í útlöndum, oft í sama landi og varðveitti handritin. Verkin voru keypt á löngum tíma. Ef til vill á 60 árum. Það svarar til þess að hjónin hafi keypt tvö lista- verk á mánuði. Eins og safnið sýnir voru verkin vel valin. Sum verkin eru gimsteinar. Og allir eru sam- mála um að þau heiðurshjón voru sanngjörn í viðskiptum. Velgjörðarhjón Ingibjörg og Þorvaldur voru vel- gjörðarhjón íslenskrar menningar og íslenskrar myndlistar. Þau ræktu hlutverk sem íslenska þjóðin náði ekki sem skyldi í Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur. Það skiptir ekki öllu hver safnar. Það skiptir máli að menningararfurinn sé sýndur þjóðinni sem steig fram úr landslaginu. Þess vegna eru Þorvaldur og Ingi- björg velgjörðarhjón. Og menning- argjöfin einstök. Þess vegna er ég þakklátur. Takk fyrir, Þorvaldur og Ingibjörg, að hafa vakið áhuga minn. Takk fyrir, Geirlaug, Skúli og Katr- ín. Njótum íslenskrar sjónlistar. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Ingibjörg og Þor- valdur voru samhent hjón. Þannig varð til einstakt safn af íslenskri sjónmenningu. Kvöld- verður á Holti varð menningarferð. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Menningargjöf Dyrfjöll, Jóhannes Kjarval. Tónar hafsins, Ásmundur Sveinsson. Hvítárvatn og Langjökull, Ásgrímur Jónsson. Þorvaldur Guðmundsson Hekla, Júlíana Sveinsdóttir. Ingibjörg Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.