Morgunblaðið - 14.01.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 14.01.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 ✝ Sverrir Valde- marsson skip- stjóri fæddist 20. janúar 1929 í Nýja- bæ í Saurbæj- arhreppi. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri að kvöldi gamlárs- dags. Sverrir var son- ur hjónanna Þór- mundu Guðnýjar Guðmunds- dóttur, f. 1.9. 1905, d. 26.3. 1967, og Valdimars Jón- assonar, f. 29.8. 1905, d. 11.11. 1972. Systkini Sverris: Kristín, f. 1930, d. 1992, og Birgir, f. Sara og Viktoría Björk. Eig- inmaður Ingu Þóru er Gauti Friðbjörnsson, sonur þeirra er Gauti, f. 15. mars 1996, í sam- búð með Dóróteu Jóhanns- dóttur, dóttir þeirra er Gabrí- ela Myrk. Stjúpbörn Ingu Þóru eru Kristján, Anna María og Magnús. 2) Ellen, f. 16. apríl 1958, eiginmaður Ellenar er Antonio Mendes, börn þeirra eru: Sævar Mikael, f. 28. júní 1989, í sambúð með Söndru Dögg Hauksdóttur, dætur þeirra Kristrún Namoi, Emilía Rós og Eva Sóley. Anna Katrín, f. 11. október 1997. Eftirlifandi sambýliskona Sverris er Hulda Eggertsdóttir. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 14. janúar 2022, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat 1941, d. 2008. Sverrir giftist Önnu Hjaltadóttur 22. október 1955. Anna lést 13. jan- úar 1995. Dætur þeirra eru tvær: 1) Inga Þóra, f. 5. mars 1956. Synir hennar og Rúnars Þórs Gylfasonar eru: Sverrir, f. 5. júlí 1975, í sambúð með Sólrúnu Tryggvadóttur, börn þeirra Arnar Geir, Atli Fannar, Aron Máni, Hrefna Huld og Tinna. Hörður, f. 9. maí 1980, giftur Steinunni Örnu Jóhannesdóttur, börn þeirra Andri Dagur, Katrín Þeir hverfa nú sem óðast af vettvangi fulltrúar þeirrar kyn- slóðar sem bar uppi þjóðlífið í æsku minni. Með Sverri Valde- marssyni skipstjóra er einn traustur klettur úr þeim hópi horfinn úr heimi hér. Sverrir var eiginmaður Önnu móðursystur minnar, Anna og mamma voru ekki aðeins systur heldur og nánar vinkonur þó stundum kastaðist í kekki, s.s. í stórfjöl- skylduboðinu á jóladag er þær körpuðu stundum um efnið „sjó- menn – landmenn“ eins og kall- að var í gríni. Um svipað leyti öðlaðist ég skilning á hugar- heimi sjómannskonunnar frænku minnar þegar ég kvöld eitt var staddur heima hjá henni og sá öflugt útvarpstæki með sleða og tökkum eins og þá var í tækjum; til að stilla inn bylgjur og tíðnisvið, tækið var alsett lím- böndum á stilliborðinu á þeim stöðum þar sem henni hafði reynst best að ná hljóði. Þarna var hún að leita kvöldin löng og dimm; hvort ekki heyrðist nema ef vera kynni ómur af rödd Sverris í radíóinu. Þessi tími kemur aldrei aftur, þá var krökkt af erlendum tog- urum á Íslandsmiðum, mest breskum, og stundum komu þeir inn til Akureyrar í stórviðrum svo tugum skipti, stundum fór verr og togarar fórust, allir sigldu þeir þó heilir heim þeir akureysku, enda einvalalið við stjórnvölinn á sjó og í landi, þeim trausta hópi tilheyrði Sverrir. Eins atviks minnist ég en þá kom flotinn inn um hávet- ur eftir þrálátt illviðri og slæmt útlit framundan. Kaldbak, þar sem Sverrir var skipstjóri, var siglt inn á Pollinn og að Torf- unesbryggju, það fer um mig hrollur þegar ég hugsa um hvað togarinn var brynjaður ísingu en dáðist að Sverri þar sem hann stóð í brúarglugganum og renndi Kalbak faglega að bryggju með camelinn í munn- vikinu sem þótti krúna karl- mennskunnar á þeim tíma. Skemmtilegri atvika minnist ég líka, s.s. þegar fylgst var með löndun og hversu létt var yfir frænku þegar aflinn var þorskur en ekki karfi, enda annan afla- hlut úr þorskinum að hafa. Einn- ig tilhlökkunarinnar þegar tog- arinn var að koma úr siglingu til Hull eða Grimsby og stoltsins þegar Sverrir sigldi heim á glæ- nýjum Kaldbak, Spánarsmíðuð- um skuttogara hátt í 1.000 lestir. Mér líkaði strax barnungum afar vel við Sverri með sína traustu nærveru, eins atviks minnist ég þegar ég var með pabba niðri í kjallara, hann hafði hengt upp sperðla sem voru ný- komnir úr reyk. Þegar Sverrir kom niður til okkar til að spjalla prílaði ég upp í stiga reif niður nokkra sperðla og rétti honum með orðunum: „Þú mátt eiga þá“, ég man að Sverrir leit til pabba með spurn í augum; pabbi sagði þá einfaldlega: „Kiddi er búinn að gefa þér þá.“ Seinni áratugina hef ég sjaldnar hitt Sverri, hann kom í land og þau áttu góð ár saman hann og Anna frænka sem lést þó fyrir aldur fram en alltaf héldust tengsl við Sverri sem var heilsuhraustur langt fram eftir aldri og reyndist pabba hjálparhella. Fyrir nokkrum ár- um hitti ég Sverri á ferð um landið, hann lét þá vel af sér og hefði kynnst góðri konu. Guð blessi minningu sóma- mannsins Sverris Valdemarsson- ar, ég votta ástvinum öllum og afkomendum dýpstu samúð. Þau eiga góðs manns að minnast. Kristinn Hugason. Sverrir Valdemarsson ✝ Sigurlína Mar- grét Kristjáns- dóttir fæddist á Ak- ureyri 15. maí 1969. Hún lést 4. janúar 2022 á æskuheimili sínu Langholti 18 á Akureyri eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Foreldrar Sig- urlínu eru Kristján Valdimar Hann- esson frá Bárufelli í Gler- árþorpi, f. 12. maí 1935, d. 3. jan- úar 2022, og Geirlaug Sigurjónsdóttir frá Ási í Gler- árþorpi, f. 8. september 1938. Systkini Sigurlínu eru María Helga, f. 29. mars 1963, Hannes Sigmar Páll, f. 22. apríl 1992, sambýliskona hans er Nadía Rut Reynisdóttir, f. 11. ágúst 1990 og eiga þau saman dótturina Heið- rós Hörpu, f. 16. nóvember 2019. 2) Sylvía Ösp, f. 12. ágúst 1998. 3) Júlíus Geir, f. 7. janúar 2005. Sigurlína gekk í Glerárskóla á Akureyri og lék hand- og fót- bolta með íþróttafélaginu Þór. Hún vann fyrstu ár starfsævi sinnar aðallega við fiskvinnslu og fór m.a. á vertíð á Höfn þar sem hún kynntist Jóni Sigmari árið 1989. Eftir að Sigurlína flutti á Borgarfjörð eystri starf- aði hún við verslunarstörf, fyrst hjá Álfasteini en síðar um langt skeið sem verslunarstjóri hjá KHB og síðar Samkaup. Ásamt eiginmanni sínum starfaði Sig- urlína jafnframt við almenn sveitastörf á sauðfjárbúi þeirra á Desjarmýri. Útför Sigurlínu verður gerð frá Bakkagerðiskirkju í dag, 14. janúar 2022, klukkan 14. Indriði, f. 17. sept- ember 1964, Sig- urbjörn, f. 13. mars 1967, og Kristján, f. 12. febrúar 1979. Eftirlifandi eig- inmaður Sigurlínu er Jón Sigmar Sig- marsson, bóndi og sjómaður á Desjar- mýri, Borgarfirði eystri, f. 1. apríl 1971. Foreldrar Jóns eru Sigmar Jóhann Ingv- arsson frá Desjarmýri, f. 19. júlí 1927, d. 1. apríl 2015 og Sesselja H. Jónsdóttir, f. 4. nóvember 1936 frá Gunnhildargerði í Hró- arstungu. Börn Sigurlínu og Jóns eru: 1) Kveðja til dóttur sem lést langt fyrir aldur fram þann 4. janúar umkringd sínum nánustu, mér er næstum orða vant en ég veit að hún hefur fengið faðmlag frá pabba sínum sem kvaddi daginn áður. Og nú eru þau laus við þá daglegu verki sem hrjáðu þau. Þessi yndislega dóttir mín er sú eina sem bjó í fjarlægð en það leið ekki sá dagur sem hún hringdi ekki til að vita hvernig við hefðum það og aðrir í kring. Ég vil þakka fyrir þá umönnun sem Lína mín fékk frá englunum í heimahlynn- ingu meðan hún dvaldi heima hjá mér. Mikill er missir Jóns Sig- mars tengdasonar, barna þeirra og sonardóttur. Guð styðji þau og styrki. Mamma. Elsku Lína. Það er mín mesta lukka í lífinu að hafa slysast til að flytja á Egils- staði og kynnst Sigmari þínum ár- ið 2007, meðal annars af því að það færði mér ykkur Jón Sigmar og betri tengdaforeldra er ekki hægt að velja sér. Ég er ekki viss um að margir foreldrar hafi mikla trú á sambandi 16 ára sonar síns við stelpu úr Reykjavík eftir einn mánuð saman í Menntaskóla á Egilsstöðum en þú gerðir allt fyrir strákinn þinn og reddaðir mér vinnu hjá þér í Kaupfélaginu á Borgarfirði sumarið eftir að við kynntumst svo við gætum verið saman. Ég og þú áttum margar góðar stundir saman í vinnunni milli þess að vera að fylla fram og tæma úr póstbílnum og það skipti engu máli hvað ég var búin að fara oft í gegnum lagerinn og fylla fram, þú fannst alltaf eitthvað sem hægt var að koma í hillurnar frammi. Þegar þú fórst í fyrri krabba- meinsmeðferðina þá varstu oft hjá okkur Sigmari í Hafnarfirðinum og ég man hvað við gátum talað tímunum saman, oft langt fram á kvöld um allt og ekkert. Ég man hvað mér fannst gott að tala við þig af því að þú sagðir alltaf þína einlægu skoðun, skófst ekkert af hlutunum en dæmdir aldrei. Þegar ég varð svo móðir sjálf varst þú með þeim fyrstu til að mæta og kíkja á litlu ömmustelp- una þína og þín aðstoð á þessum tíma var ómetanleg, þá sérstak- lega þegar þú sást að ég þurfti að komast að heiman en var ekki tilbúin að fara frá barninu því ég hélt hún myndi gráta allan tím- ann, þá sagðir þú: „Hún grenjar þá bara á mig“ og þér fannst það sko ekkert stórmál. Fyrir þér var aldrei neitt vesen þegar kom að Heiðrós, þú naust þess að vera með okkur sama hvað gekk á og í vor þegar Heiðrós veiktist þá stökkst þú í næstu vél til að að- stoða okkur af því að þú varst ein- stök hjartahlý kona og gerðir allt fyrir fólkið þitt. Það sem mér finnst sárast við að þurfa að kveðja þig er að ég veit hverju dóttir mín er að missa af og sá sársauki nístir inn að beini. Kvöldið áður en þú fórst settist ég hjá þér í smástund og ég hvíslaði að þér að ég myndi passa upp á Sigmar og Heiðrós fyrir þig og ég mun standa við það loforð fram á mína hinstu stund. Ég mun ala Heiðrós upp í minningu þinni og ég mun gera mitt allra besta að veita henni þá hlýju og umhyggju sem hún hefði fengið hjá þér. Ég vona að þú sért hamingju- söm með pabba þínum í sumar- landinu, laus undan þjáningum krabbameinsins. Ég elska þig og mun sakna þín þangað til við hitt- umst aftur. Þín tengdadóttir, Nadía. Sigurlína Margrét Kristjánsdóttir ✝ Guðrún Björns- dóttir fæddist í Reykjavík 29. júlí 1941. Hún lést á heimili sínu á Reyni- mel 22. desember 2021. Foreldrar Guð- rúnar voru Sigríður Hallgrímsdóttir hús- móðir, frá Málmey í Skagafirði, f. 1903, d. 1989, og Björn Rögnvaldsson byggingameist- ari, frá Gröf á Höfðaströnd í Skagafirði, f. 1896, d. 1962. Björn Þór, f. 30. júlí 1973. Eig- inkona hans er Guðrún Elsa Bragadóttir. Barnabarn Guð- rúnar er Magnús Kolbjörn, f. 23. október 2009, sonur Björns Þórs og fyrrverandi eiginkonu hans, Heiðu Jóhannsdóttur. Guðrún ólst upp í Norður- mýri í Reykjavík. Að loknu gagnfræðaskólanámi dvaldi hún sumarlangt í Cambridge við enskunám. Sem ung kona var Guðrún bankaritari í Iðn- aðarbankanum. Eftir fæðingu einkasonarins gerðist hún hús- móðir, en þegar hann var vax- inn úr grasi vann Guðrún fram á eftirlaunaaldur við skrifstofu- störf á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Útförin fer fram frá Mosfells- kirkju í dag, 14. janúar 2022, klukkan 11. Hálfsystkini Guðrúnar voru Margrét Kristín Björnsdóttir, f. 1924, d. 2015; Steingrímur Bjarni Björnsson, f. 1928, d. 2015; Rögnvald- ur Björnsson, f. 1928, d. 2009; Sig- urður Birgir Björnsson, f. 1934, d. 1997. Sonur Guðrúnar og fyrrver- andi eiginmanns hennar, Vil- hjálms Guðmundssonar, er Það er mér ljúft að minnast hennar Gunnu. Hún var tengda- móðir dóttur minnar Heiðu og var mjög kært með þeim alla tíð, þó svo að þær væru ekki alltaf sam- mála, enda hafði Gunna sterkar skoðanir á mönnum og málefnum – og Heiða líka! Ég fann skilaboð í símanum mínum eftir andlát Gunnu þar sem hún óskar mér til hamingju með „12 ára gullmolann okkar“, Magn- ús Kolbjörn, en hann átti tólf ára afmæli 23. október, örfáum dögum eftir að Heiða mamma hans kvaddi þennan heim 18. október 2021, það var sárara en tárum taki. Ég mun sakna Gunnu og sím- tala okkar sl. 20 ár, þar sem um- ræðuefnið var oftar en ekki líf og störf okkar sameiginlegu fjöl- skyldu. Það er ótrúlegt að hún skyldi kveðja svona skyndilega, því enda þótt skrokkurinn væri orðinn lélegur þá var kollurinn 100%. Góða ferð á ókunnar slóðir, Gunna mín. Elsku Bjössi og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur. Hanna Gunnarsdóttir. Minning um barnapíu mína og síðar fylgdarvin inn í lífið og til- veruna. Það er margs að minnast, þú varst mér alltaf svo góð, kenndir mér margt í gegnum æsku mína og fram eftir aldri leit- aði ég mikið til þín elsku Gunna mín. Ég man enn eftir mínum fyrsta og eina Álfadansi á þrett- ándabrennu þegar þú fórst með okkur Axel og ég aðeins fjögurra ára og þú nýkomin með bílpróf og sóttir okkur til Hafnarfjarðar á flotta bílnum hans pabba þíns. Þú varst nýkomin frá Englandi, fær- andi gjafir. Ég man enn hvað ég fékk, bollastell í tösku. Það eru mörg afmæli og jól sem þú gladdir mig mikið. Þú gafst mér fyrstu myndina af Bítl- unum og fyrstu Bítlaplötuna fékk ég einnig frá þér á jólunum en því fylgdi að ekki mætti spila hana á jólunum og fór ég örugglega eftir því. Margar bíóferðir fórst þú með mig, man ég vel þegar þú keyptir fyrsta Volkswagen-bílinn þinn og allar sumarbústaðaferðinar. Þetta var alltaf svo gaman, þú varst mér svo góð, mér fannst þú oft eins og systir enda var þér treyst fyrir okkur systkinum, passaðir heimilið og okkur svo pabbi og mamma gátu farið í burtu, mikill fjölskylduvinur okk- ar allra, mamma kunni heldur betur að velja sér barnapíu! Óx ég úr grasi en alltaf í sam- bandi við Gunnu mína þó að ég hafi flutt úr landi. En það var ann- að dásamlegt sem sameinaði okk- ur, við eignuðumst báðar flotta stráka og tæpum 50 árum seinna eru þeir vinir. Mikið er ég búin að sakna þín elsku Gunna mín, það er erfitt að sætta sig við sumt sem maður fær ekki breytt, það er bara stundum svo erfitt að greina þar á milli og lífið er ekki alltaf sanngjarnt en mikið er ég þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu síðan 1956 en sárastur er síðasti parturinn. Votta ég Bjössa mínum, Magn- úsi Kolbirni og Guðrúnu Elsu mína dýpstu samúð. Matthildur Skúladóttir (Matta þín). Í dag minnumst við vinkonu okkar, Guðrúnar Björnsdóttur ætíð kölluð Gunna, sem við höfum þekkt frá árinu 1959, þegar við unnum saman hjá Pósthúsinu í Reykjavík. Þá barst í tal að hún hefði verið í Cambridge á Eng- landi og var á leið þangað aftur. Úr varð að ég, Sigtryggur, varð samferða henni með Gullfossi til Leith og þaðan með lestum til Cambridge. Á þessum tíma fór margt ungt fólk í enskunám. Jafnframt námi hittust Íslendingarnir á alþjóða- klúbbi fyrir erlenda námsmenn, þar sem hægt var að spjalla, tefla, læra og eiga saman notanlegar stundir. Einnig fóru Íslending- arnir oft á dansstaðinn Dorothy, ásamt öðrum námsmönnum og heimamönnum. Þeir stunduðu líka kaffistaðinn Kenya Coffee House. Þessi hópur hefur síðan haldið saman og átt góðar stundir í sælureit Gunnu í sumarbústaðn- um hennar í Helgadal í Mosfells- sveit og á heimilum okkar. Segja má að Gunna hafi alltaf verið með myndavél á lofti og því sannkall- aður hirðljósmyndari hópsins. Vilhjálmur var í verkfræðinámi í Karlsruhe og Gunna að vinna þar í banka, þá heimsóttum við þau hjónin. Dvöldum þar í góðu yfirlæti í nokkra daga og nutum leiðsagnar þeirra um borgina og nágrenni. Guðrún og Vilhjálmur byggðu hús í Seljahverfinu eins og við. Þau fluttust þangað með son sinn, Björn, sem var þeirra gleðigjafi í lífinu. Síðar varð sonur Björns, Kolbjörn Magnús, mesti ham- ingjuvaldur í lífi Gunnu og einnig þótti henni afar vænt um Heiðu móður hans, sem nú er nýlátin. Hin síðari ár hittumst við sjaldnar, en litum inn til Gunnu við og við. Alltaf sýndi hún okkur vin- arhug, en mest töluðum við saman í síma. Guðrún átti úrval bóka og gat spjallað um bækur af ánægju og gaf manni hlutdeild í þeim. Síðasta símtalið var rétt fyrir andlátið. Þá var hún hin kátasta, sýndi okkur alúð og er gott að minnast hennar þannig. Við vottum Birni og fjölskyldu samúð. Sigtryggur Rósmar og Þorbjörg. Guðrún Björnsdóttir ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall okkar ástkæru GUÐNÝJAR ÞÓRARINSDÓTTUR og ÓSKARS SIGURFINNSSONAR frá Meðalheimi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á HSN Blönduósi fyrir einstaka umönnun og velvilja. Þóranna Björg Óskarsdóttir Þorsteinn Björnsson Hólmfríður Sigrún Óskarsd. Vignir Björnsson Þorleifur Helgi Óskarsson Þórey Guðmundsdóttir Júlíus Árni Óskarsson Dýrfinna Vídalín Kristjánsd. barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.