Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022
110
stærsta hlutverkið sem ég hef fengist
við. Mér þykir rosa vænt um þessa
sögu og að hafa unnið með Kristínu.
Þetta var rosalega dýrmæt reynsla.“
Á síðasta ári kom einnig út sjón-
varpsserían Ófærð 3 þar sem Snæ-
fríður lék persónuna Hrönn. Helstu
áhugamál Snæfríðar eru leiklist,
söngur, dans, kvikmyndir og tónlist.
„Áhugamál mín liggja í því sem ég
vinn við og er heppin með það.“
Snæfríður ætlar ekki að láta
Covid-faraldurinn trufla afmælið, en
hún hefur alltaf haldið upp á það.
„Það var tíu manna samkomubann á
síðasta ári þegar ég átti afmæli svo
ég var með tíu manna veislu fyrir vin-
konur mínar. En núna ætla ég að
halda afmælisveislu í tveimur hlut-
um, fyrst 20 manna veislu fyrir fjöl-
skylduna og svo aðra veislu fyrir 20
vini mína. Mér hefði fundist glatað ef
ég hefði ekki haldið veislu á 30 ára
afmælinu.“
Fjölskylda
Maki Snæfríðar er Högni Egilsson,
f. 3.10. 1985, tónlistarmaður, söngvari
og tónskáld. Foreldrar Högna eru
Erna Guðrún Árnadóttir, f. 8.1. 1948,
íslenskufræðingur og var sérfræð-
ingur í íslenskum fræðum við mennta-
málaráðuneytið, býr í Reykjavík, og
Egill Benedikt Hreinsson, f. 30.6.
1947, verkfræðiprófessor og píanó-
leikari, býr í Reyjavík. Þau voru gift.
Systkini Snæfríðar eru Áslákur, f.
22.11. 1990, óperusöngvari, býr í Ant-
werpen í Belgíu; Sigurður, f. 15.4.
1998, leiklistarnemi, býr í Vestur-
bænum í Reykjavík; Hringur, f. 5.9.
1999, kvikmyndanemi, býr í Dan-
mörku.
Foreldrar Snæfríðar eru hjónin
Ingvar E. Sigurðsson, f. 22.11. 1963,
leikari, og Edda Arnljótsdóttir, f.
22.11. 1964, leikkona. Þau búa í
Reykjavík.
Snæfríður
Ingvarsdóttir
Soffía Hólmfríður Sigfinnsdóttir
húsfreyja í Stykkishólmi og Reykjavík
Sigurður Skúlason
skipstjóri og verslunarmaður
í Stykkishólmi, síðar
kaupmaður í Reykjavík
Lovísa Sigurðardóttir
kennari í Reykjavík
Arnljótur Björnsson
lögfræðingur, prófessor og
hæstaréttardómari í Reykjavík
Edda Arnljótsdóttir
leikkona í Reykjavík
Þórdís Ófeigsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Björn Snæbjörnsson
stórkaupmaður í Reykjavík
Þorleifur Ásmundsson
útvegsbóndi í Naustahvammi
í Neskaupstað
María Jóna Aradóttir
húsfreyja í Naustahvammi
Guðbjörg Þorleifsdóttir
húsmóðir í Reykjavík og Borgarnesi
og verslunareigandi í Rvík
Sigurður Ólafsson
loftskeytamaður, símvirkjameistari og verslunareigandi í Reykjavík, síðar
póst- og símstöðvarstjóri í Borgarnesi, kjörfaðir Sigurðar var Ólafur Jónsson
Halldóra Steinunn Bjarnadóttir
framreiðslukona í Reykjavík
Benedikt Hjartarson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Ætt Snæfríðar Ingvarsdóttur
Ingvar E. Sigurðsson
leikari í Reykjavík
„HEFURÐU UPPLIFAÐ ÞAÐ AÐ VILJA
BREMSA ÞIG AF EN ÁN ÁRANGURS?“
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ VERA EKKI AÐ HRINGJA
Í MIG Í VINNUNA EFTIR KLUKKAN NÍU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila kodda
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BÍDDU, HVERSU
GAMALL VERÐURÐU? FARÐU
43
Á ÉG AÐ KANNA
LÍFSMÖRKIN?
HVERNIG HEFUR
ÞESSI TVEGGJA
VIKNA EINANGRUN
GENGIÐ?
ALLT FRAM TIL
ÞESSA HÉLT ÉG AÐ
ÉG MYNDI DEYJA ÚR
TILBREYTINGARLEYSI
OG LEIÐINDUM!
EN ÞÁ FÓR GULLI ALTT Í EINU AÐ SYNDA
ANDSÆLIS Í BÚRINU SÍNU!
EN FRÁBÆRT.
BREMSU-
VIÐGERÐIR
Auðvitað er ort um veiruna. Hall-
mundur Kristinsson á Boðn-
armiði:
Sóttvarnarlög má lina
svo leggist veiran á hina.
Lýð allan þá
langar að sjá
langtímaáætlunina.
Jón Gissurarson skrifar: „Hér er
nú allhvöss suðvestanátt með hríð-
aréljum (vindhraði 16 m sek.) Hita-
stigið er ein gráða. Stundum verður
maður latur við slíkar aðstæður og
vill þá helst halda sig inni við. Lík-
lega er þó best að fara að hafa sig
út til að sinna skepnunum, enda
bara hressandi að fara út í hríðina.“
Vinnusaman vart mig tel
verkum þó að sinni.
Komin eru koldimm él
og karlinn situr inni.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
skrifar boðráðin:
Elska guð.
Guðstrúin er góð, án vafa
gefur samviskunni hlíf.
Guð er fínt að eiga að afa
ef hann býður framhaldslíf.
Að stela.
Hvað girnist þú, er gott að fela
glopraðu ekki slúðri á blað
Enginn maður á að stela
sem ekki kann að fela það.
Síðan skrifar Hólmfríður „Meiri
boðorð“:
Þú skalt ekki drýgja hór.
Að þú girnist annars maka
er allt í lagi, en þó ég tel:
Áhættu skal enga taka
oft má leyna slíku vel.
Þú skalt ekki bera ljúgvitni.
Framhjá sönnu er fínt að smjúga
felist gróði þessu í.
En ósköp fánýtt er að ljúga
ef enginn maður trúir því.
Jóni Jens Kristjánssyni verður
það að yrkisefni að hross og geitur
fá úrelt jólatré til afnota.
Dreifir huga daga langa
dágóð næring fylgir með
þegar hross og geitur ganga
glöð í kringum jólatréð.
Hjálmar Jónsson bætir við:
Sjónvarpsfréttum fagna má,
fóðrun nýstárlega sé.
Rósa gefur garðann á
græn og falleg jólatré.
Gömul vísa að lokum:
Rauður bera manninn má,
mun hann vera þungur,
eins og þytur er að sjá
yfir hraun og klungur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrst er það veiran,
síðan boðorðin