Morgunblaðið - 14.01.2022, Side 27

Morgunblaðið - 14.01.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 _ Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elí- asson dæmdu í gær sinn fyrsta leik á Evrópumóti karla í handbolta. Þeir voru í Kosice í Slóvakíu og dæmdu þar viðureign Rússa og Litháa, þar sem Rússar höfðu betur, 29:27. Ser- gei Kosorotov skoraði níu mörk fyrir Rússland og Aidenas Malasinskas fimm fyrir Litháen. _ Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræð- ingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Essen og Kiel í Þýskalandi, er á sínu sjötta Evrópu- móti karla í röð. Hans hlutverk er að styðja við bak dómaranna og byggja upp andlegu hliðina hjá þeim á mótinu. _ Alfreð Gíslason og hans menn í þýska landsliðinu leika sinn fyrsta leik á EM í handbolta í dag. Þeir eru í Bratislava í Slóvakíu og mæta þar Hvíta-Rússlandi í fyrstu umferðinni en Austurríki og Pólland eru með þeim í D-riðli mótsins. _ Valsmenn tilkynntu í gær að hand- boltamaðurinn Róbert Aron Hostert hefði framlengt samning sinn við fé- lagið til ársins 2024. Róbert, sem er þrítugur, hefur leikið með Val frá 2018 en lék áður með ÍBV, Mors-Thy í Danmörku og Fram. _ Fram og Afturelding áttu að mæt- ast í úrvalsdeild kvenna í handbolta í kvöld. Í gær var ákveðið að fresta leiknum eftir að smit kom upp í leik- mannahópi Aftureldingar og leik- menn fóru í sóttkví. _ Knattspyrnumaðurinn Máni Aust- mann Hilmarsson er kominn til liðs við FH frá Leikni í Reykjavík þar sem hann hefur spilað síðustu tvö ár. Máni er 23 ára kantmaður sem hefur einnig leikið með HK, ÍR og Stjörn- unni. _ Enska knattspyrnufélagið Aston Villa gekk í gær frá kaupum á franska landsliðsbakverðinum Lucas Digne frá Everton fyrir 25 milljónir punda. Digne sagði eftir undirritunina að hann hefði valið Villa fram yfir önnur lið í deildinni sem vildu fá hann vegna Stevens Gerrards knatt- spyrnustjóra Villa sem hefði haft mikil áhrif á sig þegar þeir ræddu málin. Newcastle keypti nýsjálenska framherjann Chris Wood af Burnley fyrir sömu upphæð. Eitt ogannað Aldís Kara Bergsdóttir keppti í gær fyrst Íslendinga á Evrópumeist- aramóti fullorðinna í listhlaupi á skautum en Evrópumótið 2022 stendur nú yfir í Tondiraba- skautahöllinni í Tallinn í Eistlandi. Aldís Kara fékk 42,23 stig í stutta prógramminu sem var á dagskrá í gær og var nálægt sínu besta þrátt fyrir eitt fall og hafnaði í 34. sæti af 36 keppendum en 24 bestu halda áfram keppni. Aldís Kara hefur því lokið keppni í Tallinn en mótið heldur þar áfram næstu daga. Aldís keppti fyrst allra á EM Ljósmynd/Skautasamband Íslands Frumherji Aldís Kara Bergsdóttir keppti á EM í Tallinn í gær. Knattspyrnumaðurinn Finnur Tómas Pálmason hefur skrifað undir fjögurra ára samning við KR- inga en hann fékk sig á dögunum lausan undan samningi við Norr- köping í Svíþjóð. Finnur, sem er tví- tugur miðvörður, fór frá KR til Norrköping í árslok 2020 en kom aftur sem lánsmaður síðasta sumar og spilaði aldrei með aðalliði sænska félagsins. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Úganda í fyrradag og hefur spilað níu leiki með 21-árs landsliðinu, m.a. í loka- keppni EM á síðasta ári. Finnur samdi til fjögurra ára Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Heima Finnur Tómas Pálmason er aftur orðinn KR-ingur. Í BÚDAPEST Kristján Jónsson kris@mbl.is Karlalandslið Portúgals í hand- knattleik tók fram úr karlalandsliði Íslands á síðustu árum. Portúgal hef- ur náð lengra á síðustu stórmótum en getumunurinn á liðunum hefur þó verið lítill. Á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu, sem hófst í gærkvöldi, mun Ísland vonandi taka fram úr Portúgal í íþróttinni á ný. Liðin mætast í Búda- pest í B-riðli keppninnar í kvöld og er þetta annað árið í röð sem Portúgal er fyrsti andstæðingur Íslands á stór- móti. Portúgal komst ekki í lokakeppni stórmótanna frá árinu 2007 til 2019. Liðið var á EM 2006 en ekki aftur fyrr en á EM 2020. Liðið er nú á fjórða stórmótinu í röð og hefur nán- ast stimplað sig inn á meðal átta bestu liðanna. Portúgal var til dæmis á Ólympíuleikunum í fyrra og hafnaði í 9. sæti. Engar Evrópuþjóðir ná inn á Ólympíuleikana í handknattleik nema þær séu með hörkulið. Það þekkjum við Íslendingar. Portúgal hafnaði í 10. sæti á HM í fyrra og í 6. sæti á EM í Svíþjóð fyrir tveimur árum. Ísland hafnaði þá í 11. sæti en vann hins vegar Portúgal 28:25. Portúgal vann hins vegar þegar þjóðirnar mættust í fyrsta leik á HM í fyrra 25:23. Í janúar í fyrra mættust liðin einnig í undankeppni EM og unnu sitt hvorn leikinn. Portúgal vann í Portúgal og Ísland vann á Ásvöllum. Margir í Meistaradeildinni Ein af ástæðum þess að Portúgal náði að búa til öflugt landslið eftir mögur ár er sú að fram kom sterk kynslóð í yngri landsliðunum. Þeir leikmenn skiluðu sér upp í A- landsliðið og fengu samninga hjá sterkum félagsliðum. Hljómar kunn- uglega, ekki satt? Önnur ástæða fyrir velgengni portúgalska landsliðsins er sú að leik- menn liðsins leika margir í Meist- aradeildinni. Porto er í Meistaradeild- inni og hafa margir landsliðsmenn leikið með liðinu. Í Meistaradeildinni eru ekki nema sextán lið og lið Porto er því sterkt. Portúgölsku hand- boltamennirnir eru því vanir að spila á móti bestu leikmönnum Evrópu og samæfing í félagsliði skilar sér hjá landsliðinu. Einnig eru leikmenn í hópnum hjá Portúgal sem leika með öflugum liðum eins og Montpellier, Pick Szeged og Nantes. Öfluga leikmenn vantar Skakkaföll eru hins vegar í portú- galska liðinu. Línumaðurinn Luis Frade er ekki með. Hann leikur með Barcelona og ljóst má vera að það munar um mann sem leikur með Barcelona. André Gomes er öflugur leikmaður sem er hjá Íslendingaliðinu Melsungen og hann er ekki heldur með. Hann hefur oft leikið vel gegn Íslandi. Diogo Silva, leikmaður Porto, Alexis Borges og Belone Moreira, leikmenn Benfica, Pedro Portela frá Nantes og Joe Ferraz frá Suhr Aarau eru einnig allir fjarverandi í liði Portúgals. Markvörðurinn Alfredo Quintana lék megnið af leikjunum gegn Íslandi í fyrra og árið þar áður. Hann er far- inn og kemur ekki aftur. Quintana lést í fyrra eftir að hafa fengið hjarta- stopp, aðeins 32 ára að aldri. Eftir andlátið hefur Portúgal leikið á einu stórmóti, þ.e. Ólympíuleikunum í Tókýó. Gott tækifæri Manni virðist því sem Íslendingar eigi nú gott tækifæri til að vinna Portúgal og byrja mótið vel. Ein- hver áhrif hlýtur það að hafa á portúgalska liðið þegar svo miklar breytingar verða á leikmannahópn- um. Ekki síst í fyrsta leik þegar menn eru að átta sig. Það hefur hins vegar ekki hentað íslenska liðinu neitt sérstaklega vel að spila á móti því portúgalska. Leikstíllinn hefur stundum verið áþekkur þeim spænska. Portúgal hefur verið með marga líkamlega sterka leikmenn og það tekur á að glíma við þá. Guðmundur Þ. Guð- mundsson landsliðsþjálfari er búinn að skoða vel leikina þrjá gegn Portúgal í fyrra. Hann mun líklega reyna einhverjar aðrar leiðir á morgun til að hafa betur gegn Portúgal. Vörnin þarf að halda Það eru gömul sannindi og ný að spila þarf öfluga vörn til að hægt sé að ná árangri. Það hjálpar mark- vörðunum þegar andstæðingurinn er þvingaður í skot úr erfiðum fær- um eða í skot þegar dómararnir eru farnir að gefa merki um leiktöf. Vörnin þarf því að vera í lagi hjá ís- lenska liðinu ef það ætlar að komast aftur í hóp tíu bestu liðanna. Persónulega fannst mér vörnin ekki vera nægilega góð á EM í Sví- þjóð árið 2020. En það var reyndar misjafnt eftir andstæðingum. Mér fannst hins vegar vörnin vera tölu- vert öflugri á HM í fyrra heldur en á EM fyrir tveimur árum. Þótt Ísland hafi hafnað í 20. sæti þá voru menn á réttri leið í vörninni. Arnar Freyr Arnarsson, Ýmir Örn Gíslason, El- liði Snær Viðarsson og Elvar Örn Jónsson hafa nú tekist á við verk- efnið oftar en einu sinni. Þeir ná vafalítið betri tökum á varnar- leiknum með hverju mótinu. Daníel Þór Ingason kom inn í hópinn sem varamaður fyrir Svein Jóhannsson sem meiddist. Daníel leikur í efstu deild í Þýskalandi og hefur fengið heilmikið hlutverk í vörn Balingen. Sýnir þetta hve mikil breiddin er orðin í íslenska landslið- inu þegar við eigum leikmenn í Bundesligunni til vara. Leikstíll Portúgals hefur ekki hentað Íslandi vel - Portúgal komst hratt í hóp bestu liðanna - Nú er tækifæri til að vinna AFP Nautsterkur Línumaðurinn Victor Iturizza sloppinn úr gæslunni í leik þjóðanna á HM í fyrra. Ýmir Örn Gíslason og Arnar Freyr Arnarsson glíma væntanlega við hann á morgun en Alexanders Peterssonar nýtur ekki við. Gustavo Capdeville, Benfica, markvörður, 24 landsleikir Manuel Gaspar, Sporting, markvörður, 9 landsleikir Diogo Branquinho, Porto, hornamaður, 66 landsleikir Leonel Fernandes, Porto, hornamaður, 13 landsleikir Alexandre Cavalcanti, Nantes (Frakklandi), skytta, 53 landsleikir Fábio Magalhaes, Porto, skytta, 160 landsleikir Gilberto Duarte, Montpellier (Frakklandi), skytta, 107 landsleikir Salvador Salvador, Sporting, skytta. 4 landsleikir Daymaro Salina, Porto, línumaður, 65 landsleikir Tiago Rocha, Nancy (Frakklandi), línumaður, 140 landsleikir Victor Iturriza, Porto, línumaður, 22 landsleikir Martim Costa, Sporting, miðjumaður, nýliði Miguel Martins, Szeged (Ungverjalandi), miðjumaður, 67 landsleikir Rui Silva, Porto, miðjumaður, 104 landsleikir Angel Hernandez, Kuwait SC (Kúveit), skytta, 3 landsleikir Daniel Vieira, Avanca, skytta, nýliði Antonio Areia, Porto, hornamaður, 66 landsleikir Miguel Alves, Porto, hornamaður, 3 landsleikir Hópur Portúgals á EM 2022 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: TM-hellirinn: ÍR – Vestri .................... 18.15 Origo-höll: Valur – Tindastóll.............. 20.15 1. deild karla: Hveragerði: Hamar – ÍA ..................... 19.15 KNATTSPYRNA Faxaflóamót kvenna: Samsung-völlur: Stjarnan – Þór/KA .. 18.30 Fótbolti.net mót karla: Domusnovav.: Leiknir R. – Breiðablik.... 18 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.