Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Einleikur danska leikskáldsins
Peters Asmussens, Það sem er, í
flutningi leikkonunnar Maríu Ell-
ingsen, verður frumsýndur á sunnu-
daginn, 16. janúar, í Tjarnarbíói í
þýðingu Auðar Jónsdóttur og leik-
stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Hefur
verkið hlotið fjölda verðlauna og seg-
ir frá elskendum sem Berlínarmúr-
inn skilur að árið 1987. Eiga elskend-
urnir í leynilegu og lífshættulegu
ástarsambandi, eins og því er lýst í
tilkynningu frá leikhúsinu, og þrá
þeir, sakna, örvænta og bíða. „En
hver eru þau í raun og veru?
Og hvað gerist þegar múrinn á
milli þeirra fellur?“ er spurt.
María átti frumkvæðið að upp-
færslunni og fékk góðan hóp til liðs
við sig en auk fyrrnefndra koma að
sýningunni Melkorka Gunborg
Briansdóttir sem aðstoðarleikstjóri,
Anna Kolfinna Kuran sér um sviðs-
hreyfingar, Filippía Elísdóttir sér
um búninga, Snorri Freyr Hilmars-
son um leikmynd, Björn Bergsteinn
um lýsingu og Ólafur Björn Ólafsson
um tónlist. Þá eru gervi í höndum
Erlu Sveinbjarnardóttur og tækni-
maður er Stefán Ingvar Vigfússon.
Einn sá allra fremsti
María segist hafa kynnst verkum
Asmussens fyrst þegar hún leiklas
verk eftir hann í Norrænu leik-
skáldalestinni. „Það var verk sem
heitir Enginn hittir einhvern og ég
var að leiklesa nokkur verk en tengdi
alveg sérstaklega við þetta verk,“
segir María. Leikstjóri að frum-
uppfærslunni hafi verið í salnum,
Simon Boberger, og tekið eftir því
hversu vel María tengdi við verkið.
Hann stakk upp á því að þau settu
verkið upp á Íslandi sem þau gerðu
árið 2016 og sýndu í Norræna húsinu
en Björn Ingi Hilmarsson lék með
Maríu í því.
María segir Asmussen hafa verið
einn allra fremsta höfund Danmerk-
ur og verðlaunaskáld mikið. Hann
hafi m.a. skrifað handritið að kvik-
myndinni Breaking the Waves með
Lars von Trier. Asmussen lést árið
2016, skömmu eftir að sýningar hóf-
ust á Enginn hittir einhvern í Nor-
ræna húsinu og skildi eftir sig mik-
inn fjölda fjölbreytilegra verka, t.d.
leikrit, smásögur og kvikmynda-
handrit.
Bréfum smyglað milli landa
Verkið sem frumsýnt verður í
Tjarnarbíói á sunnudag heitir á
frummálinu Det Der eR og var upp-
runalega bók eftir Asmussen, að
sögn Maríu. „Í formálanum að bók-
inni býr höfundurinn til lygasögu um
að hann hafi fundið bunka af bréfum
í skúffu hjá frænda sínum þegar
frændinn dó, í möppu sem á stóð
DDR, s.s. Deutsche Demokratische
Republik, en á milli stafanna hafi
verið búið að krassa „det der er“,
búa það til úr stöfunum. Þannig að
þetta er orðaleikur og þegar maður
sér titilinn á dönsku er DDR stórt og
inn á milli et, er og e,“ útskýrir
María.
Bréfin umræddu voru skrifuð af
austurþýskri konu sem er gift,
tveggja barna móðir á tímum kalda
stríðsins, þegar Berlínarmúrinn
stendur enn, á árunum 1987-9. Hún
kynnist dönskum manni þegar hún
fer sem túlkur til Danmerkur á veg-
um Þýska alþýðulýðveldisins og
verður ástfangin af honum. Þau eiga
í ástarsambandi sem heldur svo
áfram í formi bréfa sem smyglað er
milli landanna, að sögn Maríu.
María segir konuna fara yfir bréf
sín til ástmannsins tuttugu árum síð-
ar og draga upp mynd af sínum
hversdegi, sinni skrítnu tilveru í
Austur-Þýskalandi. Að vera inni-
múraður Evrópubúi, sem hljóti að
vera mjög sérstakt. „Við þekkjum
þetta kannski frá Palestínu, að fólk
sé innimúrað einhvers staðar,“ bend-
ir María á.
Skrítinn heimur
En hvað hefur reynt hvað mest á
leikkonuna í þessum einleik?
„Eitt er að setja sig inn í þennan
hugarheim, þennan veruleika og
kringumstæður, það er þó nokkuð
fyrir frjálsan Íslendinga að gera það
en það hefur kannski hjálpað að við
erum allt í einu í heimi sem er skrít-
inn og innimúraður, höft og alls kon-
ar sveiflur þar sem stjórnvöld þurfa
að taka ákvarðanir og stýra þegn-
unum í ákveðnar áttir,“ svarar
María. „Svo er Peter náttúrlega að
nota þetta líka til að draga upp mynd
af manneskjunni. Hvar eru þessir
múrar? Eru þeir inni í sjálfum þér?
Eins og einhver sagði: Kleppur er
víða,“ segir María kímin.
María segir Asmussen spyrja
spurninga á borð við hvað sé raun-
veruleiki og hvað sé hið raunveru-
lega líf. „Ertu að horfast í augu við
lífið þitt og ertu viðstaddur í lífi
þínu? Hún veltir því mikið fyrir sér
því þegar hún fer að skrifa finnst
henni hún allt í einu sjá líf sitt og
veltir fyrir sér af hverju hún hafi
ekki séð það áður en hún fór að
skrifa,“ segir María.
Heljarinnar mál
– Er ekki tvöfalt álag fyrir leikara
að vera í einleik? Nú er enginn á
sviðinu með þér og enginn stuðn-
ingur frá öðrum leikara.
„Ég hélt einmitt að þetta væri
bara frekar einfalt og létt, ein mann-
eskja að segja sögu, en þetta er helj-
arinnar mál því þú þarft að halda
uppi öllu ferðalaginu og öllu
flæðinu,“ svarar María. Hún þurfi að
halda uppi orkunni allan tímann.
– Er þetta fyrsti einleikurinn sem
þú leikur í?
„Já, ég hef aldrei gert þetta áður
og það var aðallega vegna þess að ég
var svo hrædd um að þetta yrði ein-
manalegt og leiðinlegt sem það er
síðan alls ekki því maður er að spila
tennis við leikstjórann og þýðand-
ann,“ svarar María og segir að þýð-
andanum, Auði, hafi tekist vel að
fanga hnitmiðaðan stíl höfundarins.
Ólafur Egill Egilsson leikstýrir og
segir María að hann hafi mjög góða
tilfinningu fyrir texta og sé auk þess
með stórt hjarta fyrir mennskunni.
„Mér finnst hann hafa sýnt það í
þeim sýningum sem hann er að gera
að hann getur umfaðmað manninn í
öllum sínum breyskleika og baráttu,
þrátt fyrir ungan aldur,“ segir María
um Ólaf.
María segir verkið tala inn í sam-
tímann með sínum höftum, múrum
og ógn við lýðræðið, til dæmis í
Bandaríkjunum. „Það minnir okkur
á að lýðræðið er brothætt, að það er
ekkert sjálfsagt,“ bendir María á.
Hún segir að lokum dýrmætt að geta
boðið upp á leikhús nú á tímum far-
aldurs. Þegar umfangsmiklu leik-
sýningarnar þurfi að bíða sé gott að
geta sótt þær sem litlar eru í sniðum,
líkt og Það sem er.
Frekari upplýsingar má finna á
vef Tjarnarbíós, tjarnarbio.is.
Mynd af manneskjunni
- María Ellingsen flytur einleik Peters Asmussens, Það sem er - Saga elskenda sem Berlínarmúr-
inn skildi að - Talar inn í samtímann með sínum höftum, múrum og ógn við lýðræðið, segir María
Ljósmynd/Cristopher Lund
Áskorun „Ég hélt einmitt að þetta væri bara frekar einfalt og létt, ein manneskja að segja sögu, en þetta er heljarinnar mál því þú þarft að halda uppi öllu
ferðalaginu og öllu flæðinu,“ segir María Ellingsen um áskorunina sem felst í því að leika í einleik. Hér sést hún æfa einleikinn Það sem er.
Hjördís Eyþórs-
dóttir opnaði í
gær sýningu
sína Silfurbúrið
í Gallery Porti
og er hún hluti
af Ljósmynda-
hátíð Íslands.
Silfurbúrið er í
raun eitt verk
og „óður til
þorpsins þar sem ekkert gerist en
allir hlutir hafa orðið til og tekst
á við upphafið sem endalokin
óhjákvæmilega hafa í för með
sér“, eins og því er lýst. Er það
sagt leiðangur um síðustu klukku-
stundir myrkursins, sólarupprás
þar sem rómantísk mynd þorpsins
brotni hægt niður í auðn, óveður
og einveru.
Silfurbúrið verður í Gallery
Porti til 20. janúar.
Óður til þorps þar
sem ekkert gerist
Úr Silfurbúrinu
Reykjavíkurborg og Miðstöð hönn-
unar og arkitektúrs stóðu fyrir sam-
keppni um ljóslistaverk á Vetrar-
hátíð 2022 og varð fyrir valinu
„Ofbirta“ eftir hönnuðinn og mynd-
listarkonuna Mörtu Sigríði Róberts-
dóttur. Verkinu verður varpað á
turn Hallgrímskirkju á hátíðinni
sem haldin verður 3.-6. febrúar.
Í verkum sínum leitast Marta við
að kanna og endurskapa rými með
hjálp stafrænnar tækni, og yfirstíga
þannig efnislegar takmarkanir raun-
veruleikans, segir í tilkynningu.
Um verðlaunaverkið skrifar
Marta meðal annars: „Í rúman mán-
uð yfir jól og áramót mótmæla
Íslendingar skammdeginu með
skreytingu húsa og umhverfis.
Ljósadýrðin gleður en það sem gleð-
ur jafnvel meira er frumleikinn sem
er falinn í skreytingargleðinni, og
hugleiðingar um persónugerðir ein-
staklinga með val á litum á jólaserí-
um og skrauti. Fyrir annars hlé-
dræga þjóð er þessi tími sköpunar
og metnaðar magnaður. Ljós í görð-
um verða að sínum eigin listaverkum
þegar þau blandast íslensku veðrátt-
unni, feykjast til, speglast í hvítum
snjó og leysast upp þegar augun eru
pírð til að verjast vindinum á leið til
vinnu dimma morgna.
Verkið „Ofbirta“ reynir eftir
bestu getu að fanga þessa árstíðar-
bundnu stemningu þegar hvers-
dagsleikinn verður að listaverki.“
Verkið er samansett úr fimm mis-
munandi myndbrotum sem öll eru í
kringum mínútu í senn og eru þau
búin til í þrívíddarforriti þar sem
ljósbrotum er stjórnað með tilvilj-
unarkenndum hreyfingum, svo að
útkoman, rétt eins og í raunveruleik-
anum, verði aldrei fullkomlega fyrir-
sjáanleg, eins og Marta Sigríður lýs-
ir því. Hún útskrifaðist sem
innanhússarkitekt frá Konunglega
listaháskólanum í Haag og hefur
unnið við sýningahönnun, módel-
smíði og gerð vídeóverka í Hollandi
og á Íslandi auk þess að stýra rann-
sóknarverkefni um breytta vinnu-
aðstöðu vegna heimsfaraldursins.
Litríkt Kynningarmynd með tilkynningu um sigurverkið, „Ofbirtu“.
Verk Mörtu Sigríðar varð fyrir valinu
- „Ofbirta“ mun prýða turn Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð í byrjun febrúar