Morgunblaðið - 14.01.2022, Page 32
TAK-
MARKAÐ
MAGN
FYRSTIR
KOMA,
FYRSTIR
FÁ
H
Ó
TE
LV
Ö
R
U
R
·D
ÝN
U
R
·S
K
IP
TI
D
ÝN
U
R
·R
Ú
M
·S
ÝN
IS
H
O
R
N
·S
Ó
FA
R
H
Ö
FU
Ð
G
A
FL
A
R
·S
M
Á
B
O
R
Ð
·H
Æ
G
IN
D
A
ST
Ó
LA
R
&
FL
EI
R
A
!
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Frönsk þýðing á Fjarvera
þín er myrkur, skáldsögu
Jóns Kalmans Stefáns-
sonar, hlaut í vikunni
þýðingarverðlaun France
Inter – Le Point sem best
þýdda skáldsagan árið
2022. Bókin kom út hér á
landi árið 2020 og kom
nýverið út í Frakklandi í
þýðingu Erics Bourys
með titlinum Ton ab-
sence n’est que tén-
ébres. Jón hefur verið
önnum kafinn við að
kynna bókina í bókabúð-
um í Frakklandi og var
gestur í sjónvarpsþættinum La Grand Librairie í síð-
ustu viku og einnig í útvarpsþættinum L’heure bleue.
Þá tók hann þátt í pallborðsumræðum í Maison de la
Poésie. Verðlaunin fyrrnefndu eru nú veitt í fyrsta sinn.
Fjarvera þín er myrkur verðlaunuð
sem besta þýdda skáldsagan
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 14. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Lærisveinar Erlings Richardssonar í hollenska landslið-
inu komu gríðarlega á óvart og unnu glæsilegan en
jafnframt verðskuldaðan 31:28-sigur á heimamönnum í
Ungverjalandi í B-riðli Íslands á EM karla í handbolta í
gærkvöldi. Ungverjaland komst aldrei yfir í leiknum en
náði þó að jafna í 28:28 þegar skammt var eftir. Þá
skoruðu Hollendingar þrjú síðustu mörkin og fögnuðu
fræknum sigri.
Þá byrjuðu Svíþjóð, Noregur og Danmörk öll á stór-
sigri og ríkjandi meistarar Spánar fögnuðu sigri. »26
Stórkostleg byrjun Erlings á EM
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Páll Ólafsson og Sigurður Valur
Sveinsson, fyrrverandi landsliðs-
menn í handbolta, sprungu út með
liði Þróttar 1979 til 1982 og héldu
út í atvinnumennsku í kjölfarið.
„Árangur Þróttar á þessum tíma
kom okkur Palla á kortið, við fór-
um að hugsa og æfa eins og menn,“
segir Siggi, sem var Reykjavíkur-
meistari með Þrótti 1976, þá 17
ára.
Þróttarar fögnuðu hápunkti fé-
lagsins í handboltanum fyrir um 40
árum, þegar þeir urðu bikarmeist-
arar í fyrsta og eina sinn í meist-
araflokki karla 1981, og komust síð-
an í undanúrslit í Evrópukeppni
bikarhafa tæplega ári síðar. Auk
þess urðu þeir í öðru sæti á Ís-
landsmótinu 1980-81, eftir að hafa
komið upp úr 2. deild árið áður, og
Siggi varð markakóngur deild-
arinnar með 135 mörk í 14 leikjum,
sem var met, skoraði m.a. 16 mörk
á móti Val í sigurleik, 28:25. „Við
æfðum í Vogaskólanum með Óla
H.,“ minnir hann á. „Liðið leystist
upp eftir Evrópukeppnina og við
tók frekar brött brekka niður á við,
en óþarfi er að rifja það upp,“ segir
Einar Sveinsson, bróðir hans.
Ólafur H. Jónsson fór fyrir muln-
ingsvél Vals á sínum tíma og eftir
nokkur ár í atvinnumennsku tók
hann við þjálfun Þróttar í 2. deild
1979 auk þess sem hann spilaði
með liðinu. Og árangurinn lét ekki
á sér standa. „Þessi ár voru stór-
kostleg,“ rifjar Einar upp. „Við elt-
um Víkingana, sem höfðu lengi ver-
ið óstöðvandi, í deildinni og það var
frábært að vinna þá 21:20 í úrslita-
leik bikarkeppninnar í kjaftfullri
Höllinni, þar sem frábærir stuðn-
ingsmenn okkar hvöttu okkur til
dáða. Þá er ekki leiðinlegt að minn-
ast þess að aðeins Valur hafði náð
betri árangri í Evrópukeppni en
við, lék til úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða í mars 1980.“
Herinn stöðvaði Þrótt
Þróttarar slógu út norsku bikar-
meistarana Kristiansand, hollenska
liðið Sittardia Sittard og ítalska lið-
ið Tacca Pallamano áður en kom að
fjórðungsúrslitunum í apríl 1982,
þar sem mótherjarnir voru Dukla
Prag frá þáverandi Tékkóslóvakíu.
„Við stóðum okkur vonum framar á
móti tékkneska hernum, töpuðum
með fjórum mörkum heima, 21:17,
en komumst svo í 7:0 úti áður en
við töpuðum 23:19,“ rifjar Einar
upp. „Aðstæður hentuðu okkur
ekki vel, leikurinn byrjaði klukkan
hálftíu að morgni og höllin var full
af hermönnum.“
Tónninn var gefinn í 2. deildinni
og bræðurnir voru í sviðsljósinu
eftir 27:23-sigur á Þór fyrir norðan
laugardaginn 22. mars 1980. Einar
segir að eftir leik hafi verið haldið
beint í veislu í Ármúlanum í
Reykjavík, þar sem Óli H. hafi ver-
ið að opna nýja Hummelbúð. Kjart-
an L. Pálsson íþróttafréttamaður
hafi verið á meðal gesta og spurt
sig um úrslit á Akureyri. „Ég sagði
honum það. Þá spurði hann hverjir
hefðu skorað. „Við bræður skor-
uðum 19 mörk og aðrir færri,“
svaraði ég og gekk síðan í burtu.
Ég lét ósagt að Siggi bróðir skoraði
18 mörk og ég eitt, en síðan hefur
varla liðið sú vika að ég hafi ekki
verið minntur á svarið.“
Bikarmeistarar Þróttar 1981 Efri röð frá vinstri: Guðmundur Pálsson, formaður Þróttar, Haukur Þorvaldsson,
Árni Svavarsson, Þormóður Jónsson, Haukur Hafsteinsson, Magnús Margeirsson, Sigurður Sveinsson, Ólafur H.
Jónsson, fyrirliði og þjálfari, Sveinlaugur Kristjánsson, Jón Viðar Jónsson og Axel Axelsson. Neðri röð frá vinstri:
Einar Sveinsson, Gísli Óskarsson, Gunnar Gunnarsson, Sigurður Ragnarsson, Örn Thors og Páll Ólafsson.
„Við bræður skoruðum 19“
- Um 40 ár frá hápunkti Þróttar í Reykjavík í handbolta
- Bikarmeistarar og í undanúrslitum Evrópumótsins