Morgunblaðið - 17.01.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.01.2022, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 7. J A N Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 13. tölublað . 110. árgangur . UPPGJÖR VIÐ OFBELDI OG FORTÍÐINA MIKILL GANGUR Í LOÐNUVEIÐI SÍFELLT HÁVÆR- ARI KRÖFUR UM AFSÖGN LOÐNAN VIÐ LANGANES 4 MÖGULEGIR ARFTAKAR 14SIANA RUT 29 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Horft til Bakka- og Hólahverfis í Reykjavík. _ Styrkja á hverfiskjarna með verslun og þjónustu og styrkja vist- væn og heilsueflandi svæði. Þetta er inntak hverfisskipulags fyrir Breiðholtið í Reykjavík sem nýlega var samþykkt. Íbúðabyggð verður þétt og stundum er hún í blöndu með atvinnustarfsemi. „Það besta við Breiðholt er þróunin sem tekið hefur hverfið inn í alþjóðlegt sam- félag 21. aldar,“ segir Sara Björg Sigurðardóttir, formaður hverfis- ráðs, í samtali við Morgunblaðið. Í Breiðholtshverfi búa nú um 22 þúsund manns. Fólk af erlendum uppruna er stór hluti íbúanna, gjarnan um fjórðungur. »10 Breiðholtið er nú komið inn í 21. öld Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Fleiri fyrsta árs hjúkrunarfræði- nemar við Háskóla Íslands komust í gegnum samkeppnisprófin við deild- ina en fyrst var gert ráð fyrir. Þetta var ákveðið af hálfu skólayfirvalda eftir að þeim barst ákall frá heil- brigðisráðuneytinu og Landspítalan- um. Háskólinn á Akureyri á eftir að ákveða hvort ákallinu verði svarað. Bættu fimm við Að sögn Ingu Þórsdóttur, forseta heilbrigðisvísindsviðs HÍ, átti að hleypa 122 nemendum í gegn í ár. Háskólinn ákvað hins vegar að svara ákallinu og tók inn fimm til viðbótar. Alls voru það því 127 nemendur og var þar með öllum sem náðu tilskil- inni einkunn hleypt í gegn. Um 200 þreyttu prófið. Inga segir Háskóla Íslands vera tilbúinn til að fjölga hjúkrunarfræði- nemum enn frekar en það séu klínísk pláss sem séu takmarkandi. Sama gildi í báðum skólum Háskólinn á Akureyri hleypti 75 nemendum í gegnum samkeppnis- prófin í ár. Fjórir aðrir náðu tilskil- inni einkunn en hafa ekki fengið að vita hvort þeir muni komast inn. Ákvörðun í málinu verður tilkynnt í dag. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólamálaráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að hún bindi mikl- ar vonir við að nemarnir verði teknir inn. „Það er mikilvægt að það sama gildi í báðum háskólunum.“ Fleiri ná klásus í HÍ - Stjórnvöld óskuðu eftir að fleiri hjúkrunarfræðinemum yrði hleypt í gegnum samkeppnisprófin - HA gefur svar í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Menntun Háskóli Íslands ákvað að hleypa fimm til viðbótar í gegn. MTaka fleiri inn … »2 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er með fullt hús stiga eða 4 stig í efsta sæti B-riðils Evr- ópumótsins eftir sigur með minnsta mun gegn Erlingi Birgi Richardssyni og lærisveinum hans í Hollandi í Búdapest í gær. Leiknum lauk með 29:28-sigri Íslands en íslenska liðið mætir gest- gjöfunum í Ungverjalandi í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins og sæti í milliriðlum í Búdapest á morgun. Ljósmynd/Szilvia Micheller Ísland með tvo sigra og fullt hús stiga á EM _ Mikilvægt er að stjórnvöld hafi í ríkari mæli sam- ráð þegar stefnan í heilbrigðis- málum er mótuð. Þetta segir Stein- unn Þórðardóttir, nýr formaður Læknafélags Ís- lands. Hún minn- ir á að sl. sumar hafi 1.000 læknar sett fram áskorun um úrbætur á kerfi sem væri að fara á hliðina. Segja mætti nú að slíkt hrun hefði raungerst á Landspít- alanum í Covid-ástandi, þegar nýt- ing gjörgæslurýma væri nær 100% og álag á lækna slíkt að margir þeirra íhuga nú að róa á ný mið í starfi. »11 Leiti ráða hjá læknum Steinunn Þórðardóttir Bólusetningar barna halda áfram í Laugardalshöll í dag og út vikuna. Opið hús er fyrir Janssen-þega og þá sem eiga eftir að mæta í örvunar- skammtinn frá kl. 10-15 út þessa viku og hvetur Heilsugæslan alla til að mæta að því gefnu að fimm mánuðir séu liðnir frá skammti tvö. Ragnheiður Ósk Er- lendsdóttir segir að markmiðið sé að klára að gefa örvunarskammta í vik- unni. Hún bætir við að hætt verði að nota Laugardalshöll undir bólusetn- ingar um miðjan febrúar. Ragnheiður segir breytingu verða á fyrirkomulag- inu vegna ungs aldurs þessara barna en þeim verður boðin bólusetning í sérrými. logis@mbl.is »4 Komið að Janssen Janssen-þegar fá örvunarskammt. Sölvi Antonsson veitingamaður tók við veitinga- rekstri á skíða- svæði Akureyr- inga í Hlíðarfjalli um áramótin. Hann óskaði eftir vínveitingaleyfi á dögunum hjá bæjarráði Akureyrar sem tók já- kvætt í erindið. Við umfjöllun í bæjarráði Akureyrar í sl. viku um leyfið lagði Sóley Björk Stefáns- dóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna, fram bókun um andstöðu sína. Í samtali við Morgunblaðið sagði hún að þessi hugmynd væri al- veg út í hött. Andri Teitsson bæjar- fulltrúi var einn þeirra sem studdu málið í bæjarráði. Hann segir Hlíð- arfjall vera vinsælan ferða- mannastað sem styrkja þurfi í sessi. »6 Deilt um vín- veitingaleyfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.